Cajsa skrifaði:
Var är mönster A4??? Hittar inget sånt...
06.12.2018 - 10:00DROPS Design svaraði:
Hei Cajsa. A.4 ligger sammen med de andre diagrammene enderst på siden: Det ligger under A.6, til venstre for A.3 og over A.12. God fornøyesle
06.12.2018 - 11:04
Doris skrifaði:
In der Beschreibung ist bei "Rumpfteil" von "A.X" und "A.Y" die Rede, das verstehe ich nicht. Was ist damit gemeint?
26.10.2018 - 07:41DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, A.X in A.6 = die ersten Reihen, an der rechten Seite mit "A.X" markiert sind. A.Y sind dann die 4 letzten Reihen in A.6 = die sind an der rechten Seite von den Diagrammen mit "A.Y" markiert. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2018 - 09:07
Doenja skrifaði:
Graag een juiste vertaling. Er staat erg veel Engels tussendoor wat het erg verwarrend maakt !!
17.10.2018 - 16:39
Madelon skrifaði:
Ik heb een vraag: ik merk dat ik jullie modellen vaak te kort vind. Ik hou er van als truien over mijn billen vallen. Hoe kan ik nu bijvoorbeeld bij dit patroon eenvoudig de trui langer maken zonder dat dit de rest van het patroon beïnvloedt? Welke tip hebben jullie hiervoor? Ik hoor het graag!
17.10.2018 - 13:43DROPS Design svaraði:
Dag Madelon,
Bij deze trui zou je wat extra herhalingen van A.5 kunnen maken om het lijf langer te maken.
28.10.2018 - 17:54
Rianne skrifaði:
Ik vind dit een erg leuke trui. Helaas staan er in de Nederlandse vertaling nog erg veel fouten.
16.10.2018 - 16:12
Cécile skrifaði:
Longing
09.08.2018 - 22:09
Mosie skrifaði:
Sweater name suggestion: Snowflakes
08.08.2018 - 00:22
JaneGBG skrifaði:
Så vacker! Den vill jag sticka NU! När kommer beskrivningen? Vill veta mer! Otålig!
31.07.2018 - 22:01
Conny skrifaði:
Ein Schmuckstück, freue mich auf die Anleitung
14.06.2018 - 10:44
Bonnie skrifaði:
Very pretty.
07.06.2018 - 12:10
Lady Angelika#ladyangelikasweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa með gatamynstrið úr DROPS Flora.
DROPS 197-24 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5 og A.6). Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3, A.8 og A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 7,75. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Fækkið lykkjum á undan lykkju í garðaprjóni: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir lykkju í garðaprjóni: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ---------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna /stuttan hringprjón, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 280-308-336-364-420-448 lykkjur á hringprjón 3,5 með Flora. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar með 14 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 240-264-288-312-360-384 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7 cm frá uppfitjunarkanti mælt þar sem stykkið er lengst. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan A.2 (= 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka prjónið A.3 (= 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 200-220-240-260-300-320 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.4 (= 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrra prjónamerkið er sett í fyrstu lykkju í umferð, teljið síðan 99-109-119-129-149-159 lykkjur og setjið seinna prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 99-109-119-129-149-159 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með seinna prjónamerki. Prjónamerkin merkja hliðar á fram- og bakstykki. LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5-10-15-15-25-30 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki situr í fyrstu lykkju af þessum), prjónið A.5A (= 5 lykkjur), prjónið A.5B yfir næstu 80-80-80-90-90-90 lykkjur (= 8-8-8-9-9-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.5C (= 6 lykkjur), prjónið 9-19-29-29-49-59 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), prjónið A.5A (= 5 lykkjur), prjónið A.5B yfir næstu 80-80-80-90-90-90 lykkjur (= 8-8-8-9-9-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.5C (= 6 lykkjur) og endið með 4-9-14-14-24-29 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur svona, en þegar A.5 hefur verið prjónað 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina er prjónað A.6 yfir A.5 alveg eins. Þegar A.X í A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.Y til loka. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-38-39-40-41-42 cm fellið af fyrir handveg á hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eiga nú að vera í stykki og A.5 á að vera byrjað eins og útskýrt er að ofan, en stillið af að næsta umferð sé á odda umferð í mynsturteikningu, þ.e.a.s. í umferð með gatamynstri. Þetta er mikilvægt svo að mynsturprjónið sé prjónað frá réttu þegar stykkið er prjónað fram og til baka. Affellingsumferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 95-105-113-123-139-145 lykkjur eins og áður, fellið af 5-5-7-7-11-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 95-105-113-123-139-145 lykkjur eins og áður og fellið af þær 2-2-3-3-5-7 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Framstykki og bakstykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 95-105-113-123-139-145 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og hver umferð frá röngu er prjónuð brugðið). