Elisabeth Zwickl skrifaði:
Ich habe heute diese schöne Mütze als Weihnachtsgeschenk gestrickt. Wunderbare Anleitung.
20.12.2018 - 23:35
Yulia skrifaði:
Vilken underbar ide med julkalender! Tack så jättemycket :-)
03.12.2018 - 12:04
Manon skrifaði:
To download, try to "print" to create a PDF. If it works, you will be able to save it on your PC.
02.12.2018 - 19:48
Pamela skrifaði:
I can’t figure out how to download the pattern, I don’t have a printer!
02.12.2018 - 03:28DROPS Design svaraði:
Dear Pamela, our pattern can only be printed, but if you have no printer you can choose a virtual printer to save them as a .PDF file. Happy knitting!
03.12.2018 - 09:23Lu Widener skrifaði:
Absolutely beautiful! You offer the most inspirational designs!
01.12.2018 - 19:43
Judy Laquidara skrifaði:
Very cute! Thank you so much!
01.12.2018 - 19:03
GIna Wane skrifaði:
Tack sa mycket! Jatte fint. Miles de gracias. Exactamente el patron que estaba buscando por mi nieto! Det ar sa kul att vanta varje dag for en julklapp ifran Garn Studio. Tack, tack.
01.12.2018 - 17:26
Janine skrifaði:
Gefällt mir sehr gut - danke
01.12.2018 - 14:40Linda skrifaði:
What an amazing start to the Advent calendar, thank you 🤶
01.12.2018 - 12:27
Bea skrifaði:
Ein sehr schöner Beginn 😍 Ich mag die norwegermuster sehr gerne
01.12.2018 - 12:16
Double Trouble#doubletroublehat |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð húfa / jólasveinahúfa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og skúf. Stærð 2 – 12 ára. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1428 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 12. og 13. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 13. hverja lykkju. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 104-112-112-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 96-104-104-112 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 12-13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör er aukið út um 0-1-1-2 lykkjur jafnt yfir = 96-105-105-114 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 hringinn (= 32-35-35-38 mynstureiningar með 3 lykkjum). Í umferð merktri með ör er fækkað um 0-1-1-2 lykkjur jafnt yfir = 96-104-104-112 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn (= 12-13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum rauður til loka. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið 1 prjónamerki eftir 48-52-52-56 lykkjur (prjónamerki merkja hliðar). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 23-25-25-27 sinnum = 4 lykkjur á prjóni í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 38-41-42-45 cm ofan frá og niður. SKÚFUR: 1 skúfur = Klippið þræði í óskaðri lengd (t.d. 30 stykki) með litnum rauður ca 20 cm. Klippið síðan 1 rauðan þráð ca 23 cm til að sauma skúfinn með. Leggið þennan þráð mitt í hina þræðina. Leggið þræðina 20 cm tvöfalda og hnýtið með nýjum þræði með litnum rauður utan um skúfinn (ca 1½ cm frá toppi). Festið þræðina vel og saumið síðan skúfinn á húfuna. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #doubletroublehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1428
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.