DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12584.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cosy Josie

Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað með áferðamynstri með v-hálsmáli, stuttum ermum og vasa. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-18
DROPS Design: Mynstur pu-029
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-850-950-1050 g litur 07, ljós grár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 eða 80 cm fyrir kant með garðaprjóni á öxlum og efst á vösum.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12584.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Sjá mynsturteikningu A.3 (hægri kantur að framan þegar flíkin er mátuð) og A.4 (vinstri kantur að framan þegar flíkin er mátuð). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við ystu 7 kantlykkjur að framan, þ.e.a.s. síðasta kantlykkjan tilheyrir úrtöku. Allar úrtökur eru gerðar frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir fyrstu 7 kantlykkjum að framan í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan síðustu 7 kantlykkjum að framan í lok umferðar þannig: Prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 7 kantlykkjur að framan (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og er saumað saman í lokin. Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 129-137-145-155-165-177 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með Puna. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 36-38-38-40-40-42 cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 125-133-141-151-161-173 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið nú lykkjur á band hvoru megin við aflíðandi öxl jafnframt er fellt af fyrir hálsmáli. Það er gert þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið fyrstu 6-7-7-8-9-9 lykkjur eins og áður, setjið þær síðan á þráð, haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið fyrstu 6-7-7-8-9-9 lykkjur eins og áður, setjið þær síðan á þráð, haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina, snúið stykkinu.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til settar hafa verið lykkjur á þráð alls 7 sinnum í hvorri hlið, síðan eru settar 10-7-10-8-5-10 lykkjur á þráð 1 sinni í hvorri hlið = 52-56-59-64-68-73 lykkjur á þráð fyrir öxl í hvorri hlið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 17-17-19-19-21-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með að setja lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl eins og áður. Að auki eru felldar af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af og settar á þráð mælist stykkið ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl (við hálsmál) og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 69-73-77-82-87-93 lykkjur (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 5,5 með Puna. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 36-38-38-40-40-42 cm fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 67-71-75-80-85-91 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að ofan með 4-4-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 7-7-8-8-9-10 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm eru lykkjur settar á þráð fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð frá röngu alveg eins og á bakstykki. Þ.e.a.s. setjið 6-7-7-8-9-9 lykkjur á þráð alls 7 sinnum og síðan 10-7-10-8-5-10 lykkjur á þráð 1 sinni = 52-56-59-64-68-73 lykkjur á þræði.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð og úrtöku fyrir hálsmáli er lokið eru 8 lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl (við hálsmál) og niður.
Haldið áfram með stroff eins og áður yfir þær 8 lykkjur sem eftir eru í 8-8-8-8-9-9 cm (= kantur í hálsi). Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 69-73-77-82-87-93 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja við miðju í hlið og 8 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með Puna. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með A.4 yfir þær 8 lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 36-38-38-40-40-42 cm fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 67-71-75-80-85-91 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að ofan með 4-4-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 7-7-8-8-9-10 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm eru lykkjur settar á þráð fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð frá réttu alveg eins og á bakstykki. Þ.e.a.s. setjið 6-7-7-8-9-9 lykkjur á þráð alls 7 sinnum og síðan 10-7-10-8-5-10 lykkjur á þráð 1 sinni = 52-56-59-64-68-73 lykkjur á þráð.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð og úrtöku fyrir hálsmáli er lokið eru 8 lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl (við hálsmál) og niður.
Haldið áfram með stroff eins og áður yfir þær 8 lykkjur sem eftir eru í 8-8-8-8-9-9 cm (= kantur í hálsi). Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 98-98-106-106-114-114 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með Puna. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 24-24-26-26-28-28 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Byrjið með 52-56-59-64-68-73 lykkjum af þræði á annarri öxlinni. Setjið lykkjur á hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu og prjónið 1 umferð slétt, en til að koma í veg fyrir göt í skiptingum þar sem lykkjur voru settar á þráð er þráðurinn í bili á milli lykkja í hverri skiptingu settur á prjóninn og prjónaður snúinn slétt saman við næstu lykkju á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið alveg eins kant á hinum 3 axlastykkjum.
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman kant í hálsmáli við miðju að aftan og saumið kant í hálsi við hálsmál aftan í hnakka (passið uppá að saumur í kanti í hálsmáli snúi inn að röngu á stykki).
Leggið ermar saman tvöfalt á lengdina og saumið sauma undir erum innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Saumið ermar í.

