DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 400.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Heather Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-19
DROPS Design: Mynstur r-748
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 06, bleikur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Blóm (bleikur) NR 616: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 400.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

GATARÖÐ:
Útaukning fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki lýkur á undan útaukningu á ermum. Til þess að gataröðin sem er gerð með útaukningum innan við A.2 haldi áfram, prjónið niður að fram- og bakstykki með gatamynstri (A.3/A.4) innan við A.2 þannig:
Prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2 og ermi á bakstykki og þegar eftir eru 2 lykkjur á undan síðustu einingu með A.2 á framstykki.
Prjónið A.4 eftir fyrstu mynstureiningu A.2 á framstykki og á eftir erum og A.2 á bakstykki.

ÚTAUKNING-1 (á við um fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið þannig að það myndist gat. Í hvert skipti sem aukið er út, eykst fjöldi lykkja í sléttprjóni á milli 2 eininga A.2 á bakstykki og á milli A.2 og 5 kantlykkjum að framan á framstykkjum.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 217 lykkjur), mínus kanta að framan og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 6,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið á hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð).

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8½-8½-9-9½ cm millibili.

-------------------------------------------------------


BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 149-149-157-157-165-165 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 145-145-153-153-161-161 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðju lykkja á bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-26-30-35-38 sinnum = 305-337-361-393-441-465 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sömu útaukningu fyrir laskalínu á ermum 4-4-5-3-0-1 sinnum til viðbótar (= alls 24-28-31-33-35-39 útaukningar á ermum). Á framstykki og bakstykki er nú prjónað mynstur A.3 og A.4, þannig að haldið er áfram með GATARÖÐ – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð eins og áður án útaukningar. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 321-353-381-405-441-469 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður að miðju að framan.
Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 53-57-61-65-72-75 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-103-111-119-133-139 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 53-57-61-65-72-75 lykkjur sem eftir eru í umferð (= framstykki).
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 217-233-253-269-301-317 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, þ.e.a.s. prjónið þannig (frá réttu): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið – sjá ÚRTAKA-1, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón fram að næstu mynstureiningu A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-1, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á framstykki og bakstykki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri) og fækkað hefur verið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur færri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn er allan tímann sá sami. Haldið svona áfram með úrtöku og útaukningu í annarri hverri umferð alls 31-31-34-34-37-38 sinnum, þar til allt mynstrið í hliðum er horfið. Eftir umferð þar sem lykkjur í mynstri hafa horfið í hliðum, prjónið eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir. Þ.e.a.s. þegar ekki er lengur pláss til að prjóna úrtöku og uppslátt í gatamynstri í A.2, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Þegar búið er að prjóna þannig að allt mynstrið í hliðum er horfið mælist stykkið ca 22-22-24-24-26-27 cm frá skiptingu.
Prjónið nú sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu (= ca 6-6-4-4-2-1 cm með sléttprjóni eftir mynstri í hlið). Aukið nú út um 31-35-39-39-43-47 lykkjur jafnt yfir = 248-268-292-308-344-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 60-68-74-78-82-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-76-84-88-94-104 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermum – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 0-4-2-1½-1-1 cm millibili alls 1-4-7-7-9-12 sinnum (einungis 1 úrtaka í stærð S) = 66-68-70-74-76-80 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-26-25-23-22 cm, aukið út um 6-8-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 72-76-76-80-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 32-31-29-28-26-25 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.04.2019
Leiðrétting: KANTUR Í HÁLSI:.. A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjurnar, 1 lykkja slétt (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjurnar.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = Hnútur: Prjónið 1 lykkju slétt fram og til baka í sömu lykkju þar til aukið hefur verið út frá 1 til 15 lykkjur. Nú ertu með 5 lykkjur á hægri prjón. Steypið 2. lykkju (næst ystu lykkju á hægri prjón) yfir ystu lykkju, steypið 3. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 4. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 5. lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 hnútur).
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Lynn wrote:

In the directions the pattern says to follow A.3 and A.4 but the pattern only has an A.1 and an A.2. Where do I get A. 3 and A.4?

24.09.2023 - 10:49

DROPS Design answered:

Dear Lynn! Small diagrams A.3 and A.4 are next to the measurements drawing below. Happy knitting!

