Aneta skrifaði:
Wzór piękny. Szkoda że nie ma zdjęcia tyłu sukienki, by zobaczyć jak wygląda zapięcie na guzik.
15.08.2023 - 14:24
Edith Kristensen skrifaði:
Der kommer så mange fine opskrifter på dukke tøj men hvad med dukken. kan man ikke få opskrift på den . M.V.H. Edith Kristensen
13.12.2021 - 19:55
Edith skrifaði:
Hvordan får jeg selve dukken ???
04.12.2021 - 14:07DROPS Design svaraði:
Hei Edit. Da kan du ta en titt på oppskrift DROPS Children 35-12. Der er oppskriften på strikket dukke med kortbukser og tubesokker. mvh DROPS Design
07.12.2021 - 12:52
Michèle skrifaði:
Quelle ravissante robe. Avec mes restes de laine la poupée sera élégante le soir de Noël.
28.11.2020 - 17:24
Nicole skrifaði:
Wie werden denn die stillgelegten Maschen im Ärmel beendet??
18.11.2019 - 19:45DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, die Maschen der Ärmel muss man am Ende der Passe abketten - Deutsche Anleitung wurde korrigiert. Wenn Sie diese Maschen stillgelegt haben, dann ketten Sie alle Maschen einfach ab. Viel Spaß beim stricken!
19.11.2019 - 08:49
Christmas Cora#dropschristmascora |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður kjóll á dúkku úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, norrænu mynstri og garðaprjóni.
DROPS Children 35-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Kjóll: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 1,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir garðaprjón, fellið af fyrir 1 hnappagati í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað berustykki fram og til baka í garðaprjóni. Lykkjur eru auknar út jafnt yfir fyrir pils og síðan er prjónað í hring á hringprjón með mynstri, áður en prjónaður er kantur fyrir uppábrot og faldur með mynstri. BERUSTYKKI: Fitjið upp 52 lykkjur á hringprjón 3 með litnum rauður. Stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónað er frá miðju að aftan. Í fyrstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig: Prjónið 8 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 16 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki og endið með 8 lykkjum (= hálft bakstykki). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir hvorri ermi = 56 lykkjur (= 12 lykkjur í hvorri ermi). Í næstu umferð (= frá réttu) er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1, í hverri umferð frá réttu alls 9 sinnum = 128 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 4 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið e.t.v. áfram þar til stykkið mælist 4 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og lykkjum er aukið út jafnt yfir fyrir pilsi þannig: Prjónið 17 lykkjur slétt þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 (= hálft bakstykki) = 26 lykkjur, fellið af næstu 30 lykkjurnar fyrir ermi, prjónið 34 lykkjur slétt þar sem jafnframt er aukið út um 19 lykkjur jafnt yfir (= framstykki) = 53 lykkjur, fellið af næstu 30 lykkjurnar fyrir ermi, prjónið 17 lykkjur slétt þar sem jafnframt er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 27 lykkjur. Nú eru 106 lykkjur. Stykkið er síðan prjónað í hring. Prjónið 1 umferð slétt og fitjið upp 4 lykkjur undir hvorri ermi = 114 lykkjur. PILS: Prjónið mynstur í hring eftir A.1 (= 6 lykkjur = 19 mynstureiningar á breidd). Þegar stykkið mælist 9½ cm frá þar sem pilsið skiptist frá ermum (nú eru eftir ca 7½ cm af lengd á kjól – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd/sídd), prjónið A.2 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjurnar (= 19 sinnum á breidd). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 17 cm frá þar sem pilsið skiptist frá ermum. Prjóni nú kant fyrir uppábrot með litnum natur þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. FALDUR: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 19 sinnum á breidd). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið áfram með litnum rauður. Prjónið þar til faldurinn mælist 8 cm frá kanti fyrir uppábroti, fellið síðan af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist alls ca 31 cm (meðtalinn faldur) frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Brjótið faldinn niður neðst niðri á pilsi að röngu á kjól og saumið við kjólinn með litnum rauður. Saumið tölu í mitt að aftan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropschristmascora eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.