Renata skrifaði:
Dzień dobry, zrobiłam szal i po zakończeniu robótki okazało się, że wykończenie dołu zrobione ściegiem francuskim po stronie z dżersejem wywija się do góry. Tego problemu nie ma po stronie wykonanej ściegiem strukturalnym. Nie jest to pierwszy raz gdy tak mi się tak dzieje, taki sam problem miałam w swetrze Erendis nr bs-108. Co robię źle i jak można to naprawić?
19.12.2019 - 14:24DROPS Design svaraði:
Witaj Renato! Radzę zblokować robótkę, tj. namoczyć w letniej wodzie, odcisnąć w ręczniku i rozłożyć do wysuszenia na macie, dywanie, przypinając brzegi co ok. 5 cm szpilkami. Po wysuszeniu powinno wszystko być ok. Powtarzać to samo po każdym praniu. Pozdrawiamy!
30.12.2019 - 00:42
Anne BERNARD skrifaði:
Merci . Pouvez-vous aussi me détailler les rangs 3,4,5 comme vous me l'avez fait pour les 1 et 2.? C'est plus clair pour moi. Merci
21.11.2019 - 14:56DROPS Design svaraði:
Tricotez les rangs 3 et 4 ainsi: R3: A.2A: 1 double jeté, 1 m end, 1 jeté, 2 m end, 1 double jeté; A.2B: 1 m end; A.2C: 1 double jeté, 2 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 double jeté. R4: A.2C: lâchez 1 jeté, tric l'autre à l'env, 1 m end, 1 m env, 2 m end, 1 m env (tric le jeté torse pour éviter un trou) (= 6 m), A.2B (= 1 m env), A.2A: lâchez le 1er jeté, tricotez l'autre à l'env, 4 m env (tric le jeté torse à l'env), lâchez le 1er jeté et tricotez le 2ème à l'envers = 6 m. Continuez de la même façon aux rangs suivants, suivez bien la légende pour vous aider. Les étoiles se tricotent au point mousse, les cases blanches en jersey. Bon tricot!
21.11.2019 - 15:06
Anne BERNARD skrifaði:
Je suis désolée mais je pense que les rangs envers ne sont pas sur le diagramme pour le châle car ce n'est pas possible de tricoter les jetés comme c'est mis dans les explications et en plus faire la maille à l'endroit sur l'envers. Merci
21.11.2019 - 14:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bernard, tricotez les rangs envers comme indiqué dans la légende, par ex. au 1er rang, vous tricotez (= sur l'endroit): A.2A (= 2 jetés, 1 m end, 2 jetés), A.2B (= 1 m end), A.2C (= 2 jetés, 1 m end, 2 jetés). Au 2ème rang, vous tricotez: A.2C (=lâchez le 1er jeté et tricotez le 2ème à l'envers, 1 m env, lâchez le 1er jeté et tricotez le 2ème à l'envers = 3 m), A.2B (= 1 m env), A.2A (= lâchez le 1er jeté et tricotez le 2ème à l'envers, 1 m env, lâchez le 1er jeté et tricotez le 2ème à l'envers = 3 m). Quel rang vous pose problème?
21.11.2019 - 14:43
Anne BERNARD skrifaði:
Merci de votre réponse mais le chale n'est pas tricoté en rond?
21.11.2019 - 13:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bernard, le châle non, mais le bonnet et les gants oui :) Pour le châle, vous lisez simplement le diagramme en rangs = de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers. Bon tricot!
21.11.2019 - 14:01
Anne BERNARD skrifaði:
Bonjour Est ce que les rangs impairs sont représentés sur les diagrammes où est ce qu'il tricoter les mailles conne elles se presentes à l'envers? Bonne journée
21.11.2019 - 12:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bernard, les diagrammes montrent tous les rangs, vus sur l'endroit. Quand vous les tricotez en rond, lisez-le de droite à gauche tous les tours, quand vous les tricotez en rangs, lisez les rangs sur l'endroit de droite à gauche et ceux sur l'envers de gauche à droite. Bon tricot!
21.11.2019 - 13:03
Anne BERNARD skrifaði:
Bonjour je voudrais juste savoir si le fils nord est mis en double pour faire le châle? Merci
14.11.2019 - 13:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bernard, le châle se tricote avec 1 seul fil DROPS Nord - pensez à bien vérifier votre tension. Bon tricot!
14.11.2019 - 14:10
Anna skrifaði:
Mi piace questo completo.
20.07.2019 - 17:02
Claire skrifaði:
Me gusta el conjunto completo, nunca tejí guantes, a lo mejor estos sean los primeros
17.06.2019 - 20:54
Margaret skrifaði:
Classically Elegant
05.06.2019 - 21:06
Dea skrifaði:
Adoro!
05.06.2019 - 15:45
Business Ready#businessreadyset |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa, sjal og fingravettlingar úr DROPS Nord. Allt settið er prjónað með áferð og gatamynstri.