24.09.2023 - 16:54

country flag Bea Sykes wrote:

Many thanks for your quick reply, clarifying what was an unsolvable problem to me.

01.09.2022 - 13:41

country flag Bea Sykes wrote:

Size medium.Thank you

01.09.2022 - 13:01

DROPS Design answered:

Thanks! You will then work as follows: 5 band sts, knit 1, A.1 (= 28 sts), knit 1, (purl 2/knit 2) over the next 8 stitches, purl 2, knit 1, A.1 (= 28 sts), knit 1 (mid stitch on back piece), A.1 (= 28 sts) , knit 1, (purl 2/knit 2) over the next 8 stitches, purl 2, knit 1, A.1 (= 28 sts), knit 1, 5 band stitches = 5+1+28+1+8+2+1+28+1+28+1+8+2+1+28+1+5= 149 sts. Can this help?

01.09.2022 - 13:17

country flag Bea Sykes wrote:

After many attempts to start pattern on neck edge I cannot get the first row correct.I am not a novice knitter being 83 years of age and have knitted most of my life.Previously I have never found a problem with Drops patterns and have muskat and buttons to start.Help.

01.09.2022 - 11:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sykes, maybe you could tell us which size you are making? We can then give you the detail for this size. Thanks for your comprehension.

01.09.2022 - 11:34

country flag Nadette wrote:

Bonjour, je ne trouve pas dans les explications à quel endroit sont tricotées les augmentations -2. Merci de votre réponse

11.03.2022 - 21:52

DROPS Design answered:

Bonjour Nadette, vous pourrez les utiliser par exemple à la fin du bas du gilet, lorsque vous devez augmenter 31-35-39-39-43-47 mailles à intervalles réguliers . Bon tricot!

14.03.2022 - 10:05

country flag Petra wrote:

Hallo! Zu Beginn des Rumpfes muss ich nach Stilllegung der Maschen für die Ärmel 8 M anschlagen. Muss ich dann in der nächsten Hinreihe von diesen Maschen gleich wieder 2 M abnehmen? Vielen Dank!

16.01.2022 - 13:29

DROPS Design answered:

Liebe Petra, genau, bei jeder Hinreihe beim Rumpfteil wird man 2 Maschen unter jede Ärmel abnehmen - siehe ZUNAHMETIPP-1 (gilt für das Rumpfteil):; und dazu vor + nach den Diagrammen zunehmen, damit die Maschenanzahl gleich bleibt). Viel Spaß beim stricken!

17.01.2022 - 09:05

country flag Judy wrote:

Is A3 and A4 worked into A2 from the beginning of the yoke

03.11.2021 - 17:15

DROPS Design answered:

Dear Judy, A.3 and A.4 are worked on each side of A.2, they are working to keep the eyelets of the raglan increases without increasing (yarn overs will continue but since you decrease 1 st you won't increase anymore). Happy knitting!

04.11.2021 - 06:45

country flag Edwige Bruche wrote:

Bonjour, dos et devant je voulais savoir le jeté entre A2 ça augmente le nombre de maille ? Du coup quand on a augmenté 31 fois on a trop de mailles ? G du me planter !!! Merciii

24.11.2020 - 21:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bruche, effectivement, le jeté de avant les A.2 + après les A.2 augmente le nombre de mailles, mais en même temps, au milieu sous les manches, vous diminuez 2 m (= 1 de chaque côté du marqueur), ainsi votre nombre de mailles doit rester le même et le point fantaisie va être décalé vers les côtés et vous n'aurez bientôt plus assez de mailles pour le tricoter - on voit ces diminutions/augmentations sur le côté gauche du gilet sur la 3ème photo. Bon tricot!

25.11.2020 - 07:34

country flag Jutta Gehner wrote:

Hallo, habe mir gerade die Anleitung durchgelesen. Wird die Jacke ohne verkürzte Reihen gearbeitet? DANKE für eure Antwort. LG Jutta

04.09.2020 - 06:15

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gehner, ja genau, es werden keine verürzte Reihen gestrickt - dh Halsausschnitt wird vorne und hinten gleich sein. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2020 - 08:24

country flag Susan wrote:

It says on the pattern that there are corrections. I can’t find them. Could you let me know what they are?

23.07.2019 - 20:11