Anna skrifaði:
Jag har svårt att få sjalmönstret att fungera. Det blir inte en spetsig ända även om jag börjar med 15 maskor eller färre. Sjalen blir nästan ovalformar eller utdragen, inte triangelformad? Vad gör jag fel? Eller stickas sjalen uppifrån ned (uppe= bredare, nere=spetsig/smal)?
08.02.2025 - 22:25DROPS Design svaraði:
Hej Anna, ja det stemmer, du strikker sjalet oppefra og ned :)
12.02.2025 - 14:43
Sabina skrifaði:
Salve, complimenti per il modello, lo trovo davvero molto bello. Io vorrei usare un filato più sottile e vorrei adattare il numero di maglie. Per verificare che le proporzioni siano giuste mi servirebbe sapere la larghezza della fascia. Potete aiutarmi? Grazie mille in anticipo
17.12.2023 - 23:55DROPS Design svaraði:
Buongiorno Sabrina, per il calcolo delle maglie può basarsi sulla tensione del lavoro: con un avvio di 51 maglie la fascia è larga circa 24 cm. Buon lavoro!
19.12.2023 - 08:57
Jane skrifaði:
Spørgsmål til sjalet På hver side af diagrammet A2 skal der på retsiden laves et opslag, som laver de fine huller men på Den ene side er hullerne næsten ikke synlig, hvorimod det er som på billedet på den anden side. Jeg strikker omslagene drejet ret. Hvad gør jeg galt og hvordan får jeg “hullerne” lige synlige på begge side af diagram A2? Tak for hjælpen Mvh jane
26.01.2023 - 18:58DROPS Design svaraði:
Hei Jane. Når du skal strikke sjalet skal alle kastene strikkes rett (ikke vridd rett). Du vil da få hull på begge sider av A.2. (Om du skal strikke pulsvantene og leser Øketips, så skal kastene strikkes vridd rett). mvh DROPS Design
30.01.2023 - 13:26
Dorota skrifaði:
Witam! Nie bardzo rozumiem jak zakończyć opaskę. W opisie jest napisane żeby zakończyć za rzędem 1 lub 5 schematu A.1. a w rzędzie 1 schematu zamykamy 6 oczek. Liczba oczek zamkniętych i nabranych nie będzie się zgadzać.
16.02.2022 - 15:44DROPS Design svaraði:
Witaj Doroto, zgadza się. Powinniśmy dodać te 6 oczek w 1-szym rzędzie ściegu francuskiego na końcu opaski. W 2-gim rzędzie należy przerobić oczka przekręcone w miejscu narzutów, aby nie było dziurek. Zgłoszę korektę do wzoru. Dziękujemy za zwrócenie uwagi. Pozdrawiamy!
17.02.2022 - 12:42
Dorota skrifaði:
Witam Proszę o wyjaśnienie w jaki sposób nabrać 2 oczka w opasce we fragmencie: Nabrać 2 oczka, wziąć z powrotem 25 oczek z pierwszej nitki i przerabiać jak wcześniej na prawej stronie robótki = 27 oczek Pozdrawiam
15.01.2022 - 14:02DROPS Design svaraði:
Witaj Doroto, oczka z nitki musisz przełożyć na drut do przerabiania, weź nową nitkę/motek i nabierz na drucie (przed tymi oczkami z nitki) 2 oczka (w taki sposób jakbyś zaczynała nabieranie oczek na początku robótki) i przerób oczka (te z nitki) wg schematu). Pozdrawiamy!
17.01.2022 - 11:25
Dorota skrifaði:
Witam! Czy dobrze rozumiem, że narzut należy wykonać między oczkami lewymi?
05.01.2022 - 22:51DROPS Design svaraði:
Witaj Doroto, dokładnie, narzut wykonujesz między 2 oczkami lewymi na lewej stronie robótki. Pozdrawiamy!
06.01.2022 - 09:48
Sharon skrifaði:
Hi! Thanks for your quick response. I am doing the headband. I cannot complete the first row as I have 6 stitches left. \r\nS
11.12.2021 - 21:56DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, for the headband you cast on 51 sts and work: 1 edge stitch in garter stitch, the 49 stitches shown in the diagram (when working the 3rd symbol , you will decrease 1 stitch, so that you will decrease a total of 6 sts on this row), 1 edge stitch. On next row from WS work a yarn over as shown to get the 49 sts in A.1 again (51 sts in total). Can this help?
