Roberta skrifaði:
Salve, secondo me c'è un errore a questo livello: "Continuare il motivo traforato come spiegato sopra dopo l’ultima riga di A.5 e A.7. "A mio avviso manca scritto che per iniziare a lavorare il diagramma A.5, sulla parte del corpo non deve essere eseguito nessun aumento per il raglan anzi diminuire. Infatti si hanno 73 maglie per le maniche ciascuna e 102 maglie per il corpo cad. tot.350 ma se eseguo lo schema A.5 su quelle 102 maglie del corpo non devo fare alcun aumento.
24.12.2019 - 20:37
IDRAC skrifaði:
BONJOUR COMMENT TROUVER DES MODELES A TRICOTER SANS AIGUILLE CIRCULAIRE ? CAR JE N'AIME PAS CETTE TECHNIQUE. COMMENT FAIRE MES RECHERCHES PARMIS LES MODELES? MERCI PAR AVANCE
17.12.2019 - 10:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Idrac, vous trouverez ici des informations relatives aux aiguilles circulaires. Bon tricot!
17.12.2019 - 14:45
Claudine Charette skrifaði:
L'échantillon se fait-il avec les aiguilles no3 ?
23.11.2019 - 17:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Charette, l'échantillon va se faire avec les aiguilles les plus grosses, donc 3 ici, mais pensez bien à ajuster la taille des aiguilles si besoin. Bon tricot!
25.11.2019 - 08:22
Päivi Reijonen skrifaði:
Hei, neulon kokoa L, olen kohdassa KAIKKI KOOT En ymmärrä mitä pitsineulekuviota jatkan ja mistä kuviosta!? Kiitos!
10.11.2019 - 09:28DROPS Design svaraði:
Hei, jatkat piirrosten A.5-A.7 mallineuletta, kunnes sitä on jäljellä 1 kerros.
18.12.2019 - 16:57
Sharyn skrifaði:
What does marker thread mean? Does it just mean the placed marker?
25.09.2019 - 07:20DROPS Design svaraði:
Dear Sharyn, you can insert a marker or - as described in this pattern a marker thread; you can see these marker threads for raglan in this video showing how to work a jumper top down. Happy knitting!
25.09.2019 - 08:23
Pia Jakobsen skrifaði:
Hej igen og tak for hurtigt svar sidst :) Jeg forstår simpelthen ikke diagrammerne 5 og 7 - det er de lodrette hulrikker i h.h.v. Højre og venstre side. Jeg kan ikke forstå hvorfor disse hulrækker skal være der, og jeg bliver ikke klogere ved at se på fotoet i opskriften.
03.09.2019 - 09:45DROPS Design svaraði:
Hej Pia, det er de huller du ser i raglanovergangen, det giver sig når du kommer til ærmerne. God fornøjelse! :)
06.09.2019 - 08:32
Pia Jakobsen skrifaði:
Hvor er diagram A1, kan ikke finde det i opskriften, ser kun 2, 3, 4 og 5
27.08.2019 - 13:33DROPS Design svaraði:
Hej. Det är det översta av diagrammen. Lycka till!
28.08.2019 - 08:33
Jessica Former skrifaði:
Het proeflapje wordt dat gebreid met naald 2,5 of naald 3.0.
01.07.2019 - 13:23DROPS Design svaraði:
Dag Jessica,
Het proeflapje brei je met naald 3 mm; de naald waarmee je tricotsteek breit.
24.07.2019 - 08:39
Gisela skrifaði:
To Vicky Williams : the number of the short sleeve version is Drops 199-23. There you will find the number of balls.
24.06.2019 - 17:16
Antje skrifaði:
Hallo, ich habe in Größe L grade 31 Raglanzunahmen gemacht und komme jetzt an den Teil von A5 und A7, wo seitlich keine Zunahme mehr stattfindet. Was mache ich in diesen Runden mit den Maschen im Rumpfteil? Ebenfalls Umschlag und 2 rechts zusammenstricken? Oder habe ich falsch gezählt und da sind noch weitere Zunahmen zu machen? Viele Grüße Antje Huber
27.05.2019 - 16:38DROPS Design svaraði:
Liebe Antje, wenn die Raglanzunahmen fertig sind, stricken Sie die Löcher wie in A.5 und A.7 bei den Ärmeln, beim Vorder- und Rückenteil stricken Sie einfach glatt (= kein Loch mehr), aber wenn Sie die Löcher weiterstricken möchten, können Sie auch beim Vorder und Rückenteil 1 Umschlag + 1 Abnahme stricken. Viel Spaß beim stricken!
28.05.2019 - 09:59
Rivage#rivagesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Peysa prjónuð með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5, A.6 og A.7). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykki og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri á ermum. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-138-146 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-26-22-38-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-150-150-170-170-190 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-52-52-62-62-72 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 40-52-52-62-62-72 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í byrjun á umferð (= bakstykki, aukið út fyrir laskalínu á undan prjónamerki. Haldið svona áfram með mynstur með sléttprjóni á fram- og bakstykki og A.1 á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir laskalínu áfram í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 25-25-31-31-37-37 sinnum við hvert prjónamerki (meðtaldar útaukningar sem eru útskýrðar í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og mynsturteikning sýnir á ermum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með gatamynstur á ermum eins og útskýrt er að neðan: GATAMYNSTUR ERMI: STÆRÐ S og M: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L og XL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermar þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þega A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 72 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferðin í A.5 til A.7 er eftir, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið eru 326-350-398-418-466-486 lykkjur í umferð. Haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er að ofan þar til síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir. Nú skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar og síðasta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 4-1-2-0-4-3 lykkjur slétt, setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 98-104-118-124-144-152 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 94-103-116-124-140-149 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Berustykkið mælist nú ca 20-20-24-24-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt fram. Takið frá öll prjónamerki í stykkinu og klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-224-252-268-308-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 232-244-272-288-328-348 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28-30-28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-60-68-72-80-84 lykkjur jafnt yfir = 288-304-340-360-408-432 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-71-81-85-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-79-89-95-99-103 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið þannig: Prjónið 4-7-6-9-5-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.8 (= 5 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 12 lykkjum) og endið með 4-7-6-9-5-7 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur (gatamynstrið heldur nú fallega áfram yfir ermina). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-13-17-19-20-21 sinnum = 51-53-55-57-59-61 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-40-37-37-35-35 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-15-17-19-17-19 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-76-76-80 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-44-41-41-39-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rivagesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.