DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS SS24

The Outdoors

Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð 12 mánaða – 10 ára.

DROPS Baby & Children 38-7
DROPS Design: Mynstur me-075-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
80-86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140)

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200 (250-250-300-300-350) g litur 31, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 40 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju saman.

KLUKKUPRJÓN :
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja.
LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð í 1 umferð þar sem uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman (þ.e.a.s. 2. umferð í klukkuprjónsmynstri).
AUKIÐ ÚT ÞANNIG:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í.
Aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju (1 lykkja brugðið + uppsláttur) þannig:
Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri).
Sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni.
Prjónið næstu 5 lykkjur í klukkuprjóni eins og áður.
Aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju eins og útskýrt er að ofan.
Endurtakið við öll prjónamerkin (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstur – það eru engir uppslættir í 3 útauknu lykkjunum, þannig að í fyrstu umferð á eftir útaukningu er slétta lykkjan prjónuð án uppsláttar.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð í 1 umferð þar sem uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. umferð 3 í klukkuprjónsmynstri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Á UNDAN LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan brugðinni lykkju með prjónamerki, prjónið næstu 3 lykkjur og tilheyrandi uppslætti slétt saman (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Á EFTIR LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðna lykkju með prjónamerki í):
Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslátt á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR HÁLSMÁL:
Fitjið upp 70 (74-76-76-80-80) lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 (6-4-4-0-0) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 60 (68-72-72-80-80) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð er ca mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð í klukkuprjóni, setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar (öll prjónamerkin eru sett í slétta lykkju) – sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA, þannig:
Hoppið yfir fyrstu 10 (12-14-14-16-16) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skiptingin á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 7 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skipting á milli hægri ermi og framstykki), hoppið yfir næstu 21 (25-27-27-31-31) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skipting á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 7 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skipting á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 11 (13-13-13-15-15) lykkjur eftir í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er eitt prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á auka út hvoru megin við hvert prjónamerki.
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni, JAFNFRAMT í næstu umferð (= 2. umferð í klukkuprjónsmynstri) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 6 (6-6-7-7-8) sinnum = 156 (164-168-184-192-208) lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, haldið áfram í klukkuprjóni þar til stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18) cm frá prjónamerki – endið eftir 2. umferð í klukkuprjóni.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 22 (24-24-28-28-32) lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 33 (33-35-37-39-41) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45 (49-49-55-57-63) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33 (33-35-37-39-41) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23 (25-25-27-29-31) lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 100 (108-108-120-124-136) lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar án klukkuprjónsuppsláttar í fyrstu umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 14 (16-19-22-25-28) cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður saman með lykkjum.
Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 33 (36-40-44-48-52) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 33 (33-35-37-39-41) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38 (38-40-42-44-46) lykkjur.
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. Í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar sem prjónaðar voru upp undir ermi án klukkuprjónsuppsláttar.
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 1 umferð þar sem lykkjurnar eru prjónaðar brugðið, setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi (= 1 lykkja brugðið). Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-2 = 34 (34-36-38-40-42) lykkjur.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 7 (8-13-16-18-20) cm = 30 (30-32-34-36-38) lykkjur.
Þegar ermin mælist 11 (14-19-23-26-30) cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af.
Ermin mælist 15 (18-23-27-30-34) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

The Outdoors

Elke, Netherlands

The Outdoors

Mayke, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Cornelia wrote:

Na de eerste naald heb ik de steken verdeeld in 14-7-27-7-13 als ik verder Lees dan staat er 5 steken in engelse patentsteek moet breien in plaats 7 als ik dat doe klopt het patroon niet .groetjes Cornelia.

10.04.2024 - 12:50

country flag Cecilia wrote:

Varför ligger detta mönster under garngrupp c då man filtrerar?

17.01.2024 - 17:46

DROPS Design answered:

Hei Cecilia. Kommer an på hvordan du filtrerer. Når man strikker med Merino Extra Fine er vanligvis strikkefastheten 21 masker x 28 pinner = 10 x 10 cm, men i helpatent har denne genseren 16 masker i bredden, noe som garngruppe C har. mvh DROPS Design

18.01.2024 - 10:20

country flag Elke wrote:

Bij maat 3/4 en 7/8 zou de middelste steek onder de mouw volgens mij een rechte moeten zijn, geen averechte.

