Gonny skrifaði:
A very versatile basic. I love that it was knit from side to side.
29.12.2018 - 07:36
Jola skrifaði:
A great pattern for any season
26.12.2018 - 22:20
Eve skrifaði:
What weight yarn is it?
18.12.2018 - 02:40
Sylwia skrifaði:
Simple and beautiful, i like it so much!
15.12.2018 - 20:32
Dagmar Sinden skrifaði:
A design that never dates
14.12.2018 - 12:51
Elisa skrifaði:
Comme un confortable cocon !
13.12.2018 - 16:34
Liesestrick66 skrifaði:
Schlicht und elegant
11.12.2018 - 22:11
Daily Wonder#dailywondersweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Peysa prjónuð frá hlið úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með uppslætti. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Passið uppá að flíkin liggi flöt þegar málin eru tekin. Þar sem þessi flík er prjónuð frá hlið er mjög mikilvægt að málin sem tekin eru jafnóðum séu mjög nákvæm og tekin á tilnefndum stöðum. Sjá teikningu með máli og mynsturteikningu A.4. Sjá mynsturteikningu A.1 þar sem er teiknað inn hvar prjónamerkin á fram- og bakstykki á að vera og hvar prjónamerki fyrir hálsmáli á að vera. Öll mál sem varða fram- og bakstykki og háls eru gerð mitt á stykkinu og ekki við hálsinn, til að koma í veg fyrir að hálsinn/breiddin á fram- og bakstykki verði ekki röng. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI : UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjóni . UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið og prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman og 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 2-3 – ATH: Frá 2. umferð eru lykkjur með uppslætti alltaf slétt lykkja. Uppslátturinn liggur yfir lykkjuna og er prjónaður slétt saman með lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í eitt stykki frá ermi og fram að hálsmáli, þar skiptist stykkið og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig þar til op í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Stykkið er sett aftur saman og síðan er það prjónað í eitt stykki. Mjög mikilvægt er að taka nákvæm mál á meðan prjónað er, sjá LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. PEYSA: Fitjið upp 39-41-43-43-45-45 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky (= neðst niðri á ermi). Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 lykkju með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-11-11-13-13-15 sinnum = 59-63-65-69-71-75 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-39-37 cm, fitjið laust upp lykkjur í hvorri hlið í lok hverrar umferðar þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 4 lykkjur 6 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 30-30-32-32-36-36 lykkjur 1 sinni. Nú hafa verið fitjaðar upp lykkjur fyrir fram- og bakstykki, setjið eitt prjónamerki í miðju á síðustu lykkjum sem fitjaðar voru upp, þetta er hliðin á fram- og bakstykki og mælt héðan – sjá LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og sjá mynsturteikningu A.1 punkt A! Það eru 175-179-185-189-199-203 lykkjur í umferð. Haldið áfram í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 13-15-17-19-22-25 cm frá prjónamerki í hlið (frá punkti A til punkt B sjá mynsturteikningu A.1), prjónið næstu umferð þannig (stillið af þannig að þessi umferð sé prjónuð frá röngu): Prjónið 87-89-92-94-99-101 lykkjur (= bakstykki) og setjið síðan þessar lykkjur á þráð, fellið af 5 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 83-85-88-90-95-97 lykkjur (= framstykki). Setjið merkiþráð mitt í stykkið hér, hér á að mæla hálsmál frá (staðsetjið merkiþráðinn þannig að það sé beint ofan við prjónamerki í hlið, sjá mynsturteikningu A.1, það eru 13-15-17-19-22-25 cm á milli prjónamerkis (punktur A) og merkiþráðar (punktur B). FRAMSTYKKI: Það eru 83-85-88-90-95-97 lykkjur í umferð. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: 1 lykkja 8 sinnum = 75-77-80-82-87-89 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 15-15-15-16-16-16 cm frá prjónamerki (punktur B) og það eru 28-30-32-35-38-41 cm frá prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki (punktur A). Fitjið laust upp fyrir hálsmáli í hverri umferð við háls þannig: 1 lykkja 8 sinnum og 5 lykkjur 1 sinni = 88-90-93-95-100-102 lykkjur. Hálsinn mælist ca 19-19-19-20-20-20 cm frá merkiþræði (frá punkti B til punkts C). Setjið síðan allar lykkjur á þráð, nú á að prjóna áfram yfir bakstykki. Klippið frá. BAKSTYKKI: Setjið 87-89-92-94-99-101 lykkjur af þræði á hringprjón. Prjónið síðan bakstykki þar til op í hálsi mælist 19-19-19-20-20-20 cm (sjá mynsturteikningu A.1 punktur C) – stillið af að prjónað sé jafn langt eins og á framstykki. Nú er hægt að setja stykkin á sama prjón og prjóna í eitt stykki héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 88-90-93-95-100-102 lykkjur af þræði á sama hringprjón og bakstykki = 175-179-185-189-199-203 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til framstykki/bakstykki mælist 45-49-53-58-64-70 cm frá prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki (frá punkt A til punkt D). Fellið nú laust af í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: 30-30-32-32-36-36 lykkjur 1 sinni, 4 lykkjur 6 sinnum og 2 lykkjur 2 sinnum = 59-63-65-69-71-75 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki hér, héðan er nú mælt. Prjónið alveg sömu lengd yfir lykkjur á þessari ermi eins og fyrri ermi á eftir síðustu útaukningu, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 lykkju með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-11-11-13-13-15 sinnum = 39-41-43-43-45-45 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 44-43-42-41-39-37 cm frá prjónamerki og fellið laust af. ATH! Þegar fellt er af, prjónið uppslátturinn saman með lykkjum sem liggja yfir JAFNFRAMT því sem fellt er af. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið þannig að stykkið liggi með röngu að röngu. Byrjið að sauma lengst út á ermi. Saumið í ystu lykkjubogana meðfram allri erminni og síðan niður meðfram hlið á framstykki/bakstykki. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Nú á að prjóna upp lykkjur í kringum allt hálsmál innan við 1 kantlykkju (passið uppá að prjónað sé upp í brugðnu lykkjurnar við miðju að framan og meðfram hálsmáli á bakstykki). Prjónið upp ca 90-106 lykkjur frá réttu með stuttum hringprjóni 4,5 og Sky. Prjónið 8 umferðir sléttprjón og fellið laust af. Kanturinn á að rúllast upp. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dailywondersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.