Rivage Jacket#rivagejacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-21 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5, A.6 og A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 134 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með þeim 124 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kant að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykki og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri á ermum. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu þegar búið er að prjóna kant í hálsmáli í garðaprjóni. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-9-8-8 cm millibili. 1 hnappagat = fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 130-134-138-142-148-156 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að frama í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-26-22-38-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan = 136-160-160-180-180-200 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-52-52-62-62-72 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 25-31-31-36-36-41 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við prjónamerki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki). Haldið svona áfram með mynstur með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, sléttprjón á fram- og bakstykki og A.1 á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir laskalínu áfram í annarri hverri umferð (þ.e.a.s í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 25-25-31-31-37-37 sinnum við hvert prjónamerki (meðtaldar útaukningar sem eru útskýrðar í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og mynsturteikning sýnir á ermum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með gatamynstur á ermum eins og útskýrt er að neðan: GATAMYNSTUR ERMI: STÆRÐ S og M: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L og XL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermar þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þega A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 72 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferðin í A.5 til A.7 er eftir, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 336-360-408-428-476-496 lykkjur í umferð. Haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er að ofan þar til síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir. Nú skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 54-57-64-67-77-81 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 98-104-118-124-144-152 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 54-57-64-67-77-81 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Berustykkið mælist nú ca 20-20-24-24-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt fram. Takið frá öll prjónamerki í stykkinu. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-234-262-278-318-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hliðum. Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 242-254-282-298-338-358 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 58-62-70-74-82-86 lykkjur jafnt yfir = 300-316-352-372-420-444 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-71-81-85-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-79-89-95-99-103 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið þannig: Prjónið 4-7-6-9-5-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.8 (= 5 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 12 lykkjum) og endið með 4-7-6-9-5-7 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur (gatamynstrið heldur nú fallega áfram yfir ermina). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-13-17-19-20-21 sinnum = 51-53-55-57-59-61 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-40-37-37-35-35 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-15-17-19-17-19 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-76-76-80 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-44-41-41-39-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rivagejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.