16.11.2023 - 16:39

country flag Dumont Denise wrote:

Merci pour tous vos modèles qui me donnent beaucoup de plaisir à tricoter. Pour ce modèle avec côtes anglaises, je ne comprends pas pourquoi la vidéo explicative ne correspond pas à vos explications écrites. 2° tour tricoter ensemble à l’envers ou à l’endroit la maille glissée et le jeté....ça ne ressemble a rien sur mon tricot si je suis vos écrits. OK quand je suis là vidéo. Que faire? Merci

19.09.2023 - 13:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumont et merci. Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter ce type de côtes anglaises, ce devrait être ainsi plus facile pour vous de visualiser comment on procède. Bon tricot!

19.09.2023 - 15:58

country flag Bettina wrote:

Wie kann ich die Raglanzunahmen im Vollpatent einarbeiten? In der Anleitung steht: ... 2 Maschen in der nächsten Masche (1 Linksmasche + Umschlag) wie folgt zunehmen: Den Umschlag und die Masche links zusammenstricken, jedoch beides noch nicht von der Nadel gleiten lassen, 1 Umschlag arbeiten und die Masche + Umschlag nochmals links zusammenstricken und von der linken Nadel gleiten lassen = 3 Maschen (= 2 Maschen zugenommen). Leider finde ich hierzu kein Video und verstehe es nicht.

07.09.2023 - 18:25

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, in diesem Video zeigen wir (für ein anderes Modell) wie diese Zunahme (ca 1:04) gearbeitet wird und wie diese Zunahmen (ca 4:14) bei der nächsten Runde gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

08.09.2023 - 08:02

country flag Agneta Hofstedt Blom wrote:

Har fastnat på första ökningen raglan på mönster 38-7.stickar tills det är 3 m.kvar innan markör, jag har inte räknat med omslaget då ,men när jag gör ökningen bror det en maska över innan nästa markör stämmer det ?

25.05.2023 - 17:18

DROPS Design answered:

Hei Agneta Det økes i 2. omgang i patentmønstret), strikker du slik: Strikk til det gjenstår 3 masker før masken med merke i. Så øker du i neste maske som er en vrangmaske med kast. Øk slik: Strikk kastet og masken vrang sammen, men vent med å løfte masken og kastet det strikkes i av pinnen, lag 1 kast om høyre pinne, strikk masken og kastet vrang sammen 1 gang til = 3 masker (= 2 masker økt). Slipp masken det ble strikket i av pinnen. På neste omgang strikkes de økte maskene inn i patentmønsteret – det er ingen patentkast i de 3 økte maskene, så på første omgang etter økningen strikkes rettmasken rett uten kast. mvh DROPS Design

30.05.2023 - 13:11

country flag Edith Salminen wrote:

Kan man göra denna tröja fast men garnet drops belle?

10.01.2023 - 10:16

DROPS Design answered:

Hej Edith, ja det kan du, prøv garn-konverteraren, vælg DROPS Merino, antal g i din størrelse og 1 tråd, så får du Belle op som alternativ sammen med hvor mange g du skal købe :)

10.01.2023 - 11:48

country flag Michielsen Conny wrote:

Is er een video met uitleg over het meerderen voor Rahman in averechts patentsteek. Ik begrijp de uitleg niet zo goed. Merci

01.11.2022 - 08:56

DROPS Design answered:

Dag Conny,

In deze video kun je zien hoe er gemeerderd wordt in Engelse patentsteek. Hoewel er bij deze video recht (samen) gebreid wordt heb je wellicht toch iets aan de video. Het verplaatsen van de markeernaald is op jouw patroon niet van toepassing.

02.11.2022 - 14:44

country flag Michielsen Conny wrote:

Is er een video met uitleg over het meerderen voor Rahman in averechts patentsteek. Ik begrijp de uitleg niet zo goed. Merci

01.11.2022 - 08:27

country flag Ola wrote:

Witam, kiedy rozpocząć okrążenie zaczynając rękawy? Jeśli robię to za 5 dodanymi oczkami to zamykanie oczek wypada na przełomie dwóch okrążeń (przed markerem wypada na "prawym" okrążeniu, ale już po wypada na "lewym" okrążeniu). Wg instrukcji oba powinny być zamknięte na prawej stronie. Natomiast, jeśli zaczynam okrążenie przed dodanymi oczkami to nie wychodzi mi wtedy prawidłowy ścieg (2 oczka z narzutem wypadają obok siebie). Dziękuję za odpowiedź!

23.10.2022 - 19:27

DROPS Design answered:

Witaj Olu, przerabiając rękaw okrążenie zaczynamy na środku 5 oczek pod rękawem. Pozdrawiamy!

25.10.2022 - 08:33