DROPS 204-55 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Sjal: Sjá mynsturteikningu A.2A, A.2B og A.2C. Fingravettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu! ÚRTAKA (á við um húfu): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið fyrstu lykkju á eftir prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). AFFELLING (teygjanleg affelling – á við um sjal): Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjóni inn í 2 lykkjurnar á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið síðan 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á hægri prjón. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Þegar fellt er svona af þá kemur affellingarkanturinn til með að verða teygjanlegri. HNAPPAGAT (á við um vettlinga): Vinstri fingravettlingur: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Hægri fingravettlingur: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumalfingurá fingravettlingum): Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næsta skipti þegar aukið er út er það gert alveg eins með því að auka út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 116-124 lykkjur á hringprjón 3 með Nord. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3 cm – endið eftir slétta umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 55 lykkjur), prjónið 3-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 55 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 19-21 cm. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 29-31 lykkjur slétt *, prjónið *-* alls 3 sinnum, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju og prjónið 28-30 lykkjur sem eftir eru slétt. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 20-28 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman tvær og tvær = 10-14 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-27 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjón. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Nord. Setjið 1 prjónamerki í 4. lykkju í umferð (= miðju lykkja) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2A yfir 1 lykkju, A.2B yfir 1 lykkju (= miðju lykkja), A.2C yfir 1 lykkju og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 11 lykkjur í umferð. Takið frá annan þráðinn og prjónið afgang af sjalinu með 1 þræði Nord þannig: Haldið áfram með A.2A og A.2C hvoru megin við miðju lykkju (A.2B). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, er 41 lykkja í umferð (20 lykkjur hvoru megin við miðju lykkju). Haldið áfram með útaukningar alveg eins og áður og í sléttprjóni á undan miðju lykkju, áferðamynstur á eftir miðju lykkju og 2 kantlykkjur í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 40 cm meðfram miðju lykkju – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið 2 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur, en með 2 kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður og með útaukningum eins og áður. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem útaukningar í hvorri hlið og hvoru megin við miðju lykkju halda áfram eins og áður. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 3 cm meðfram miðju lykkju, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! SKÚFUR: Saumið skúf í hvora hlið á sjali. 1 skúfur = klippið 30 þræði Nord ca 22 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda, en leggið jafnframt 2 þræði ca 10 cm innan í uppábrotið (þeir eru notaðir til að sauma skúfinn niður í sjalið). Vefjið síðan 1 þræði nokkrum sinnum utan um skúfinn, ca 1½ cm ofan frá og festið vel. Saumið skúfinn í aðra hliðina á sjalinu. Gerið annan skúf og saumið í hina hliðina á sjalinu. ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er stroffið prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Síðan skiptast lykkjurnar niður á sokkaprjóna og afgangur af fingravettlingi er prjónaður í hring á sokkaprjóna. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 52-58 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 og 5 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í lok umferðar – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 28-31 lykkjur í umferð (séð frá réttu = 24-27 lykkjur í umferð eftir prjónamerki). Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna þannig að byrjun á umferð sé við prjónamerki (= innan í hönd). Prjónið hringinn frá prjónamerki þannig: Prjónið 20-23 lykkjur slétt, setjið 4 lykkjur á prjóninn sem 4 fyrstu lykkjurnar voru þegar stroffið var prjónað fram og til baka, undir 4 næstu lykkjur á prjóni og prjónið þessar lykkjur slétt saman tvær og tvær, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 48-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 6-5 lykkjur slétt, prjónið A.3 (= 37-45 lykkjur), prjónið 5-4 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 1-2 cm frá prjónamerki, setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir opi fyrir þumalfingur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 3. hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 þumallykkjur og 58-66 lykkjur alls í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6-7 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjurnar + 1 lykkja hvoru megin við þær, settar á þráð (= 13-15 lykkjur á þræði), að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 48-54 lykkjur. Haldið áfram hringinn eins og áður. Þegar stykkið mælist 11-13 cm frá prjónamerki, setjið fyrstu 19-21 lykkjur á hönd á þráð, haldið eftir næstu 11-12 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 18-21 lykkjur innan í hönd á annan þráð. LITLIFINGUR: = 11-12 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkjur á þræði = 12-13 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6½ cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÖND: Setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við litlafingur = 39-44 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Haldið eftir 2 nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp við litlafingur + 6-6 lykkjur á hönd og 5-6 lykkjur innan í hönd á prjóninn. Setjið til baka 26-30 lykkjur sem eftir eru á sitt hvorn þráðinn (= 13-15 lykkjur á hönd og 13-15 lykkjur innan í hönd). BAUGFINGUR: = 13-14 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkjur á þræði = 14-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7-8 cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. LANGATÖNG: Setjið til baka næstu 6-7 lykkjur af hvorum þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við baugfingur og fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkju á þræði = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7½-8½ cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær 14-16 lykkjur sem eftir eru af þráðum á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við löngutöng = 16-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 6½-7½ cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka lykkjur frá opi fyrir þumalfingur á prjóninn og prjónið að auki upp 3 lykkjur í kanti á bakhlið á þumlfingri = 16-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 52-58 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 og 5 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í byrjun umferðar – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 24-27 lykkjum í umferð (séð frá réttu = 28-31 lykkjur í umferð eftir prjónamerki). Klippið frá. Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna þannig að byrjun á umferð sé við prjónamerki (= innan í hönd). Prjónið hringinn frá prjónamerki þannig: Prjónið 20-23 lykkjur slétt, setjið 4 lykkjurnar á prjóninn sem 4 síðustu lykkjurnar voru þegar stroffið var prjónað fram og til baka, undir 4 næstu lykkjur á prjóni og prjónið þessar lykkjur slétt saman tvær og tvær, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 48-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5-4 lykkjur slétt, prjónið A.3 (= 37-45 lykkjur), prjónið 6-5 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 1-2 cm frá prjónamerki, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir opi fyrir þumalfingur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, alveg eins og á vinstri fingravettlingi. Aukið svona út í 3. hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 þumallykkjur og 58-66 lykkjur alls í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6-7 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjurnar + 1 lykkja hvoru megin við þær, settar á þráð (= 13-15 lykkjur á þræði), að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 48-54 lykkjur. Haldið áfram hringinn eins og áður. Þegar stykkið mælist 11-13 cm frá prjónamerki, setjið fyrstu 18-21 lykkjur ofan á hönd á þráð, haldið eftir næstu 11-12 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 19-21 lykkjur innan í hönd á annan þráð. Prjónið síðan fingur og hönd til loka á sama hátt og á vinstri fingravettlingi. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #businessreadyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-55
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.