DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Golden Vintage Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með stjörnumynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-33
DROPS Design: Mynstur as-117
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-200-200-225-225-250 g litur 19, karrí

STORLEK:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með stjörnumynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stjörnumynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-5-5-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til pláss er fyrir 1 nýja einingu af A.1 á breidd.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 16, 23, 30 og 37 cm
M: 16, 24, 31 og 39 cm
L: 16, 24, 32 og 40 cm.
XL: 16, 24, 32 og 40 cm.
XXL: 16, 23, 30, 37 og 44 cm
XXXL: 16, 23, 30, 37 og 44 cm
ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-208-224-240-272-288 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til strofið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 187-203-219-235-267-283 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, endurtakið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 44-48-52-56-64-68 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 47-51-55-55-63-67 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 6-6-6-14-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 81-89-97-97-113-121 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 6-6-6-14-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 47-51-55-55-63-67 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki).

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 47-51-55-55-63-67 lykkjur. Haldið áfram með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og mynstur eins og áður, kantlykkja í hlið við handveg er prjónuð í garðaprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm. Setjið nú ystu 14-14-15-15-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinni.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 25-29-32-32-39-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að endað sé á 1 umferð án mynsturs, fellið af – sjá AFFELLING.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki.

BAKSTYKKI:
= 81-89-97-97-113-121 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, ysta kantlykkjan í hliðum er prjónuð í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 25-29-32-32-39-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af eftir framstykki, fellið af.
Prjóni hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-60-64-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota það í útaukningu mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn (= 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-40-35-36 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-52-51-50-45-46 cm – stillið af eftir umferð 1. eða 3. umferð í A.1. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjón. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið fram og til baka í 2-2-2-4-4-4 cm – stillið af að endað sé á 1 umferð án mynsturs – fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið ermi við botn á handveg.

KANTUR Í HÁLS:MÁLI
Prjónið upp frá réttu ca 80 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 80-80-84-84-88-88 lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið stroff svona í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (rétta) án þess að lyfta þeim af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt saman í sömu 3 lykkjur og sleppið þeim niður af prjóni (= 3 lykkjur)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Esmée wrote:

Hallo, is het mogelijk om dit vestje gewoon in tricotsteek te breien of worden de verhoudingen dan heel anders? Mvg

29.05.2023 - 10:51

DROPS Design answered:

Dag Esméée,

Het zal geen groot verschil maken als je het vest in tricotsteek breit. Houd goed de stekenverhouding en de afmetingen in de gaten tijdens het breien.

01.06.2023 - 12:58

country flag Anna wrote:

Bonjour ! pour le col faut - il compter 80 (84-88) mailles y compris les 2 x 5 mailles au point mousse ou on compte les mailles au point mousse en plus de ces 80(84-88) mailles ?

11.10.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, tout à fait, les 14, 15 ou 16 mailles mises en attente pour l'encolure de chaque devant (y compris donc les 5 mailles de bordure devant) sont comprises dans ces 80 à 88 mailles. Bon tricot!

12.10.2022 - 08:36

country flag Anne wrote:

Liebes Team, verstehe ich es richtig, dass die Ärmel zunächst rund und dann offen gearbeitet werden? Mir ist nicht klar, wie die Ärmel dann eingesetzt werden- gibt es dazu ein Video? Falls nein, freue ich mich über eine genauere Erklärung. Danke schonmal...

03.09.2021 - 21:30

DROPS Design answered:

Liebe Anne, ja genau, so wird die Ärmel gestrickt. Dieses Video zeigt, wie man die Ärmel zuerst in Runden dann in Hin- Und Rückreihen strickt, und wie die Ärmel dann in das Rumpfteil eingenäht wird. Viel Spaß beim stricken!

06.09.2021 - 07:12

country flag Kathi wrote:

Liebes Drops-Team, ich habe noch eine Frage zum Abketten: sollen dann in der ersten Reihe 3 Maschen abgekettet werden, und in der zweiten Reihe 4 Maschen und zuletzt noch mal 1 Masche? Oder wie ist das gemeint? Vielen Dank, LG, Kathi

08.03.2021 - 11:10

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, bei der nächsten Reihe von der Blende bis Schulter (Rückreihe bei linkem Vorderteil, Hinreihe bei rechtem Vorderteil), ketten Sie diese Maschen: so 3 Maschen 1 Mal, dann 2 Maschen 2 Mal (=zuerst 2 M dann 2 M bei der nächsten Reihe von Hals), und dann 1 M 1 Mal. Alle diese Maschen sollen in jeder 2. Reihe von der Halsblende abgekettet werden (= zwischen den Maschen auf dem Hilfsfaden und den Maschen auf der Nadel). Viel Spaß beim stricken!

