Kaisu Doerksen skrifaði:
I need help in connecting the right and left front shoulders. I don\'t get this:... \" Fasten the loose chains with 1 slip stitch in the outermost stitch towards the neck on right shoulder on the front (from wrong side). Now work the pieces together for the front piece as described below. FRONT PIECE:\r\nStart from the right side of the right front shoulder; continue working over the chain stitches for the neck ....etc
18.08.2018 - 05:56DROPS Design svaraði:
Hi Kaisu, The loose chain stitches are for the neck and with the slip stitch you join the 2 shoulders together. Then you start from the right side of the right shoulder (so at the armhole) and work across all stitches to the other armhole. I hope this helps and happy crocheting!
21.08.2018 - 08:04
Clara skrifaði:
Are there no size guides, other than the finished garment measurements? I need to know what size to make from bust/waist/arm measurements on an individual.
14.08.2018 - 22:51DROPS Design svaraði:
Dear Clara, the best way to find out your size is to compare the measurements from chart (in cm - taken flat from side to side) with a similar garment you have and like the shape. Read more about sizing and convert into inches here. Happy knitting!
16.08.2018 - 08:56Ash skrifaði:
Unnecessarily complicated pattern...im sure im following it but its not looking like the picture at all!
06.08.2018 - 00:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ash, should you have any question, please feel free to ask here - should you need any individual assistance reading diagrams, please feel free to contact the store where you bought the yarn. Happy crocheting!
06.08.2018 - 09:44Liz skrifaði:
Would love to make this one. Would look great with leggings.
28.06.2018 - 12:43
Gunvor Madsen skrifaði:
Ser spændende ud, godt med flere hækleopskrifter...
21.06.2018 - 12:52
Ana skrifaði:
This would make a brilliant summer jumper knitted in cotton.
15.06.2018 - 18:27Marie skrifaði:
Love this flattering style - got to do this one
11.06.2018 - 03:42
Tanja skrifaði:
Stilig, håper å se denne. Alt for få hekleoppskrifter på sidene her.
10.06.2018 - 00:50
Ylary skrifaði:
Stiloso
08.06.2018 - 23:01Ruth skrifaði:
Love this style and would love to make it
06.06.2018 - 08:10
Grey Sparrow#greysparrowtunic |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og langri klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-14 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (fer eftir hvort umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum). Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Fækkið um 1 lykkju með því að hoppa yfir 1 lykkju. Það er erfitt að segja hvar úrtakan hafnar í mynstri, en prófaðu að stilla úrtöku þannig að fækkað er í umferð með stuðlum/loftlykkjum (ekki stórum loftlykkjubogum). ÚTAUKNING (á við um neðst á ermum): Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka í hlutum, ofan frá og niður. Fyrst er hekluð hægri öxl að framan með útaukningu fyrir hálsmáli, síðan er vinstri öxl hekluð fram með útaukningu fyrir hálsmáli áður en stykkið er sett saman og heklað er fram og til baka til loka. Bakstykki er heklað á sama hátt. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman áður en í lokin er heklaður kantur í hálsmáli. HÆGRI ÖXL FRAM (þegar stykkið er mátað): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-18-24-24-30 lykkjur (= 2-2-3-4-4-5 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1C (= 6 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Geymið stykkið og heklið vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1D (= 7 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 6-6-12-18-18-24 lykkjur (= 1-1-2-3-3-4 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 25-31-25-25-31-31 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuumferðirnar með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við háls á hægri öxl að framan (frá röngu). Klippið frá og festið enda. Heklið nú stykkin saman að framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu með hægri öxl fram, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli (heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju) og heklið síðan yfir lykkjur á vinstri öxl fram þannig: Heklið A.2A (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.2C (= 7 lykkjur). ATH: Þegar heklað er yfir loftlykkjur fyrir kant í hálsi er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið A.3 1 sinni á hæðina alveg eins. Heklið síðan aftur A.2 til loka. ATH: Þegar A.2 er endurtekið á eftir hverju öðru á hæðina verður 1. umferð í 2. mynstureiningu hekluð frá röngu. 1. stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur eins og áður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-23 cm frá uppfitjunarkanti er sett 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Heklið síðan eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 65-67-69-71-73-75 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum – ATH: Veljið umferð frá einni mynsturteikningunni sem passar við þar sem þú ert í mynstri þannig að það verða 69-75-81-93-99-111 stuðlar í umferð. Klippið frá og festið enda. Framstykkin mælast ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Geymið stykkið og heklið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Í lok þessara umferðar eru heklaðar 29-35-29-29-35-35 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuumferð með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við hálsmál á vinstri öxl að aftan (frá röngu). Heklið nú stykkin saman að bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu við vinstri öxl að aftan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á hægri öxl að aftan þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað A.2 alveg eins. Þegar A.2 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er heklað A.3 alveg eins á hæðina. Heklið síðan A.2 til loka alveg eins og á framstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-23 cm frá uppfitjunarkanti er sett 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Heklið síðan eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 65-67-69-71-73-75 cm – stillið af eftir framstykki. Að lokum er hekluð 1 umferð með stuðlum alveg eins og á framstykki. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Heklið 77-77-85-85-93-101 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 57-57-63-63-69-75 stuðlar í umferð. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkju), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar í bilið á undan 3 næstu stuðlum, 1 loftlykkja * heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 57-57-63-63-69-75 lykkjur í umferð. Næsta umferð er heklið frá réttu þannig: Heklið A.2. Þegar A.2 (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 48-48-54-54-60-66 lykkjur (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.2C (= 7 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 5-5½-4½-4-3½-2½ cm millibili alls 9-9-11-11-13-15 sinnum á hvorri hlið = 39-39-41-41-43-45 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist ca 50-49-48-46-45-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum frá röngu þar sem aukið er út um 6-6-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 45-45-45-45-51-51 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 36-36-36-36-42-42 lykkjurnar (= 6-6-6-6-7-7 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram en endið eftir 3. umferð í A.1. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 54-53-52-50-49-46 cm ofan frá og niður. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðar sauma í eitt – byrjið neðst niðri á ermi og saumið kant í kant í ystu lykkjuna, en endið sauminn þegar eftir eru ca 34 cm fyrir klauf í hvorri hið á fram- og bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið á öxl og heklið fyrstu umferð með heklunál 4,5 þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð/loflykkjuboga *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, heklið 3 loftlykkjur, * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greysparrowtunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.