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-2-3 sinnum, 2 lykkjur 0-2-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkja 1-2-4-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 93-93-93-103-103-103 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu). Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-53-55-57 cm (A.X í A.6 á nú að vera lokið og A.Y á að vera byrjað) setjið miðju 19-19-19-23-23-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 28-28-28-31-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. BAKSTYKKI: = 95-105-113-123-139-145 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og hver umferð frá röngu er prjónuð brugðið). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-2-3 sinnum, 2 lykkjur 0-2-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkja 1-2-4-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 93-93-93-103-103-103 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu). Munið eftir að þegar A.X í A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.Y til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 33-33-33-37-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 28-28-28-31-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið aðeins laust upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Flora. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan A.7 hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en þegar 6 umferðir eru eftir í A.3 er prjónað sléttprjón yfir aðra brugðnu lykkjuna í mynstri alveg þar til A.3 er lokið. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 50-50-50-60-60-60 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og látið prjónamerki fylgja áfram með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14-14-13-13-13-13 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNINGU. Aukið svona út alls 11-17-19-17-21-23 sinnum í S: Í 10. hverri umferð, í M og L/XL: Í 6. hverri umferð, í L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXL/XXXL: Í 4. hverri umferð = 72-84-88-94-102-106 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 50-50-49-48-46-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-6-8 lykkjur, prjónið 67-79-81-87-91-91 lykkjur sléttprjón og fellið af þær 2-2-3-3-5-7 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Prjónið síðan ermakúpu til loka fram og til baka á hringprjón 3,5 þannig: Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-4-4-7-10 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hið þar til stykkið mælist 55-56-57-56-57-58 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermi mælist ca 56-57-58-57-58-59 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 90 til 106 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 124-136-136 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið 2 umferðir slétt þar sem fækkað er um 16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚRTAKA-1 = 108-120-120 lykkjur. Prjónið A.8 hringinn (= 9-10-10 mynstureiningar með 12 lykkjum). Prjónið A.8 1 sinni á hæðina. Klippið þráðinn. Færið 6 lykkjur yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær. Umferðin byrjar núna hér. Prjónið A.3 hringinn (= 9-10-10 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 90-100-100 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.9 hringinn (= 9-10-10 mynstureiningar með 10 lykkjum). A.9 er endurtekið til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-19-21 cm setjið 1 prjónamerki í hverja lykkju í garðaprjóni (= 9-10-10 prjónamerki í stykkið). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverri lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2 = 81-90-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverri lykkju með garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2 = 72-80-80 lykkjur. Haldið áfram með úrtöku svona og fækkið til skiptis lykkjum á undan og á eftir lykkju í garðaprjóni í annarri hverri umferð þar til fækkað hefur verið alls 8 sinnum við hvert prjónamerki (4 sinnum á undan prjónamerki og 4 sinnum á eftir prjónamerki) = 18-20-20 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-10-10 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar aftur slétt saman 2 og 2 = 5 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 23-25-27 cm ofan frá og niður. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ladyangelikasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.