Frosted Foliage Jacket#frostedfoliagejacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-35 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9.hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 4 lykkjur í kanti að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9½-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 66-66-70-74-74-78 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með 2 þráðum í litnum ljós ryð (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir í 1 þráð í litnum ljós ryð og 1 þráð í litnum natur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan), * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með A.2 yfir síðustu 6 lykkjur (= kantur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringin að ofan. Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 6-11-12-13-18-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-77-82-87-92-102 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki eftir kanta að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með A.1 og A.2 yfir ystu 6 lykkjurnar í hvorri hlið fyrir kanta að framan eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 12-13-14-15-16-18 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.2 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 24-26-28-30-32-36 lykkjur = 96-103-110-117-124-138 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-9-10-10-11-12 cm. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, 0-1-1-2-2-0 lykkjur slétt, A.4 þar til eftir eru 6-6-7-7-8-6 lykkjur (= 14-15-16-17-18-21 mynstureiningar með 6 lykkjum á breidd), 0-0-1-1-2-0 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar allt A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 28-30-32-34-36-42 lykkjur = 124-133-142-151-160-180 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-14-16-17-19-20 cm. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, 2-1-2-1-2-0 lykkjur slétt, A.4 þar til eftir eru 8-6-8-6-8-6 lykkjur (= 18-20-21-23-24-28 mynstureiningar með 6 lykkjum á breidd), 2-0-2-0-2-0 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar allt A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 36-40-42-46-48-56 lykkjur = 160-173-184-197-208-236 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 27-29-30-32-34-39 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 32-34-37-39-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-47-50-55-56-66 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 32-34-37-39-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-29-30-32-34-39 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-117-126-135-140-160 lykkjur. Haldið áfram með 1 þráð í hvorum lit (= 2 þræðir) og 6 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 30 cm, aukið út 18-21-24-27-30-30 lykkjur jafnt yfir = 126-138-150-162-170-190 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið áfram svona fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir 2 þræði ljós ryð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 32-34-37-39-42-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og takið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-50-52-54 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt á milli 6-6-6-8-8-8 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-40-45-47-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 6-7-9-9-10-12 sinnum = 26-26-27-29-30-30 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), aukið út 2-2-5-3-6-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum ljós ryð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-43-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedfoliagejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.