Lagoon |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið *-*. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar allar lykkjurnar eru taldar er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í 2. umferð í klukkuprjóns mynstri! ATH: Ef prjónfestan passar ekki alveg á hæðina, verður laskalínu útaukningin of stutt/löng á hæðina. Laska útaukningin er skrifuð bæði í fjölda umferða og í cm. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, prjónið laska útaukningu í cm. Aukið út þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í. Aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju (brugðin lykkja + uppsláttur) þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni og uppslættinum sem var prjónað af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið næstu 7 lykkjur í klukkuprjóni eins og áður. Aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju (brugðin lykkja + uppsláttur) þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni og uppslættinum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við hver af prjónamerkjum sem eftir eru (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur – það er enginn klukkuprjóns uppsláttur í útaukningu, þannig að í næstu umferð í klukkuprjóns mynstri er lykkjan sem prjóna á saman við uppslátt, prjónuð án uppsláttar. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 2. umferð í klukkuprjóns mynstri. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, lyftið yfir næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir lykkjum) á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir lykkju) slétt saman, dragið síðan 3 lausu lykkjurnar yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri). ATH: Í næstu umferð er enginn klukkuprjóns uppsláttur saman með miðju lykkju undir ermi, þannig að næsta umferð í klukkuprjóns mynstri er lykkjan sem prjóna á saman með uppslætti, prjónuð án uppsláttar. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 164 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 70) = 2,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-102-106-110-114-118 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-18-18-22-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 80-84-88-88-92-92 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð er ca mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð með klukkuprjóni, setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna (öll prjónamerkin eru sett í brugðna lykkju) – sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA. Hoppið yfir fyrstu 13-13-15-15-15-15 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli hálfs bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 13 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 25-27-29-29-31-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 13 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og hálfs bakstykkis), nú eru 12-14-14-14-16-16 lykkjur á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er eitt prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni, JAFNFRAMT í næstu umferð (= 2. umferð í klukkuprjóns mynstri) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca 1½ cm millibili), 1-2-4-5-6-8 sinnum alls og í 8. hverri umferð (ca 2 cm millibili) 10 sinnum í öllum stærðum = 256-276-312-328-348-380 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka er haldið áfram með klukkuprjón þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki – endið eftir 2. umferð í klukkuprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 37-39-47-49-53-59 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-67-71 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-79-93-97-107-119 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-67-71 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 36-40-46-48-54-60 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 164-176-204-212-232-256 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni þar til stykkið mælist 24 cm – stillið af þannig að endað sé eftir 2. umferð í klukkuprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn, JAFNFRAMT er aukið út um 70-76-90-92-104-112 lykkjur – sjá ÚTAUKNING = 234-252-294-304-336-368 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 55-59-63-67-67-71 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 9 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 64-68-72-76-76-80 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn í klukkuprjóni. Þegar ermin mælist 4 cm – stillið af að næsta umferð sem er eins og 2. umferð í klukkuprjóni, setjið eitt prjónamerki í miðju lykkjuna undir ermi (= slétt lykkja). Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 8-8-5-4-4-3 cm millibili alls 4-4-5-6-6-6 sinnum = 48-52-52-52-52-56 lykkju. Þegar ermin mælist 38-37-35-34-32-31 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð 3 í klukkuprjóns mynstri, skiptið yfir á sokkaprjón 3. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið uppslátt og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* umferðina hringinn = 48-52-52-52-52-56 lykkjur. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Stella wrote:
Skøn trøje, man også kan bruge en sommeraften. Hvornår bliver opskriften lagt ud? Glæder mig😊
08.06.2019 - 12:28Elżbieta wrote:
Podoba mi się!
07.06.2019 - 23:44