Lena skrifaði:
"Fortsett mønsteret som før, samtidig på neste omgang starter fellingen på hver side av merketråden i hver side. Fell etter merketrådene slik det er vist i A.2 og fell før merketrådene slik det er vist i A.3." Har vanskelig for å skjønne dette. Skal jeg da felle totalt 4 ggr hver gang det er felling etter mønster? Og jeg feller kun før+etter de to merketrådene? Skal A1 også strikkes når det felles?
01.11.2020 - 17:07DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Ja, det felles 4 ganger på hver omgang, når du har strikket A.2 /A.3 1 gang i høyden har du felt 4 masker 4 ganger = 16 felt masker = 40-40-44 masker på pinnen. A.1 strikkes også. Oppskriften er også oversendt til design avd. slik at de evnt kan skrive teksten slik at det blir enklere å forstå. mvh DROPS design
09.11.2020 - 10:20
Agnes skrifaði:
Hej! Vad motsvarar DROPS strumpstickor nr 5 respektive nr 4 för mått och tjocklek?
13.12.2019 - 09:42DROPS Design svaraði:
Hej Agnes, det är 5 respektive 4 mm i tjocklek. Se mer info under stickor :)
16.12.2019 - 15:39
Caterina skrifaði:
Grazie infinite per il chiarimento. Ne chiedo un altro...premetto che è il mio primo paio di calze.. Mi spiegate per quale miracolo io ho 20 maglie per il tallone, diminuisco di 10 me ne rimangono 10 e il passaggio successivo che mi indicate è di riprendere 11 maglie per lato del tallone per un totale di 56 maglie mentre io me ne ritrovo solo 34? Se mi salvate dallo sconforto. Grazie ancora
19.11.2019 - 21:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Caterina. Dopo le diminuzioni per il tallone, ci sono 10 maglie. Ne riprende 11 da ciascun lato del tallone stesso e riprende anche a lavorare sulle 24 maglie della parte sopra del piede, maglie che aveva lasciato in sospeso.Quindi in tutto 10+11+11+24 = 56 maglie. Buon lavoro!
20.11.2019 - 08:58
Caterina skrifaði:
Le diminuzioni A2 e A3 vanno ripetute due volte? Partendo da 60 su giro dopo le 8 diminuzioni ho 52 su giro non 44..grazie per l aiuto
18.11.2019 - 00:40DROPS Design svaraði:
Buongiorno Caterina, si parte a lavorare A.2 e A.3 con 60 maglie: alla fine del primo giro di diminuzioni ci sono 56 maglie che diventeranno 52 dopo il nono giro, 48 dopo il diciassettesimo giro e 44 dopo il venticinquesimo giro. Buon lavoro!
18.11.2019 - 10:33
Winter Wanderers#winterwandererssocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar með áferðamynstri úr 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 203-31 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 8-8-10 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi og niður. SOKKUR: Fitjið upp 56-56-60 lykkjur á sokkaprjón 4 með 1 þræði Brushed Alpaca Silk og 1 þræði Fabel (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki á milli 1. og 2. lykkju í umferð (þ.e.a.s. á milli 2 lykkja slétt) og síðan er sett prjónamerki eftir 28-28-32 nýjar lykkjur (þ.e.a.s. á milli 2 lykkja slétt. Nú eru 28-28-32 lykkjur á milli 2 prjónamerkja í annarri hlið (= aftan á sokk). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur eins og áður, jafnframt í næstu umferð byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki eins og útskýrt er í A.2 og fækkið lykkjum á undan prjónamerki eins og útskýrt er í A.3. Þegar allt A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 40-40-44 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram hringinn með mynstri A.1. Þegar stykkið mælist 17-19-20 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 20-20-20 lykkjur og fækkið lykkjum jafnframt um 2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 18-18-20 lykkjur, prjónið næstu 20-20-24 lykkjur í mynstri eins og áður og setjið þær á þráð (= mitt ofan á fæti). Nú eru 18-18-20 lykkjur fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt aftan á hæl á milli 2 miðjulykkja. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtaka hefur verið gerð til loka eru prjónaðar upp 9-10-11 lykkjur hvoru megin við hæl og 20-20-24 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 46-48-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 20-20-24 lykkjur mitt á fæti. Prjónið síðan hringinn í áferð eins og áður yfir lykkjur ofan á fæti og prjónið sléttprjón undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 20-20-24 lykkjur á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-8 sinnum = 34-36-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru ca 4-4-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 18-18-20 lykkjur ofan á fæti og 16-18-20 lykkjur undir fæti. Prjónið sláttprjón hringinn, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-2-2 sinnum og í hverri umferð 5-5-6 sinnum = 6-8-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterwandererssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.