Susanne skrifaði:
Was für eine schöne Decke! Wir waren gerade in Irland, und ich schwelge noch in den irischen Aranmustern und stricke schon an einem Pullover.... Aber ich glaube, die Decke muss nun auch in mein Programm
04.09.2018 - 16:44
Monique skrifaði:
Eine tolle Decke für lange Winterabende und auch für kalte Spätsommertag. Ein Allrounder.
12.07.2018 - 14:16
Angelique Lazouret skrifaði:
Très joli
25.06.2018 - 01:07
Bärbel skrifaði:
Sieht klasse aus die Decke Kamindecke könnte man sie taufen
16.06.2018 - 23:34
Judith Leyssens skrifaði:
Wat een knusse deken, ga ik zeker maken, om de komende winter knus onderuit te zakken :0))))
11.06.2018 - 21:47
Stephanie skrifaði:
Tolle Musterdecke, ideal für den Winterabend am Kamin
08.06.2018 - 13:51
December Fields#decemberfieldsblanket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað teppi úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað fram og til baka með köðlum, hálfu klukkuprjóni og kúlum.
DROPS 195-40 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í ferningum sem saumaðir eru saman í lokin. Prjónaðir eru 5 mismundandi ferningar og 3 af hverjum ferning = alls 15 ferningar. FERNINGUR 1: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar sem í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 2 lykkjur – sjá ÚTAUKNING = 37 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 4 lykkjur) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 2 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA = 35 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ferningurinn mælist ca 32 x 32 cm. Prjónið 2 ferninga til viðbótar = 3 ferningar. FERNINGUR 2: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 4 lykkjur = 39 lykkjur. Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, A.2 (= 5 lykkjur), A.3 (= 25 lykkjur), A.4 (= 5 lykkjur), 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 39 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 35 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ferningurinn mælist ca 32 x 32 cm. Prjónið 2 ferninga til viðbótar = 3 ferningar. FERNINGUR 3: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir = 38 lykkjur. Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðnar, A.5 (= 10 lykkjur) alls 3 sinnum á breidd, 2 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 38 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 35 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ferningurinn mælist ca 32 x 32 cm. Prjónið 2 ferninga til viðbótar = 3 ferningar. FERNINGUR 4: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 2 = 37 lykkjur. Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, A.6 (= 33 lykkjur), 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 37 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur = 35 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ferningurinn mælist ca 32 x 32 cm. Prjónið 2 ferninga til viðbótar = 3 ferningar. FERNINGUR 5: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í síðustu umferð með garðaprjóni er aukið út um 3 lykkjur = 38 lykkjur. Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, A.7 (= 34 lykkjur), 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 35 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ferningurinn mælist ca 32 x 32 cm. Prjónið 2 ferninga til viðbótar = 3 ferningar. FRÁGANGUR: Leggið ferningana eins og útskýrt er í teikningu. Númer á hverjum ferning sýnir hvaða mynstur er á ferningum. Saumið ferningana saman með 1 þræði Air. Saumið fyrst saman á lengdina, síðan á breiddina – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #decemberfieldsblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.