Lene wrote:
Den rettelse der er foretaget, hvor skal den strikkes. Er det hele opskriften eller hvor er fejlen? I hvilken afsnit. Synes ikke der er forskel. Mvh Lene
09.04.2022 - 11:08DROPS Design answered:
Hei Lene. Under rettelse linken (rød) står det hvor og hva som er rettet. Selve oppskriften er også rettet slik at det samsvarer. Har du f.eks skrevet ut denne oppskriften før 19.10.2018 (altså før feilen ble oppdaget) vil du se at det er forskjell. mvh DROPS Design
19.04.2022 - 08:57Anne wrote:
Bonjour, Je souhaite réaliser la réhausse dos mais je ne comprends pas l'ordre avec l'empiècement. L'empiècement est à commencer une fois le raglan terminé ou l'empiècement et la rehausse se font simultanément? Merci d'avance.
07.09.2021 - 23:18DROPS Design answered:
Bonjour Anne, si vous voulez réaliser la réhausse, tricotez-la juste après le col, l'empiècement se fera après la réhausse, c'est à ce moment là seulement que vous tricoterez les points fantaisie et les augmentations du raglan. Bon tricot!
08.09.2021 - 07:41Barbara Rainbird wrote:
Hello, how do I knit the 2 yarn overs in the next row. Do I knit in the front on one and the back of the next?
16.03.2021 - 18:12DROPS Design answered:
Hi Barbara, please see the video HERE. The video shows how to knit into 2 yarn overs. In our case we will purl both yarn overs (on the next round, purl the first yarn over in the front loop and purl the second yarn over in the back loop). Happy knitting!
16.03.2021 - 18:50Oana wrote:
Hello! Can you please clarify where the correction fits? Ot got me confused... Thanks!
17.12.2020 - 00:14DROPS Design answered:
Dear Oana, the corrections only apply if you printed the pattern before they have been added, if you just print it, then online pattern is correct. Happy knitting!
17.12.2020 - 08:55Olga Guga wrote:
Estoy haciendome este modelo, no entiendo como tengo que seguir luego de terminado A1c. Según leo se continúa con A2 según talla, pero A1c tiene 22 puntos, y A2, 44 puntos, es el doble, no se como encajar esos puntos . Muchas gracias por su aclaración, espero la respuesta.
13.11.2020 - 17:02DROPS Design answered:
Hola Olga! Tienes que tejer A.2 (=44 puntos) sobre los 10 puntos nuevos montados bajo las mangas y 17 puntos a cada lado de estos (17+10+17 =44 puntos). Es decir 22 puntos a cada lado de los hilos marcadores a cada lado. Buen trabajo!
19.11.2020 - 10:55Mariana wrote:
El diagrama A.3 pata ralla S-M está herrado, en la línea 7 muestra hacer 2 reducciones entre los 3 puntos de revés, pero en la sgte línea siguen habiendo 3 puntos. Lo mismo en la siguiente reducción, quedan 4 puntos derechos pero en la siguiente línea sigue mostrando 6 puntos derechos. Es todo esto... Correcto?
28.05.2020 - 08:49DROPS Design answered:
Hola Mariana. El diagrama es correcto. Se disminuye el número total de puntos, pero el diagrama se desplaza (lo que ves en el diagrama tiene una forma casi tridimensional). Como puedes ver en el diagrama en la primera fila hay 18 puntos y en la octava fila hay 16 puntos.
07.06.2020 - 20:52Adriana wrote:
Preferisco lavorare dal basso posso avere la spiegazione ?
30.09.2019 - 19:08DROPS Design answered:
Buonasera Adriana, in questa sede non ci è possibile fornire un aiuto così personalizzato. Può provare a rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia oppure a cercare fra i nostri modelli quelli con la costruzione dal basso. Buon lavoro!
30.09.2019 - 19:18Asteria wrote:
Correctie: die 7 steken voorbij de markeerdraad zijn wel nodig om in het midden van het pand uit te komen.
02.03.2019 - 21:41Asteria wrote:
Bij maat S staat er een fout in de beschrijving van de VERHOGING. Als je het patroon zou breien zoals het er staat, komt de verhoging niet in het midden uit. De juiste beschriving moet volgens mij dit zijn: Tweede naald is niet 6 steken recht, maar 16. En aan het eind moet je tot aan het midden breien, en niet ook nog eens een keer de 7 steken voorbij de markeerdraad. Op die manier krijg je een mooie verhoging exact in het midden van de trui.
01.03.2019 - 10:28
Sienna |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-37 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur slétt framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur brugðið frá röngu, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-27-27-30-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-36-36-40-40 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 40-40-45-45-50-50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-60-60 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-56-63-63-70-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-64-72-72-80-80 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan 7-8-9-11-12-14 lykkjur framhjá merkiþræði. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 (= 22 lykkjur) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 212 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-120-124-128-136-136 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 108-116-120-124-132-132 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja áfram með í stykkinu. ** Prjónið 4 lykkjur slétt, síðan * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (= þessar 7 lykkjur verða 13 lykkjur), 18-20-20-18-20-16 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (= þessar 7 lykkjur verða 13 lykkjur), 18-20-22-26-28-32 lykkjur slétt **, prjónið frá **-** alls 2 sinnum = 132-140-144-148-156-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. Næsta umferð er prjónuð þannig: * A.1a (= 22 lykkjur), 8-10-10-8-10-6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1a (= 22 lykkjur), 14-16-18-22-24-28 lykkjur slétt (= framstykki/bakstykki) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með þetta mynstur (þegar A.1 er lokið á hæðina, prjónið A.1b alls 2-3-3-3-3-4 sinnum á hæðina, prjónið síðan A.1c), jafnframt er aukið út hvoru megin við A.1 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-21-24-27-29-32 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 3 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 300-332-360-388-412-436 lykkjur í umferð. Haldið áfram með sléttprjón og A.1c án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-29-30-33 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki – stillið af að eftir sé 1 umferð í A.1c. Næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram í síðustu umferð í A.1c og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru): Prjónið 17-17-17-17-19-19 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 73-81-89-99-105-115 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-212-232-252-276-296 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið A.2 (= 42-42-44-44-50-50 lykkjur) yfir 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum og 17-17-17-17-19-19 lykkjur hvoru megin við þær (þ.e.a.s. 21-21-22-22-25-25 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-16-18-18 cm frá skiptingu. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 16-16-17-17-19-19 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-4-4-3-3 cm millibili alls 4 sinnum = 212-228-248-268-292-312 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-31-31-30-31-30 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-52-56-60 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 252-272-296-320-348-372 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 4,5. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-94 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjurnar undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið A.3 (= 18-18-20-20-18-18 lykkjur) mitt undir ermi þannig að það verða 9-9-10-10-9-9 lykkjur af A.3 hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar slétt. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur fækkað um 6-6-8-8-6-6 lykkjur = 62-70-76-80-86-88 lykkjur. Fækkið síðan um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 9-12-14-15-17-17 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 38-37-35-33-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-8-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 43-42-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 4,5. Brjótið uppá ermina ca 5 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Hedda wrote:
I beskrivningen av oket står det bl.a. att man skall upprepa från stjärna till stjärna totalt 3 gånger. Detta betyder ju att sekvensen skall stickas totalt 4 gånger. Det tog mig lite tid att förstå att det som avses är att sekvensen skall upprepas 2 gånger så att den stickas totalt 3 gånger.
25.07.2019 - 13:31