Sweet Heather |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-18 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. GATARÖÐ: Útaukning fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki endar á undan útaukning á ermum. Til þess að gataröðin sem er gerð með útaukningu innan við A.2 haldi áfram, prjónið niður að fram- og bakstykki með gatamynstri (A.3/A.4) innan við A.2 þannig: Prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2 og ermi á bakstykki og þegar eftir eru 2 lykkjur á undan síðustu einingu með A.2 á framstykki. Prjónið A.4 eftir fyrstu mynstureiningu A.2 á framstykki og á eftir erum og A.2 á bakstykki. ÚTAUKNING-1 (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á bakstykki og framstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt þannig að það myndist gat. Í hvert skipti sem aukið er út, eykst fjöldi lykkja í sléttprjóni á milli 2 eininga A.2 á bakstykki og framstykki. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 206 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 6,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 138-138-146-146-154-154 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 134-134-142-142-150-150 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur þannig: 1 lykkja slétt (= miðjulykkja á bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóni, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðju lykkja á framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, (= hálft bakstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-26-30-35-38 sinnum = 294-326-350-382-430-454 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með sömu útaukningu fyrir laskalínu á ermum 4-4-5-3-0-1 sinnum til viðbótar (= alls 24-28-31-33-35-39 útaukningar á ermum). Á framstykki og bakstykki er nú prjónað mynstur A.3 og A.4, svo að GATARÖÐ haldi áfram - sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð eins og áður án útaukninga. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 310-342-370-394-430-458 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 48-52-56-60-67-70 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-103-111-119-133-139 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 47-51-55-59-66-69 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 206-222-242-258-290-306 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður, þ.e.a.s. prjónið þannig: Sléttprjón fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið – sjá ÚRTAKA-1, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón fram að næstu mynstureiningu A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt lykkjum hvoru megin við prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-1, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á bakstykki og framstykki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri) og fækkað hefur verið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur færri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn er allan tímann sá sami. Haldið svona áfram með úrtöku og útaukningu í annarri hverri umferð alls 31-31-34-34-37-38 sinnum, þar til allt mynstrið í hliðum er horfið. Eftir umferð þar sem lykkjur í mynstri hafa horfið í hliðum, prjónið eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir. Þ.e.a.s. þegar ekki er lengur pláss til að prjóna úrtöku og uppslátt í gatamynstri í A.2, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. Þegar búið er að prjóna þannig að allt mynstrið í hliðum er horfið mælist stykkið ca 22-22-24-24-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið nú sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu (= ca 6-6-4-4-2-1 cm með sléttprjóni eftir mynstri í hlið). Aukið nú út um 30-34-38-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 236-256-280-296-332-352 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 60-68-74-78-82-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-76-84-88-94-104 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermum – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 0-4-2-1½-1-1 cm millibili alls 1-4-7-7-9-12 sinnum (einungis 1 úrtaka í stærð S) = 66-68-70-74-76-80 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-26-25-23-22 cm, aukið út um 6-8-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 72-76-76-80-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 32-31-29-28-26-25 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (30)
Bonjour, Pour l'empiècement, vous dites de tricoter A3 et A4, mais il n'y a pas de diagrammes portant ces numéros. Comment fait t'on ? Merci
17.11.2019 - 12:02DROPS Design answered:
Bonjour Mme Neille, vous trouverez les diagrammes A.3 et A.4 à droite du schéma des mesures, juste sous la manche, ce sont de petits diagrammes qui se tricotent sur 2 mailles. Bon tricot!
18.11.2019 - 10:14I am looking at this pattern but i am kind of confused to what size i would need for someone that is 50 inches around the chest area can you please help me i think i know what size but i would like to have someone check for me to see if i am right
20.08.2019 - 22:12DROPS Design answered:
Hi Veronica! 50 inches is 127 cm, so you should follow size XXL. Happy knitting!
21.08.2019 - 01:10Jeg har heller ikke diagram 3 og 4. Nu har vi set efter begge to på hver sin enhed.
05.08.2019 - 13:40DROPS Design answered:
Hej Helene, diagram A.3 og A.4 er til højre for måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
09.08.2019 - 08:59Hej. Jeg og roder med den opskrift på Sweet Heather Drops/201/18 Kan ikke få halsen til at gå op Ender med 2ret masker Når jeg er ved de sidste 2 masker Har sat med det i nogen dage Måske i kan sætte det mere op Så man kan finde ud af det. Der jeg vil for første gang strikke noget til mig selv. Håber at i kan hjælpe mig.
21.07.2019 - 15:08DROPS Design answered:
Hej Gitte, både vi og din DROPS forhandler kan hjælpe dig igang, men vi skal vide hvilken størrelse du strikker :)
30.09.2019 - 09:14Mangler diagram A3 til A4 på denne opskrift
10.07.2019 - 10:58DROPS Design answered:
Hej. De finns längst ner, till höger om måttskissen. Lycka till!
10.07.2019 - 12:32J'ai remarquer qu'il y a des icaones sur vos patron ( diamant et horloge) et je me demandais ce qu'il voulais dire......j'ai chercher l'explication sur le site mais je ne l'ai pas trouver :-)
27.04.2019 - 14:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Richard, l'horloge signifie que le modèle a été publié récemment, le diamant que ce modèle est visible sur la page d'accueil, pour chaque rubrique/type de modèle. Bon tricot!
29.04.2019 - 08:58Es un sueter muy lindo, me encantan los diseños y los patrones que tienen con instrucciones muy precisas, gracias por compartirlos
26.04.2019 - 17:56Beau raglan au point ajouré.
05.01.2019 - 18:50Bella lavorazione sembrano ali di farfalla
29.12.2018 - 22:16Je veux-je veux !!!
12.12.2018 - 21:32