08.03.2021 - 13:03

country flag Kathi wrote:

Liebes Drops-Team, ich habe zwei Fragen zum rechten Vorderteil. Wie ist es gemeint, dass die Maschen für den Halsausschnitt vor dem Stilllegen gestrickt werden sollen? Und wie ist die Reihenfolge zum Abketten gemeint: 3 Maschen 1 x, 2 Maschen 2 x, und 1 Masche 1 x ? Wie soll hierbei gestrickt werden? Liebe Grüße, Kathi

07.03.2021 - 01:18

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, bei dem rechten Vorderteil stricken Sie die ersten 14-15-16 Maschen einer Hinreihe und legen diese Maschen still, dann stricken Sie die restlichen Maschen der Hinreihe, wenden Sie und stricken Sie die Rückreihe. Dann, am Anfang jeder Hinreihe werden Sie Machen für Halsausschnitt abketten: 3 M x 1, 2 M x 2, 1 M x 1. Die stillgelegten Maschen stricken Sie später bei der Halsblende. Viel Spaß beim stricken!

08.03.2021 - 08:30

country flag Anne wrote:

Liebes Team, ich habe 2 Fragen zum Modell: 1. wie arbeite ich den Anschlag am besten, so dass er nicht zu eng wird? Ich habe das Original-Garn verwendet und den Anschlag wie immer mit doppelter Nadel gemacht. Das flauschige Garn führt aber dazu, dass die Anschlagsreihe sehr eng ist weil nicht gleitet (das Problem habe ich sonst nie..) 2. werden Randmaschen einfach zusätzlich angefügt, oder statt der 1. und letzten Blenden_Masche gestrickt? Vielen Dank für Eure Hilfe 💕.

30.01.2021 - 00:40

DROPS Design answered:

Liebe Anne, wenn Ihr Anschlag zu eng ist können Sie versuchen, die Maschen mit einer grösseren Nadeln anzuschlagen und dann bei der 1. Reihe mit der Nadel 4,5 weiterstricken. Alle Maschen sind inbegriffen/eingeschlossen, es sind keine Randmasche beim Rumpfteil, die 5 Maschen beidseitig werden für die Blendemaschen kraus rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2021 - 08:16

country flag Ingrid wrote:

Hej är det alltså vart 3:e varv man stickar diagrammet med spetsmönster? Och då 3 v med räta m innan varje sådant mönstervarv?

20.01.2021 - 14:18

DROPS Design answered:

Hei Ingrid. Ta en titt på hjelpevideoen til dette mønstret: mvh DROPS design

27.01.2021 - 14:15

country flag Carolyn Williams wrote:

Is it possible to knit this sweater from the bottom up in one piece until the arm holes?

07.09.2020 - 22:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williams, that's the way the jacket is worked: you cast on stitches for both front pieces + back piece and work to armhole, then cast off stitches for armholes and finish each piece separately. Happy knitting!

08.09.2020 - 10:25

country flag Lagrange wrote:

Bonjour je ne comprends pas au moment de tricoter le diagramme A1 il faut faire le rang 1 au point endroit ce qui donne en dessous du rang 3 du Jersey c’est bien ça? Ou je dois tricoter en côte 2/2?

21.04.2020 - 23:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lagrange, le 1er rang de A.1 se tricote sur l'endroit, A.1 commence donc par 2 rangs jersey, 1 rang sur l'endroit avec (1 m env, tricotez les 3 m suivantes 2 fois à l'end avec 1 jeté entre), et 1 rang sur l'envers = 4 rangs. Cette vidéo montre comment tricoter ce point. Bon tricot!

22.04.2020 - 08:29

country flag Marimar wrote:

Bonjour, Pouvez vous m'expliquer comment je peux faire pour : " tricoter 3 mailles ensemble à l'endroit (sur l'endroit) sans les lâcher de l’aiguille, faire 1 jeté, 3 mailles ensemble à l'endroit dans les mêmes 3 mailles et lâcher ces mailles de l'aiguille gauche (= on a 3 mailles sur l'aiguille droite)" ? Car en fait j'ai le je te + les 3 mailles. Merci beaucoup

30.12.2019 - 23:02

DROPS Design answered:

Bonjour! Tricoter 3 mailles ensemble à l'endroit (sur l'endroit) sans les lâcher de l’aiguille > 1 maille sur l'aiguille droite, faire 1 jeté > deuxieme maille sur l'aiguille droite, 3 mailles ensemble à l'endroit dans les mêmes 3 mailles > 3 mailles sur l'aiguille droite et lâcher ces mailles de l'aiguille gauche. Bon tricot!

31.12.2019 - 19:10