Aster |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð og gatamynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 194-4 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá rétu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Prjónað er ofan frá og niður á hringprjón. FRAMSTYKKI: Vinstri öxl: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. Hægri öxl: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú hægri og vinstri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á hægri öxl, fitjið upp 21-21-21-25-25-25 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á vinstri öxl = 73-77-81-85-89-93 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli er prjónað brugðið). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 11-13-15-17-19-21 lykkjur, A.2 (= 49 lykkjur), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 11-13-15-17-19-21 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-2-2-3-4 sinnum og 4-4-2-2-4-4 lykkjur 1 sinni (alls 6-6-8-8-12-14 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið á stykki) = 85-89-97-101-113-121 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Þegar A.2 er lokið á hæðina hefur verið fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 83-87-95-99-111-119 lykkjur. Haldið nú áfram með mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 2 lykkjur) þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. Vinstri öxl: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á vinstri öxl, fitjið upp 21-21-21-25-25-25 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á hægri öxl = 73-77-81-85-89-93 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli er prjónað brugðið). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-2-2-3-4 sinnum og 3-3-1-1-3-3 lykkjur 1 sinni (alls 5-5-7-7-11-13 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið á stykki – ATH: Fitjið upp 1 lykkju færri fyrir handveg í hvorri hlið á bakstykki en á framstykki til að mynstrið gangi jafnt upp í hlið á fram- og bakstykki) = 83-87-95-99-111-119 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Fitjið upp 19-23-25-27-27-27 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT í lok hverrar umferðar eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkja 0-0-0-0-4-5 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 47-51-53-55-59-61 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er sett prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með mynstur A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-5-4-4-3-3 cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 33-35-37-37-39-41 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 44-44-43-43-41-39 cm frá prjónamerki (styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkant á ermum og innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið saum undir erum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 66-78 lykkjur frá réttu á stuttan hringprjón 6. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með brugðnum lykkjum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (40)
Bonjour Ou se trouve le diagramme a1, Merci
25.10.2018 - 10:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Guyot, le diagramme A.1 se trouve au niveau du schéma des mesures, à droite, sous la manche, C'est un petit diagramme sur 2 mailles et 4 rangs. Bon tricot!
25.10.2018 - 10:19Hallo Volgens beschrijving moet ik voor de armsgaten (voorpand maat L) 2x1st en 2x2st en 1x4 St nieuwe St opzetten (in totaal 8St volgens beschrijving. Als ik goed kan tellen zijn dit in totaal toch 10st??? Bij achterland heb ik hetzelfde probleem. Waar zit ik fout?
17.10.2018 - 15:57DROPS Design answered:
Dag Zurings Lutg, Het lijkt er inderdaad op dat er een foutje zit in het aantal steken voor maat L (en XL). Ik heb het doorgegeven en momenteel wordt er naar gekeken door de afdeling design.
18.10.2018 - 21:20BIj de meerderingen kom ik uit op 10 steken aan elke kant ipv de 8 die jullie tellen. Wat moet ik aanhouden?
16.10.2018 - 12:58Hej jeg er ved at give op kan ikke få mønster til at passe når jeg har lagt skulder og skulder sammen hvad gør jeg mon forkert ?
08.10.2018 - 10:15DROPS Design answered:
Hei Helle. Du strikker: mønster som før over høyre skulder, legg opp masker til halskant, mønster som før over venstre skulder. Neste pinne (fra vrangen) strikker du mønster som før over venstre skulder, vrang over maskene du la opp, og mønster som før over høyre skulder. Videre strikker du som anvist: 1 kantmaske rille, strikk mønster som før over de neste 11-13-15-17-19-21 maskene (siste maske er en rettmaske), A.2 (= 49 masker), strikk mønster som før over de neste 11-13-15-17-19-21 maskene (første maske er en rettmaske), 1 kantmaske rille. På hver side av A.2 har du en rettmaske - som passer med 2. omgang i A.2. slik at rillemønsteret fortsetter. God fornøyelse
16.10.2018 - 14:23Zurings Lut 22.09.2018 - 11:36: Hallo,\\\\\\\\r\\\\\\\\nVoorpand: ik heb de twee schouders samengebracht en ik heb1 naald teruggbreid (averechts) aan de verkeerde kant. Ik wil nu beginnen met telpatroon A2, maar volgens de afbeelding van dit telpatroon begint dit ook met een volledig averechtse(aan de verkeerde kant) of rechtse (aan de goede kant). Of is de eerste naald van het telpatroon tevens de laatste naald van de twee schouders samenbreien?
28.09.2018 - 15:58DROPS Design answered:
Dag Zurings Lut, Nadat je de naald averecht hebt gebreid en begint aan het patroon, begin je rechts onder en de eerste naald (en alle oneven naalden) van het patroon is aan de goede kant.
04.10.2018 - 12:26Telpatroon
28.09.2018 - 15:51Buongiorno ho un problema con gli aumenti per gli scaldi davanti per la taglia L non mi tornano le maglie aumentate a me risultano 10 per lato e non 8.......grazieeee
27.09.2018 - 12:17DROPS Design answered:
Buongiorno Germana. Segnaliamo l'errore al settore design. Il testo verrà corretto quanto prima. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
27.09.2018 - 12:51Hallo,\\\\\\\\r\\\\\\\\nVoorpand: ik heb de twee schouders samengebracht en ik heb1 naald teruggbreid (averechts) aan de verkeerde kant. Ik wil nu beginnen met telpatroon A2, maar volgens de afbeelding van dit telpatroon begint dit ook met een volledig averechtse(aan de verkeerde kant) of rechtse (aan de goede kant). Of is de eerste naald van het telpatroon tevens de laatste naald van de twee schouders samenbreien?
22.09.2018 - 11:36Pourquoi les photos n apparaissent pas Je ne suis pas capable de télécharger aucunes photos Merci
10.09.2018 - 11:28DROPS Design answered:
Bonjour Mme Emond, en raison d'une maintenance sur notre site, les photos et images n'étaient pas disponibles pendant quelques heures, mais tout est de nouveau en ordre. Bon tricot!
11.09.2018 - 08:42Bonjour, une fois que l'on a mis sur la même aiguille les 2 épaules, on tricote A1 sur les 13 premières mailles, puis A2, puis A1 de nouveau sur 13 mailles (tailleM) ? Dans ce cas, lorsque l'on tricote le rang retour, on termine A1 par une maille endroit, puis on débute A2 par une maille endroit également ? Le point fantaisie se retrouve décalé.... J'ai beau chercher je ne trouve pas d'où provient l'erreur.... Merci d'avance pour votre aide!
07.08.2018 - 05:31DROPS Design answered:
Bonjour Fanny, le point fantaisie ne doit pas être décalé, vous tricotez A.1 sur 13 m (= on commence et on termine par la 1ère m de A.1 soit 1 m jersey end), A.2 sur 42 m (=on commence et on termine par 1 m point mousse (end sur l'end, end sur l'env)), puis A.1 sur 13 m (= on commence et on termine par la 1ère m de A.1 = 1 m jersrey end), toujours avec 1 m lis au point mousse de chaque côté. Bon tricot!
07.08.2018 - 09:23