Juliane skrifaði:
Hej, Super fin opskrift. Jeg forstår ikke sætningen: "strik rib (=1 ret/2 vrang)". For det første er ribstrik vel 1 ret, 1 vrang eller 2 ret, 2 vrang. Er det en fejl i opskriften, eller forstår jeg det bare ikke? For det andet skal jeg lave den i en størrelse medium, hvor man begynder med 83 masker. 83 masker minus de to kantmasker der er i hver side giver 81 masker. Men det vil 2 ret, 2 vrang jo ikke gå op i?
29.08.2018 - 18:39DROPS Design svaraði:
Hej Juliane, jo når man strikker skiftevis ret og vrang så er det rib (81/3 = 27 gange) God fornøjelse! :)
30.08.2018 - 13:24
Steph skrifaði:
This is so pretty. Love the sleeves.
08.08.2018 - 02:02
Al skrifaði:
Meraviglioso! Pubblicherete questo modello?
27.07.2018 - 15:53
Brigitte skrifaði:
Trop top
26.06.2018 - 23:29
Natacha skrifaði:
Canon ce pull,évidement je suis fan des manches !
14.06.2018 - 10:31
Ingrid skrifaði:
Love it! Denne vil jeg strikke!
08.06.2018 - 11:28
Ľudmila Hoffmanová skrifaði:
Very original!:-) Please in Czech
06.06.2018 - 21:59
Zabeth skrifaði:
Quelle classe! La beauté de ce pull est dans ses manches légèrement ballon et sa maille anglaise il me semble. J'en connais certaines qui vont craquer dans mon entourage!
05.06.2018 - 22:29
Delphine Vergnes skrifaði:
Very original with the bubble sleeves, finally a new style to your collections, Love it!
05.06.2018 - 20:23
Bewitched#bewitchedsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (á við um hlið á framstykki/bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku í hálsi á framstykki): Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 lykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan 1 lykkju þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= lykkja færri) og endið með 1 lykkju slétt. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja garðaprjón,* 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið* , endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 2: 1 lykkja garðaprjón,* sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 3: 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjunni slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru (meðtalinn uppsláttur), prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjunni slétt saman, 1 lykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 80-83-89-98-104-113 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 7 með Air. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið stykkið með sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 6-6-9-6-9-9 cm millibili alls 5-5-4-5-4-4 sinnum = 70-73-81-88-96-105 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-6-6-8 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum = 66-69-73-76-84-89 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 26-27-29-30-32-33 lykkjur af fyrir hálsmáli = 20-21-22-23-26-28 lykkjur eftir í hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-44-46-46-48 cm = 66-69-73-76-84-89 lykkjur. Fellið nú af miðju 20-21-23-24-26-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-24-25-26-29-31 lykkjur eftir á hvorri öxl. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 20-21-22-23-26-28 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 44-47-47-50-50-53 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4 með Air. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stroffið mælist 7 cm, passið uppá að næsta umferð sé frá réttu, prjónið 1 umferð stroff eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 11-12-12-13-13-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 55-59-59-63-63-67 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist 39 cm. Prjónið nú stykkið í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 5-7-4-5-2-3 lykkjur jafnt yfir = 50-52-55-58-61-64 lykkjur. Fellið af þegar ermin mælist 51-51-51-50-49-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 63 til 84 lykkjur á hringprjón 7 (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 3). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn yfir lykkjur í 2 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bewitchedsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.