Brigitte JB skrifaði:
Bonjour, Le modèle présenté était si beau ! Je suis en train de tricoter ces chaussettes et malheureusement, le rendu est différent : les couleurs de la Fabel « vue sur la mer » sont beaucoup plus sombres, et de ce fait le motif jacquard ne ressort pas. Beaucoup de travail pour un résultat un peu décevant. Vraiment dommage que vous sembliez avoir modifié les couleurs. Cordialement
10.12.2023 - 10:29
Paule L'Espérance skrifaði:
Do you think this socks can be knit from toe to knee (Down up)?
25.02.2022 - 17:37DROPS Design svaraði:
Dear Paule, yes, you could work it from toe to knee, but you would need to rewrite the pattern since you would use another technique. Happy knitting!
27.02.2022 - 18:15
Torhild Christensen skrifaði:
På felt A2 går ikke mønster rapporten opp, det er 4 masker for mye
21.03.2021 - 18:43
Þórey skrifaði:
Þeð er villa í uppskriftinni í fyrstu úrtöku eftir stroff fyrir miðstærð á að fækka úr 76 í 72 með því að taka úr 7 lykkjur. Su stærðfræði gengur ekki alveg upp. A ensku á að fæka um 4 lykkjur
11.10.2019 - 22:05DROPS Design svaraði:
Takk fyrir þetta, Lykkjufjöldinn hefur verið leiðréttur.
14.10.2019 - 09:41
Annette Van Der Spoel skrifaði:
Beste medewerker, ik wil deze sokken gaan breien maar ik vraag me af of dit patroon wel klopt. Op het plaatje tel ik 5 kleuren, maar in de beschrijving worden er maar 3 genoemd. Met vriendelijke groet, Annette
10.01.2019 - 16:42DROPS Design svaraði:
Dag Annette,
Dat komt omdat de kleur 'Ocean view' een kleurprint heeft en dus zitten er verschillende kleuren in deze kleurvariant.
11.01.2019 - 10:20
Nordfjord#nordfjordsocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 193-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 9. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-76-80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-4-8 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 64-72-72 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 8-9-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1 er fækkað um 4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 60-72-72 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-18-18 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 hringinn (= 5-6-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.2 er fækkað um 4-8-8 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn (= 14-16-16 mynstureiningar með 4 lykkjum). JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.3 er fækkað um 0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 56-60-64 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum yfir hafið er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 54-58-62 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 25 cm á hæð. Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjum á prjón fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur á prjóni. Lesið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum yfir hafið í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er notað síðar til að mæla lengd á fæti frá merki. Prjónið HÆLÚRTAKA (með litnum yfir hafið) – lesið útskýring að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 28-30-32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 68-72-80 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við hæl = 68-72-82 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum yfir hafið og fækkið lykkjum hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-12-14 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið A.4 hringinn (= 13-14-15 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum blár. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (A.4 á nú að vera lokið og það eru eftir ca 4-5-6 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokk þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona af í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum, síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordfjordsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 193-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.