13.12.2021 - 09:18
Sharon skrifaði:
I do not know what I am doing wrong. I have tried different ways, for eks, starting A2 as knit 2 ( 1 of these stitches will be the edge stitch) but I don’t have enough stitches at the end of the row to complete the pattern. I then frogged and knit 1 stitch- which would be the garter edge- then knit the first stitch in the pattern and I have 6 stitches left on my left needle. I need 9 stitches. Hopefully I can get som help so I can finish this Christmas gift. Thank you.\r\nS
11.12.2021 - 20:04DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, there is no edge stitch in A.2, since it's included inside the row. It would be best if you could specify which part of the set are you working (shawl, wrist warmers) and in which row, so that we could better help you. In principle, you should work A.2 as seen in the chart below. Happy knitting!
11.12.2021 - 21:35
Sharon skrifaði:
Hi, can I use drops Puna to make the head band in this pattern? I have som left over from present project. Thank you for your response. S
05.12.2021 - 10:59DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, yes, you may use it as long as you have enough left over from the other project, since they are in the same Yarn group, but you will need twice the amount, since Sky has more yardage in each ball than Puna. Happy knitting!
05.12.2021 - 16:36
Maureen O'Brien skrifaði:
I can't seem to be able to make the cross over in the head band. I stuck at turn and work 25 sts.... To the end 51 sts. That little paragraph is really getting to me.
06.05.2021 - 03:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs O'Brien, this video shows how to cross the stitches to make this cable on mid front (time code 06:32) for another pattern but same technique is used here and should help you to visualize how to do. Happy knitting!
06.05.2021 - 07:41
The Winter Way#thewinterwayset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað eyrnaband, sjal og handstúkur úr DROPS Sky með köðlum og garðaprjóni.
DROPS 197-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Sjal: Sjá mynsturteikningu A.2. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um handstúkur): Aukið út um 1 lykkju með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýja lykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin við miðju að aftan. EYRNABAND: Ftijið upp 51 lykkjur á prjón 4 með Sky. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur A.1 (= 49 lykkjur) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist ca 21 cm – stillið af að næsta umferð sé 1. umferð í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Látið síðustu 25 lykkjur í umferð hvíla á þræði og prjónið yfir fyrstu 26 lykkjur þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 26 lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 27 lykkjur. Snúið og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 16 umferðir (= 4 mynstureiningar af A.1 á hæðina) frá skiptingu, en í síðustu umferð frá röngu er felld af síðasta lykkja á prjóni = 26 lykkjur. Klippið frá. Látið lykkjurnar hvíla á nýjum þræði. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið síðan frá réttu í mynstri eins og áður yfir 25 lykkjur frá fyrri þræði = 27 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 16 umferðir (= 4 mynstureiningar A.1 á hæðina) frá skiptingu, en í síðustu umferð eru felldar af 2 fyrstu lykkjur í umferð áður en afgangur af lykkjum í umferð eru prjónaðar = 25 lykkjur. Nú er gerður kaðall í eyrnabandið við miðju að framan. Prjónið frá réttu þannig: Snúið og prjónið 25 lykkjur í mynstri eins og áður, síðan er seinni hlutinn lagður framan við þann fyrri og 26 lykkjur eru prjónaðar í mynstri eins og áður = 51 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til eyrnabandið mælist ca 21 cm – stillið af að endað sé eftir 2. umferð í A.1. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Fellið af. Saumið eyrnabandið saman við miðju að aftan í lykkjurnar eina og eina innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. SJAL: Allar lykkjur og uppsláttur er prjónaður slétt. Fitjið upp 15 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky. UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 9 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að A.2, prjónið A.2 yfir næstu 9 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 2 lykkjur fleiri. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 9 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 36 cm mælt meðfram A.2 mitt í sjali – stillið af að endað sé eftir 1. eða 5. umferð í A.2. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá röngu. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HANDSTÚKUR: Fitjið upp 35-39-41 lykkjur á prjón 3,5 með Sky. Prjónið mynstur þannig: 13-15-16 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.2 (= 9 lykkjur), 13-15-16 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING = 37-41-43 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 15-16-17 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 5. umferð í mynsturteikningu A.2. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Klippið frá og látið vera eftir ca 25 cm fyrir frágang. Saumið handstúkuna saman með því að sauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Festið enda. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #thewinterwayset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.