Gunnur Inga Einarsdóttir skrifaði:
Takk fyrir svarið. En ég er að prjóna fyrir 6/9 mánaða og ég fór beint í munstrið og lykkjufjöldinn stenst ekki? kær kveðja Gunnur Inga
22.10.2020 - 14:31
Gunnur Inga Einarsdóttir skrifaði:
Ég er í vandræðum með að halda lykkjufjöldanum réttum í þessu munstri (Prjónið síðan þannig: 2-2 lykkjur slétt, A.1). Hvað er átt við með 2-2 lykkjur slétt?
21.10.2020 - 15:14DROPS Design svaraði:
Blessuð Gunnur Inga. Vettlingurinn er gefinn upp í tveimur stærðum: 1/3 mánaða og 6/9 mánaða. Lykkjufjöldinn er því 40 lykkjur í 1/3 mánaða og 44 lykkjur í 6/9 mánaða. Ef þú ert að prjóna fyrir 1/3 mánaða þá fitjar þú upp 40 lykkjur og fylgir fyrri tölunni sem er gefin upp. Prjónar stroff í 4 cm. Þegar þú ert búin að skipta yfir á sokkaprjóna 3 þá prjónar þú 2 lykkjur slétt, síðan mynstur A.1 (= 19 lykkjur). Mynstur A.1 sérð þú neðar í uppskriftinni. Síðan prjónar þú áfram samkvæmt uppskrift. Vona að þetta hjálpi. Gangi þér vel.
22.10.2020 - 11:49
Annika Schygge skrifaði:
Ska omslaget i diagrammet stickas i bakre maskbågen .
02.05.2020 - 10:17DROPS Design svaraði:
Hej Nej det ska det inte, det ska bli ett hål så det stickas i främre maskbågen. Mvh DROPS Design
04.05.2020 - 12:05
Sonia skrifaði:
C'est juste que j'aurais bien aimé avoir les instructions pour refermer la deuxième moufle, je ne les connais pas par cœur.
12.02.2020 - 17:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Sonia, vous pouvez probablement vous aider de la première pour terminer la deuxième. Bonne continuation.
13.02.2020 - 11:39
Sonia skrifaði:
Bonjour j'ai commencé les mitaines en taille 12 mois et j'en suis à la deuxième mais les explications ont disparus ! Est-ce que vous avez retiré les grandes tailles entre temps ?
09.02.2020 - 11:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Sonia, nous les avons effectivement retirées car il y avait un problème avec l'emplacement du pouce. Bon tricot!
10.02.2020 - 10:32
Anja skrifaði:
Hallo liebes Team, warum sprecht ihr im Diagramm von Hin - und Rückrunden, es wird doch im Nadelspiel gestrickt. Versteh ich da was falsch?
03.01.2020 - 17:53DROPS Design svaraði:
Liebe Anja, Sie sind ja recht, die Diagrammtexten werden korrigiert, hier wird man nur Hinreihen stricken. Viel Spaß beim stricken!
06.01.2020 - 07:30
Monica skrifaði:
Lyft 1, 2 räta tills och dra den lyfta över = 1 maska Nästa varv ska det finnas kvar 2 maskor? Nåt är fel vad?
11.10.2019 - 21:38DROPS Design svaraði:
Hej Monica, det står inte att de 2 maskor skall stickas tills. Se här: lyft 1 maska som om den skulle stickas rät, sticka 2 rätmaskor, drag den lyfta maskan över. Lycka till :)
14.10.2019 - 08:55
Therese skrifaði:
Hello, in the false cable, should the ‘knit 2 together’ be knit 2. By passing a slip stitch overand knitting two together two stitches are reduced in each false cable. Only one stitch is remade on the next row. Looking forward to advice, thank you.
03.10.2019 - 13:29DROPS Design svaraði:
Dear Therese, you are right, the 3rd symbol should be read "knit 2 stitches", so that there are 2 stitches remaining there for the false cable. Diagram text will be edited, thanks for your feedback. Happy knitting!
03.10.2019 - 15:02
Stroll in the Park Mittens#strollintheparkmittens |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar fyrir börn með fölskum köðlum úr DROPS BabyMerino. Stærð 1 mánaða – 9 mánaða.
DROPS Baby 33-28 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VETTLINGUR: Fitjið upp 40-44 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með sítróna. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4 cm. Prjónið 1 umferð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið síðan þannig: 2-2 lykkjur slétt, A.1 (= 19 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 23-23 lykkjur, þessi merkja hliðarnar og eru notuð þegar lykkjum er fækkað efst í vettlingi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 8-10 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 7-8 sinnum = 12-12 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 6-6 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 10-13 cm. Prjónið hinn vettlinginn á sama hátt. SNÚRA: Klippið 3 þræði ca 1 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina á vettlingi (byrjið og endið mitt að framan). Endurtakið á hinum vettlingnum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strollintheparkmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.