DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Snow yarn
DROPS Snow
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7128.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Mossy Twine

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað með köðlum og kúlum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 207-37

#mossytwinesweater

DROPS Design: Mynstur ee-666
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-700-750-850-950 g litur 06, ólífa

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7128.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 37 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 5,3.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið fyrstu um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur færri í umferð) þannig:
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki á fram-/bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki á fram-/bakstykki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt.
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki á ermi þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki á ermum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

Þegar lykkjum hefur verið fækkað 12-14-15-16-19-21 sinnum heldur úrtakan áfram eins og áður á ermum og nú er lykkjum fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (= 12 lykkjur færri í umferð) þannig:
Fækkið um 2 lykkjur á eftir prjónamerki á framstykki og bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 2 lykkjur á undan prjónamerki á framstykki og bakstykki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 1 lykkja slétt.

ÚTAUKNING (á við um undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, áður en þær eru settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Að lokum er berustykkið prjónað og kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 138-150-162-174-186-198 lykkjur á hringprjón 8 með Snow.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * 2 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir fyrstu/næstu 30-36-42-48-54-60 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 32 lykkjur, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið svona áfram hringinn þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina (það fækkar um 3 lykkjur í síðustu umferð í A.1, þ.e.a.s. 6 lykkjur í umferð) = 132-144-156-168-180-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið næstu umferð þannig: * Prjónið slétt yfir fyrstu 37-43-49-55-61-67 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-9-11-11-11-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið A.2 yfir A.1 *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 118-126-134-146-158-170 lykkjur. Nú eru 30-34-38-44-50-56 sléttar lykkjur í hvorir hlið á milli A.2 og framstykkis og bakstykkis. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynstrið endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 27-27-27-27-27-26 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 12-14-16-19-22-25 lykkjur í umferð, fellið af næstu 6 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 53-57-61-67-73-79 lykkjur, fellið af næstu 6 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Klippið frá og geymið stykkið.

ERMI:
Fitjið upp 24-24-24-30-30-30 lykkjur á sokkaprjón 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 22-22-24-28-28-30 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjón 9. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10-9-10-10-7 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-5.-5.-5.-3.-3. hverri umferð alls 6-8-8-7-10-11 sinnum = 34-38-40-42-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-37-36-34-32-31 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 42-46-48-50-56-60 lykkjur. Þegar ermin mælist alls 45-43-42-40-38-36 cm fellið af 6 lykkjur undir ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 36-40-42-44-50-54 lykkjur.
Geymið ermina og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 178-194-206-222-246-266 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Byrjið í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstri ermi. Haldið áfram hringinn með mynstur A.2 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á fram-/bakstykki og ermum þar til stykkið mælist 2-1-2-3-0-0 cm frá byrjun á berustykki. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum þannig (þ.e.a.s. 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki = 8 lykkjur færri í umferð) í annarri hverri umferð alls 12-14-15-16-19-21 sinnum = 82-82-86-94-94-98 lykkjur. Nú heldur úrtakan áfram með 1 lykkju á ermum og fækkað er um 2 lykkjur á fram- og bakstykki (= 12 lykkjur færri í umferð) í annarri hverri umferð 2 sinnum = 58-58-62-70-70-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-12-14-18-16-18 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-52-54-56 lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-6-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.03.2021
Mynsturteikning með máli og mál hefur verið leiðrétt. FRAM- OG BAKSTYKKI:.. Þegar stykkið mælist 27-27-27-27-27-26 cm. ERMI:..Þegar ermin mælist alls 45-43-42-40-38-36 cm... BERUSTYKKI:...Haldið áfram með hringinn með mynstur A.2 yfir þær lykkjur sem eftir eru á fram- og bakstykki og ermar þar til stykkið mælist 2-1-2-3-0-0 cm frá byrjun á berustykki. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA..

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri) = 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri)
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni<br />
<br />
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni

setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja bruðið af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja bruðið af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja bruðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja bruðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Kúla – prjónið þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur, snúið stykkinu og prjónið 5 lykkjur slétt saman = 1 lykkja eftir = Kúla – prjónið þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur, snúið stykkinu og prjónið 5 lykkjur slétt saman = 1 lykkja eftir
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 207-37
Diagram for DROPS 207-37

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mossytwinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Katy Carr skrifaði:

Tienes algún vídeo del patrón re-666? Estoy interesada en este patrón, gracias.

04.02.2020 - 22:01

DROPS Design svaraði:

Hola Katy. Tienes todos los vídeos relacionados con el patrón bajo el diagrama.

23.02.2020 - 23:33

country flag Elina skrifaði:

Onko mitoituksessa tai ohjeen silmukkamäärissä jokin virhe? Ohjeen silmukkamäärällä tulee oversize-neule.

04.01.2020 - 01:53

DROPS Design svaraði:

Hei, olethan tarkistanut neuletiheytesi? Tämä neule on suunniteltu melko leveäksi, esim. koossa M ympärys on 108 cm.

07.01.2020 - 18:49

country flag Hanna skrifaði:

Harmittaa että kuvassa neule on tungettu vyötärön sisään. Olisi kiinnostavampaa nähdä miten neule laskeutuu edestä normaalisti. Löytyisikö neuleesta toisenlaisia kuvia?

20.11.2019 - 15:59

DROPS Design svaraði:

Hei, valitettavasti muita kuvia ei löydy.

18.12.2019 - 16:45

country flag Carmen skrifaði:

Tenéis pensado traducirlo al español? Gracias

07.11.2019 - 12:39

DROPS Design svaraði:

Hola Carmen. Todos los patrones van a ser traducidos al español.

09.11.2019 - 19:56

country flag Van Cauter Chris skrifaði:

2 averecht (3 recht,3averecht) hoe kom je dan aan 36? Want nadien 3 recht?

27.10.2019 - 09:09

DROPS Design svaraði:

Dag Chris,

Het is de bedoeling dat je eerst 2 averecht breit en dan over de volgende 30-36-42-48-54-60 steken brei je steeds 3 recht, 3 averecht.

27.10.2019 - 15:50

country flag Ulla skrifaði:

Den er virkelig flot

09.10.2019 - 11:45

country flag Yvonne skrifaði:

SÅ flot......

30.09.2019 - 19:32

country flag Mana Amel skrifaði:

Très jolie couleur et même le modèle est très beau j'aimerai bien le réaliser je n'attend que les explications merci

29.09.2019 - 13:55

country flag FIRENZE skrifaði:

Très sympathique modèle, autant dans la forme que dans la couleur. Vivement qu'il puisse se glisser dans mes "Favoris" et que j'entende le cliquetis de mes aiguilles qui le confectionnent ...

27.08.2019 - 14:03

country flag TARDIEU FRANCOISE skrifaði:

J'aimerais réaliser ce modèle pour une enfant âgée de 11 ans. Vous serez-t-il possible de me fournir les explications ? Merci d avance pour votre partage.

13.07.2019 - 15:42