Veronika skrifaði:
Kann es sein, dass sie sich verschrieben haben bei dem Zopfmuster, muss es nicht 9 Maschen anstatt 7Maschen? Danke für eine schnelle Antwort und liebe Grüße aus Engelskirchen
05.12.2019 - 22:38DROPS Design svaraði:
Liebe Veronika, Sie sind ja recht, es sollte 9 Maschen beim Zopfmuster und nicht 7. Korrektur erfolgt, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
06.12.2019 - 09:42
Beata skrifaði:
I' ve got stuck, just in the beginning, with the neck edge, when I count the stiches it gets more than I should cast on in the beginning,, so I knit 63 stiches round ( I took the S) , and then I am confused, so I do I 1 knit and 1 purl and repeat it for 24 stiches, is that correct? or 24 stiches is all tohether with the first 1 knit and 1 purl, but anyway it doesn' t make the 63 stiches I cast on in the beginning.
05.12.2019 - 17:22DROPS Design svaraði:
Dear Beata, work the 63 sts as follows: (K1, P1) x 12 (= over the first 24 sts), K2, P1, K1, P1, K1, P1, K2, P1, K1, A.1 (= 18 sts), K1, P1, K2, P1, K1, P1, K1, P1, K1 = 24+2+1+1+1+1+1+2+1+1+18+1+1+2+1+1+1+1+1+1= 63 sts. Happy knitting!
06.12.2019 - 08:11
Jody skrifaði:
Il n'y a pas ce patron en ligne pourquoi?
19.11.2019 - 10:14
Marie Louise skrifaði:
Ce modèle très intéressant sans aucun doute je le ferais ce tricot
15.07.2019 - 15:35
Christa Schmitt skrifaði:
Sieht super aus perfekt.
13.07.2019 - 11:09
Laura Rusu skrifaði:
It doesn't look like Nord yarn. Looks more like Sky or Air, or Alpaca +kid Silk. Nord yarn is not fluffy. Are you sure the sweater in the picture is knitted with Drops Nord? Anyway, the pattern is beautiful!
12.07.2019 - 10:50
Ellis skrifaði:
Finaly right sized , also sleeves correct
09.06.2019 - 21:56
Snow Scents#snowscentssweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kaðli mitt að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-43 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 4 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur garðaprjón í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 63-63-67-67-71-71 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Brushed Alpaca Silk og 1 þræði Nord (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð frá skiptingunni á milli vinstri axlar og bakstykki: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 24-24-26-26-28-28 lykkjurnar, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið 2 lykkjur slétt, 1-1-1-1-2-2 lykkjur brugðið, 1-1-2-2-2-2 lykkjur slétt, A.1 (= 18 lykkjur), 1-1-1-1-2-2 lykkjur slétt, 1-1-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Prjónið þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 25-25-27-27-29-29 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 7 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-26-26-28-28 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 7 lykkjur (= ermi) og setjið 1 prjónamerki Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 23-23-25-25-27-27 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Þegar fyrsta umferð hefur verið prjónuð hafa verið auknar út 4 lykkjur í A.2 og 8 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= fyrsta útaukningin fyrir laskalínu). Nú eru 75-75-79-79-83-83 lykkjur eftir í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.2 og sléttprjón og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-20-20-23-26-30 sinnum – sjá útskýringu að ofan. Eftir síðustu útaukningu eru 203-227-231-255-283-315 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og mynstur (án útaukninga) þar til stykkið mælist 22-25-25-28-32-36 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 59-65-67-73-81-89 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 41-47-47-53-59-67 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-68-70-76-84-92 lykkjur mynstur og sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 41-47-47-53-59-67 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 133-145-153-165-181-197 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni, A.2 þar til stykkið mælist 8 cm. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 og 24 cm = 145-157-165-177-193-209 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 34-33-35-34-32-30 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 4 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 141-153-161-173-189-205 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Stærð S, XL, XXL og XXXL: *1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 96-120-132-144 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 yfir lykkjur í A.2, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir síðustu 26-34-38-42 lykkjur. Stærð M og L: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 106-112 lykkjur, A.1 yfir lykkjur í A.2, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 28-30 lykkjur, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 40-39-41-40-38-36 cm frá skiptingu (= ca 6 cm stroff). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 41-47-47-53-59-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-53-55-61-67-75 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-8 lykkjur undir ermi. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi -sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-3-2-1½-1 cm millibili alls 7-10-10-13-15-18 sinnum = 33-33-35-35-37-39 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-36-34-32-28-25 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm (eða að óskaðri lengd), í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju = 34-34-36-36-38-40 lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-40-38-34-31 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowscentssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.