Eva skrifaði:
Quisiera añadirlo a favoritos pero no encuentro la manera. Gracias
18.09.2019 - 16:04DROPS Design svaraði:
Hola Eva. Para añadir a favoritos un patrón tienes que pulsar el corazón que estça al lado del botón de imprimir y seguir las instrucciones.
18.09.2019 - 20:08
María skrifaði:
Hola, Me gusta mucho esta falda pero ya no soy una jovencita ¿cómo puedo saber cuál es mi talla? y si quiero alargar la falda hasta la rodilla ¿sigo haciendo los mismos puntos y luego el calado? porque temo que me quede en forma de mucha campana. Gracias anticipadas. Un abrazo María
03.08.2018 - 02:25DROPS Design svaraði:
Hola Maria. Puedes calcular tu talla por las medidas que vienen en el diagrama bajo el patrón. Para alargar la falda y que no quede en forma de campana, hay que aumentar, en vez de cada 1.5 cm, cada 2 - 2.5 cm dependiendo de la largura que quieras. Así se puede alargar sin que quede tan acampanada.
07.08.2018 - 18:31
Primrose Skirt#primroseskirt |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Pils með gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Muskat.
DROPS 190-27 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Umferð 2 og 6 byrjar og endar þannig: Umferðin byrjar með 1 keðjulykkju í hvorn af fyrstu 2 stuðlum og 3 loftlykkjur (kemur í stað fyrsta stuðuls), umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í 8. umferð eru 3 loftlykkjur í A.1 ekki skipt út fyrir fyrsta stuðul í A.2. Í afgang af umferð er fyrsta lykkjan í A.2 skipt út fyrir A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar stykkið er heklað fram og til baka er heklað þannig: Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul). Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Þegar stykkið er heklað í hring er heklað þannig: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 stuðull fleiri), heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 stuðull fleiri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af 2 næstu stuðlum (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 stuðull fleiri), heklið þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 stuðull fleiri) og 1 stuðull í næsta stuðul (= alls 4 stuðlar fleiri í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrst er heklað fram og til baka frá klauf í hlið, síðan er heklað í hring. PILS: Heklið 153-169-186-207-232-258 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Muskat. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2-4-0-0-4-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 130-144-158-176-198-220 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki eftir 65-72-79-88-99-110 lykkjur (= hlið). Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 stuðul í byrjun á umferð, 1 stuðull hvoru megin við prjónamerki og 1 stuðul í lok umferðar (= 4 stuðlar fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 18-18-17-16-19-20 sinnum = 202-216-226-240-274-300 stuðlar. JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið 9 umferðir með stuðlum, heklið stykkið áfram hringinn. Þegar stykkið mælist 33-35-37-39-41-43 cm aukið út um 2-0-2-0-2-0 stuðla jafnt yfir í næstu umferð = 204-216-228-240-276-300 stuðlar. Þegar stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm, heklið A.2 yfir allar lykkjur (= 34-36-38-40-46-50 sinnum á breidd). Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferð byrjar og endar. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 46-48-50-52-54-56 cm. Klippið frá og festið enda. HNESLUR: Meðfram annarri hlið á opi sem staðsett er á framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): Festið enda með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul, 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju – munið eftir heklleiðbeiningar), heklið 2 fastalykkjur um fyrsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, * heklið 2 fastalykkjur um næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið með 2 fastalykkjum um síðasta stuðul efst, snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda. FALDUR FYRIR TÖLUR: Meðfram hinni hliðinni á opi eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hvern stuðul = 18 fastalykkjur), klippið frá og festið enda. Saumið tölur í faldinn. KANTUR Í MITTI: Heklið kant efst í mitti á pilsi frá réttu þannig: Festið enda með 1 keðjulykkju yst á fald fyrir tölur, 1 loftlykkja, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram öllum kantinum í mitti, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #primroseskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.