VASI:
Fitjið upp 33-33-35-35-37-37 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með Puna. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til vasinn mælist ca 15-15-16-16-17-17 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vasinn mælist ca 16-16-17-17-18-18 cm ofan frá og niður.
Prjónið hinn vasann á sama hátt.
Staðsetjið vasa á hvoru framstykki, ca 8-9-10-11-12-13 cm frá miðju að framan og ca 8-8-9-9-10-10 cm frá neðri kanti (mátið e.t.v. peysuna og vasana til að fá óskaða staðsetningu). Saumið vasana niður með lykkjuspori innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Bianca Ascher-Hodkisson wrote:

Will there be a crochet version of it? Or do you have an idea, how I can convert the pattern? Thanks in advance

09.03.2024 - 22:57

DROPS Design answered:

Dear Bianca, we don't make custom patterns. The pattern is very rectangular so you could work rectangular crochet pieces of the same sizes as the body/sleeves and join them together but they will be much more heavier, tighter and less floaty than the garment's knitted version. Happy knitting!

10.03.2024 - 23:57

country flag Scrapayam wrote:

Alors que l'on doit laisser 23 mailles au centre du dos pour l'encolure, a part les diminutions des encolures dans les bordures devant, on ne parvient pas à un intervalle équivalent sur les devants.....Ou passe - t-on le cou?

03.02.2022 - 23:11

DROPS Design answered:

Bonjour Scrapayam, vous avez le même nombre de mailles à la fin du dos et de chaque devant pour les l'épaules, les 23 + 2 m de chaque côté pour l'encolure forment l'encolure dos, aucune maille du devant ne sera cousue contre ces mailles et formeront ainsi l'encolure dos; soit 27 mailles pour l'encolure = environ 14 cm (cf schéma). Bon tricot!

04.02.2022 - 09:05

country flag Portia wrote:

Is there a way to know what size the model is wearing?

22.10.2021 - 00:51

DROPS Design answered:

Hi Portia, There is a measurements sketch at the bottom of the pattern, which gives the measurements for each size. Happy knitting!

22.10.2021 - 06:57

country flag Annie Fouilhoux wrote:

Bonsoir, je souhaite faire le modèle COSY JOSIE, veste réalisée en qualité Puna, taille M. Par contre, la qualité de la laine retenue est KILD SILK couleur pétrole. avec les mêmes numéro soit : n° 5.5 et 4.5. Auriez-vous l'amabilité de me dire combien je dois commander de pelotes de laine dans la qualité KILD SILK par avance je vous en remercie

21.02.2020 - 19:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fouilhoux, DROPS Kid-Silk appartient au groupe A de nos fils à tricoter, alors que cette veste se tricote en Puna, une laine du groupe B - notre convertisseur vous permettra de trouver les alternatives possibles - vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives. Bon tricot!

24.02.2020 - 07:57

country flag Kaminski wrote:

Bonjour N'y a t'il pas un oubli dans la légende des diagrammes: le petit rond noir signifie: maille endroit sur l'envers et ENVERS SUR L'ENDROIT? Merci!

22.09.2018 - 11:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kaminski, tout à fait, la légende a été corrigée, merci. Bon tricot!

24.09.2018 - 14:37

country flag Dani wrote:

Woooow!!!

14.07.2018 - 16:56

country flag Rachel Helberg wrote:

Simple, sweet, and snuggly - love this one bunches!!

07.06.2018 - 18:58

country flag WOOLLY'S wrote:

Un bon basique pour les soirées d'hiver ! A décliner de toutes les couleurs ....

07.06.2018 - 11:15

country flag Denisa wrote:

Cozy

06.06.2018 - 20:34

country flag Rosy wrote:

Un gilet long un peu ample, très beau modèle !

05.06.2018 - 13:13