Luhaib Alsammarraie skrifaði:
Hi, I read the pattern but I don’t see any reference to A3 chart although it’s displayed there with A1 and 2. Could I have missed it?
04.11.2024 - 16:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Alsammarraie, A.3 is used for front edges, read more under BANDS at the beginning of the written pattern. Happy knitting!
05.11.2024 - 09:14
Chantal FRERE skrifaði:
Bonjour, quelle laine peut remplacer la drops air pour le modèle ai-233. En effet, je crains la laine et l'alpaga. Je vous remercie de votre réponse. Bien cordialement, Chantal
11.01.2022 - 14:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Frere, retrouvez toutes les indications sur les alternatives ici; et utilisez notre convertisseur pour voir les différentes alternatives possibles, et les quantités correspondantes. Votre magasin saura vous conseiller de façon personnalisée, même par mail ou téléphone, si besoin. Bon tricot!
11.01.2022 - 14:35
Suzie skrifaði:
Bonjour, je ne sais pas comment faire du jacquard en même temps que des augmentations afin de conserver le motif de couleur différente, est-ce qu'il y a une vidéo explicative ? Merci beaucoup par avance...
04.01.2021 - 19:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Suzie, suivez simplement le diagramme, les augmentations (= jetés de l'avant-dernier et du dernier symbole de la légende) figurent dans A.2: ces jetés doivent être faits avec la couleur de la maille précédente (= la couleur du fond du motif de ce rang). Bon tricot!
05.01.2021 - 11:15
Winter Fjords Jacket#winterfjordsjacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-22 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (A.3 sýnir hvaða lit á að prjóna kantlykkjur að framan í). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Til að táknið fyrir uppslátt verði meira sýnilegt eru notuð 2 mismunandi tákn í mynsturteikningu. Báðir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir í næstu umferð svo ekki myndist gat. KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður í grunnlit í mynstri. Litirnir eru sýndir í mynsturteikningu A.3. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 9,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 10½-10½-9½-9½-10-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Kantur að framan er prjónaður í grunnlit í mynstri – sjá KANTUR AÐ FRAMAN! KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-112-116 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig (1. umferð er prjónuð frá réttu): 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram- og til baka þar til stroffið mælist 3 cm- stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 9-15-16-17-19-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 101-111-116-121-131-141 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 1 lykkja) yfir næstu lykkju, A.2 (= 5 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= alls 18-20-21-22-24-26 mynstureiningar A.2 á breidd), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 227-251-263-275-299-323 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 24 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Haldið áfram með litnum brúnn þar til stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-27-29-31-33 cm, aukið út 0-0-7-9-11-13 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 227-251-270-284-310-336 lykkjur. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-39-42-45-50-55 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 61-69-74-80-90-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 36-39-42-45-50-55 lykkjur (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 149-163-174-190-210-230 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með litnum brúnn, sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 157-171-182-198-218-238 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31 cm, aukið út um 23-25-26-30-30-34 lykkjur jafnt yfir = = 180-196-208-228-248-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjón þegar fellt er af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður mitt að framan. ERMI: Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum brúnn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-4-5 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-13-13-14-15 sinnum = 35-36-38-41-42-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-34-33-31-30 cm, aukið út um 5-4-6-7-6-9 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Ermin mælist alls 41-40-38-37-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterfjordsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.