Kathy Carley skrifaði:
Is it possible to have lavender puff pattern changed or converted to start from bottom up.
18.03.2020 - 10:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Carley, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request but you can get inspired by our similar pattern , choose among these patterns those worked bottom up. Happy knitting!
18.03.2020 - 11:20
Anja skrifaði:
Hej jeg har lige færdiggjort afsnittet "raglan" og har altså lige opdelt i ærmer og for/rygstykker. Til slut står der at jeg skal klippe tråden. Mit spørgsmål er hvorfor dette er nødvendigt, da jeg bare troede man skulle fortsætte rundt på for/rygstykke. på forhånd tak : )
17.03.2020 - 22:36DROPS Design svaraði:
Hej Anja, du har ret, der er der egentlig ingen grund til at klippe tråden, med mindre du vil flytte omgangens begyndelse til midt under ærmet... God fornøjelse!
19.03.2020 - 14:29
Anja skrifaði:
Hej jeg har lige færdiggjort afsnittet "raglan" og har altså lige opdelt i ærmer og for/rygstykker. Til slut står der at jeg skal klippe tråden. Mit spørgsmål er hvorfor dette er nødvendigt, da jeg bare troede man skulle fortsætte rundt på for/rygstykke. på forhånd tak : )
17.03.2020 - 22:34
Françoise skrifaði:
Puis-je faire se modèle en jersey a la place des côtes anglaises.merci pour votre réponse
17.03.2020 - 18:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, le résultat serait complètement différent et les explications ne correspondraient pas. Vous pourrez trouver ici une sélection de modèles basiques avec raglan qui se tricotent tous en jersey - ceux-là ont la même tension/le même échantillon. Bon tricot!
18.03.2020 - 08:05
Françoise skrifaði:
Dois- je augmenté avant et après chaque marquer où avant le premier marquer et à la suite du deuxième marquer. merci pour votre réponse
15.03.2020 - 12:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, on doit augmenter pour le raglan de chaque côté des mailles du raglan (= celles avec un marqueur) en tricotant 3 fois la maille endroit et le jeté (= 2 augmentations), tricotez la maille avec le marqueur = celle du raglan, et tricotez 3 fois la m endroit et le jeté suivant (= 2 augmentations) , vous augmentez ainsi 2 m avant + 2 m après chaque maille du raglan/chaque maille avec un marqueur et 16 m au total par tour. Bon tricot!
16.03.2020 - 10:05
Anne Mette skrifaði:
Hvordan tager jeg ind på ærmerne, når jeg strikker str. L, der bliver det jo ikke en vr maske midt under ærmet?
12.03.2020 - 15:36DROPS Design svaraði:
Hej Anne Mette, har du set videoen hvordan man tager 2 masker ind på hver side af en maske? Den kan du bruge uanset om det er en vrangmaske eller om det er en patentmaske:
How to decrease 2 stitches towards left and right with 2-colour in English rib from Garnstudio Drops design on Vimeo.
18.03.2020 - 15:10
Sue Princin skrifaði:
Die Wolle für diesen schönen Pullover habe ich schon geordert in Sand - Rosa . Wann wird denn die Anleitung veröffentlicht? Kann es kaum erwarten ihn zu stricken!
20.01.2020 - 15:50
Loes skrifaði:
Prachtige trui.
16.01.2020 - 19:58
Monika Josch skrifaði:
Wunder, Wunderschön ❤️
14.01.2020 - 22:46
Monica skrifaði:
Lavender dream
15.12.2019 - 02:31
Lavender Puff#lavenderpuffsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-33 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við brugðnu lykkjuna með prjónamerki í (= laskalínu lykkjurnar), þ.e.a.s. aukið út í sléttri lykkju og uppslátt sem liggur næst laskalínu lykkju. Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við laskalínu lykkjurnar (= 16 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir og uppsláttinn á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppslátt slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni (A.1), en gætið að í fyrstu umferð á eftir útaukningu þá kemur þessi eina útaukna lykkja að vera prjónuð slétt án þess að vera prjónuð saman við uppslátt, þar sem ekki er uppsláttur fyrir þessa lykkju. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki og undir ermar í lykkjurnar sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í mitt undir ermi/í hliðum á fram- og bakstykki. Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðin + 1 lykkja slétt og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slett saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett voru til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir eru á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. ATH: Allur Lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talinn sem 1 lykkja með sléttri lykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-82-86-88-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-6-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 13-15-15-15-17-17 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju). Nú eru 14-14-14-16-16-18 lykkjur eftir á bakstykki eftir síðasta prjónamerki. Prjónið síðan A.1 hringinn. JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Þegar prjónaðar hafa verið alls 7 umferðir með A.1 (og næsta umferð byrjar með «prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman»), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 16 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Aukið svona út í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 7-8-9-10-11-12 sinnum á hæðina = 188-208-224-244-272-292 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 hringinn án útaukninga þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl). Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 27-31-33-35-39-43 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 28-30-34-36-40-44 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-132-144-152-168-184 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðu af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við lykkju með prjónamerki og prjónið A.1 hringinn eins og áður. ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvoru framstykki með því að fækka um 2 lykkjur í klukkuprjóns lykkjur sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í hliðum – sjá ÚRTAKA. Þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur til vinstri í byrjun á bakstykki og 2 lykkjur til hægri í lok á bakstykki = 116-128-140-148-164-180 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum alveg eins og á framstykki (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur til vinstri í byrjun á bakstykki og 2 lykkjur til hægri í lok bakstykkis) = 112-124-136-144-160-176 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman við sléttu lykkjurnar. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-43-45-51-57-59 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-50-56-62-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri eftir lykkju með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkju með prjónamerki í). Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum) alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæð = 36-40-42-44-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-36-34-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderpuffsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.