Wenche Lølanf skrifaði:
Det står i str l at dey skal økes 6 masker eyyer ca 24 cm, men det er helt feol. det må være 26? Da blir resten også feil.
20.12.2020 - 23:26DROPS Design svaraði:
Hej Wenche, du skal øke 6 masker for at få 348 m når du deler arbejdet. Og antal masker stemmer når du deler det. God fornøjelse!
07.01.2021 - 11:08
Susan England skrifaði:
The diagram for yoke pattern shows increase symbols on both sides of pattern. Does this mean you increase sts on all symbols for all sizes?
10.11.2020 - 22:11DROPS Design svaraði:
Dear Mrs England, that's right, diagram A.1 is the same for all sizes (but will be worked a different number of times in each size), so that A.1 starts with 7 sts and after all increases in diagrams are done, there are 18 sts in each A.1. Happy knitting!
11.11.2020 - 08:53
KATTY CASTELLAT skrifaði:
Pourquoi diminuer et réaugmenter aussitôt après de 20 m au niveau du col ? Merci...
05.11.2020 - 09:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Catellat, on délimite ainsi bien le col entre la fin des côtes et le début de l'empiècement. Bon tricot!
05.11.2020 - 11:07
May-Tove skrifaði:
Kan denne genseren strikkes nedenfra å opp? Hva blir felling ved mønster hvis dette går?
02.11.2020 - 11:41
Lisa-Maria Koch skrifaði:
Ist es richtig, dass die Passe im Rippmuster gestrickt wird, obwohl oben in der Anleitung steht dass die komplette Arbeit glatt rechts gearbeitet wird? Sowohl bei der Damen Variante als auch bei der Jacke wird die Passe glatt rechts gestrickt, und auch auf den Bildern kann ich kein Rippen Muster erkennen.
27.09.2020 - 18:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Koch, nur die Halsblende wird im Rippenmuster gestrickt - dh ca 4 cm Rippenmuster, dann stricken Sie glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!
28.09.2020 - 10:30
Iina skrifaði:
Pattern picture is missing, where could i find it? And is there any size chart for this pullover in cm?
16.09.2020 - 21:04DROPS Design svaraði:
Dear Lina, you can find the schematic drawing, with the measurements of the piece at the bottom of the page. For measurements given in cm's please make sure that instead of teh US site you are using the UK site here: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=9599&cid=19 Happy Crafting!
17.09.2020 - 05:32
Marjo skrifaði:
Mistä löydän tähän malliin kuvio piirrokset? Naisten paidastako?
13.09.2020 - 08:09DROPS Design svaraði:
Hei, nyt piirrokset aukeavat.
22.09.2020 - 17:27
Ann Liu skrifaði:
Heisann, er det riktig at etter vrangbord på halskanten skal det først felles antall masker, for så å øke like etter neste omgang? hva er hensikten med det? håper på raskt svar, takk på forhånd.
24.08.2020 - 19:47DROPS Design svaraði:
Hej Ann Liu, da vi du få en pæn overgang til halskant :)
25.08.2020 - 10:46
Christine skrifaði:
The pattern picture for this seems to be missing? Where could I find it?
28.07.2020 - 09:49DROPS Design svaraði:
Hi Christine, it is correct, please wait a bit longer. Happy knitting!
28.07.2020 - 11:19
Christa Lissey skrifaði:
Warum bringen Sie fast immer Pullover, die von oben nach unten gestrickt werden. Ich stricke seit längerer Zeit original Island Pullover, da geht das immer umgekehrt. So kenne ich das, andersherum muss ich ja alles umrechnen. Ich will einen Herrenpullover stricken, aber bitte wie die Isländer. Viele Grüße, Christa Lissey
15.04.2020 - 19:17DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lissey, hier finden Sie alle Pullover für Herren, die von unten nach oben gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
16.04.2020 - 10:04
Inner Circle#innercirclesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftna. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að byrjun á umferð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6,8. Í þessu dæmi eru prjónuð ca 6. og 7. hver lykkja saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-116-120-124-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn beige. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þart til stykkið mælist ca 4 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 16-19-19-20-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-97-101-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-32-36-39-42 lykkjur jafnt yfir = 112-119-133-140-147-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Till að flíkin passi betur eru er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verðu hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN. BERUSTYKKI: Nú er prjónað mynstur A.1 (= 7 lykkjur) 16-17-19-20-21-22 mynstureiningar hringinn í umferð (byrjaðu við þína stærð í mynsturteikningu) – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 288-306-342-360-378-396 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 23-24-24-24-24-24 cm. Stærð S: Berustykkið er nú tilbúið – haldið áfram með næsta kafla ALLAR STÆRÐIR að neðan Stærð M, L og XL berustykki er prjónað áfram þannig: Prjónið sléttprjón með litnum beige þar til stykkið mælist 25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24-24 cm aukið út 14-6-20 lykkjur jafnt yfir = 320-348-380 lykkjur. Haldið áfram með næsta kafla ALLAR STÆRÐIR að neðan. Stærð XXL og XXXL berustykki er prjónað áfram þannig: Prjónið sléttprjón með litnum beige þar til stykkið mælist 30-32 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24 cm aukið út 11-14 lykkjur jafnt yfir og þegar stykkið mælist 27-29 cm aukið út 11-14 lykkjur jafnt yfir = 400-424 lykkjur. Haldið áfram með næsta kafla. ALLAR STÆRÐIR: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-56-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-56-60-65 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-244-264-288 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 92-100-110-122-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja bæði á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þegar stykkið mælist 30-30-30-31-31-31 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 40 lykkjur jafnt yfir = 224-240-260-284-304-328 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjurnar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þgar stykkið mælist 5-3-4-5-5-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-3-3-2,5-2,5 cm millibili alls 8-10-12-12-14-14 sinnum = 52-56-60-64-64-68 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-43-42-41-40-38 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affelllingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 49-47-46-45-44-42 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #innercirclesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.