Lisa skrifaði:
Jag får en jättekonstig ärm när jag ökar med 1 cm mellanrum. Ser ut som att ökningarna sitter för tätt. Ska det verkligen vara så? 🤔
20.06.2020 - 13:55
Vinnie Larsen skrifaði:
Når jeg starter på bærestykket, er der et OBS " på 2. Pind i diagram A.2a tages der ud fra vangen" ? Hvordan og hvor meget? Og, hvordan mindskes antal masker når diagram A.1a til A.3a er strikket fra 437 masker til 411 Håber i kan hjælpe mig Venlig hilsen Vinnie
06.06.2020 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hei Vinnie. Økninger: Se i det diagrammet du strikker, da ser du et oval ikon. Det betyr at mellom 2 masker lages det 1 kast fra vrangen, kastet strikkes vridd på neste pinne, det skal IKKE bli hull. Antallet ser du i diagrammet x med hvor mange ganger diagrammet strikkes. Fellinger: Se i det diagrammet du strikker, så ser du at i de siste radene av diagrammene så er det et ikon (sort trekantet ikon over 3 masker) som forklarer hvordan du minsker masker. Slik felles det: Ta 2 masker løs over på høyre pinne som om de skulle strikkes rett sammen, 1 rett, løft de 2 løse maskene over masken som ble strikket = 2 masker felt pr gang diagrammet strikkes. God Fornøyelse!
09.06.2020 - 09:50
Andrea skrifaði:
Please!! Do you have written directions instead of those maddening charts for the lovely yoke pattern? I have seen many of these and they are impossible to follow---too small, too hard even when I try to enlarge them to not waste a lot of time trying to recall which box means what stitch!!!! These charts are really awful!! It wouldn't be hard to use the old, tried and true method of giving written pattern directions so I can just follow the numbered rows!!! I've been knitting over 50 years !!!
06.01.2020 - 16:44DROPS Design svaraði:
Dear Andrea, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!
07.01.2020 - 09:16
Inge skrifaði:
Om de pas te beginnen (grootste maat) staat er (bies) dan A1a (=2 st), dan 21x A2a, dan A3a (=1st).\r\nA1a kan ik in het patroon vinden, maar bestaat uit 24 steken, I.p.v. 2st.\r\nA2a en A3a geheel niet.\r\nEven als A2b en A3b kan ik niet vinden.\r\nMist er wat? Hoop snel wat te horen, anders kan ik niet verder.
19.11.2018 - 17:35DROPS Design svaraði:
Dag Inge,
Het lijkt er inderdaad op dat de telpatronen niet op de juiste manier toegevoegd zijn. Heb het doorgegeven aan de ontwerp afdeling ter correctie en ik hoop op een spoedige reactie.
22.11.2018 - 11:53
Monique skrifaði:
Dieses Modell hätte ich gerne! Weiter Ausschnitt und leichte A-Linie, die auch in größerer Größe toll ist. Dazu diese schöne Farbe! Bitte veröffentlichen!
13.07.2018 - 09:04
Green Echo Jacket#greenechojacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað með gatamynstri og áferðamynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 196-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við hvert prjónamerki = alls 4 lykkjur færri í umferð). ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 10, 19, 28, 37, 45 og 53 cm M: 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm L: 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm XL: 10, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm XXL: 9, 17, 25, 33, 40, 47, 54 og 61 cm XXXL: 10, 18, 26, 34, 42, 49, 56 og 63 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fyrst fram og til baka á hringprjón. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Ermar og fram- og bakstykki er sett á sama hringprjón og prjónað er fram og til baka með áferðarmynstri yfir berustykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 266-285-297-327-348-385 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Setjið 1 prjónamerki 69-74-77-84-89-99 lykkjur inn frá hvorri hlið (prjónamerki merkja hliðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 10 sinnum = 226-245-257-287-308-345 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm fellið af fyrir handveg í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 50-55-57-64-68-78 lykkjur slétt, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, 100-110-114-129-138-156 lykkjur slétt, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, 50-54-56-64-68-77 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 210-229-237-267-284-321 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 57-60-63-66-66-69 lykkjur á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 12-11-13-13-10-11 lykkjur jafnt yfir = 45-49-50-53-56-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar ermin mælist 8-10-6-12-12-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 16-19-23-24-25-26 sinnum = 77-87-96-101-106-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm, fellið af fyrstu 4-4-5-5-6-6 lykkjurnar og síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjur fyrir handveg = 69-79-86-91-94-98 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 348-387-409-449-472-517 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í 0-0-1-0-2-0 cm. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a (= 1-2-2-1-1-2 lykkjur), endurtakið A.2a (= 21-22-22-23-23-24 lykkjur) yfir næstu 336-37-396-437-460-504 lykkjur (= 16-17-18-19-20-21 sinnum á breidd), A.3a (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATH! Í 2. umferð í mynsturteikningu A.2a eru lykkjur auknar út frá röngu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1a til A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 316-353-373-411-432-517 lykkjur í umferð. Nú er prjónað A.1b til A.3b yfir A.1a til A.3a. Þegar A.1b til A.3b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 124-132-139-145-152-160 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Berustykki mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman undir ermum, kant í kant í ysta boga á ystu lykkju. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenechojacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.