Christine skrifaði:
Hei! Hva menes med "1 fastmaske i masken og om luftmaskeringen"? På starten av hjulet er det trekanter. Disse er ikke beskrevet. Skal det være to fastmasker i samme maske med en luftmaske mellom?
12.01.2019 - 12:45DROPS Design svaraði:
Hei Christine. Her hadde det blitt en feil, denne er nå rettet så symbolforklaringen stemmer. Den første omgangen hekler du 1 fastmaske om luftmaskeringen, på den andre omganegen hekler du 1 fastmaske i masken. Symbolet på 1 omgang i A.1 er blitt rettet til: 2 fastmasker i samme maske/rad med bilens farge. Takk for beskjed og god fornøyesle videre
23.01.2019 - 10:59
Sinikka skrifaði:
Kan ikke finne diagram A.1?
02.11.2018 - 11:44DROPS Design svaraði:
Hei Sinikka. Diagram A.1 ligger helt nederst, under A.7 og ved siden av A.6. God fornøyelse.
02.11.2018 - 14:46
Jenny skrifaði:
Hallo, ich wollte mich jetzt auch mal an dieser schönen Anleitung versuchen und habe folgendes Problem: Was bedeuten die geschlossenen Dreiecke nach dem Ring bei A.1?
26.08.2018 - 09:30
K.J.van Lievenoogen-Smits skrifaði:
Wat een leuk patroontje, bedankt daarvoor. Met vriendelijke groet, Kirsten
26.05.2018 - 16:29
Doris skrifaði:
Hallo, die Anleitung war am Anfang erschreckend, es ging dann aber. Nur das Anhäkeln der Räder hatte ich nicht verstanden, ich habe sie dann angenäht. Aber das Auto sieht süß aus. Dankeschön
16.04.2018 - 18:25
My First Car#dropsmyfirstcar |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðir bílar fyrir börn úr DROPS Paris.
DROPS Baby 31-26 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning A.2 til A.5 er fyrir sjálfan bílinn, A.1 eru dekk, A.6 eru ljósin og A.7 er botninn á bílnum. Svæðið sem merkt er með gráum lit hefur nú þegar verið heklað, það sýnir bara hvernig hekla á í lykkjur/umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- Bíll - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bíllinn er heklaður í stykkjum. Fyrst eru hekluð 4 dekk, síðan er sjálfur bíllinn heklaður. Að lokum eru ljósin hekluð og stykkið heklað saman. DEKK: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál með lit á bíl og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.1 hringinn = 1 dekk. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 9 fastalykkjur í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda, fyllið dekkin með vatti og geymið þau. Heklið alls 4 dekk. Dekkin eru hekluð saman við bílinn síðar í mynsturteikningu A.5. BÍLL: Heklið A.2 fram og til baka (= þak á bíl og bitarnir yfir rúður) með lit á bíl. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, heklið A.3 hringinn yfir lykkjurnar/umferðirnar í A.2 (= rúður). Svæðið sem merkt er með gráum lit = A.2, svæðið hefur nú þegar verið heklað, það sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar. Fyrsta umferð í A.3 er hekluð með lit á bíl, síðan er heklað með litnum natur þar til 1 umferð er eftir. Í síðustu umferð eru bitarnir lagðir niður yfir rúðurnar og heklað saman með horn í A.3 með lit á bíl (sjá ferninga í A.2). Þegar A.3 hefur verið herklað til loka eru 32 fastalykkjur í síðustu umferð. Klippið frá og festið natur þráðinn. Afgangur af bíl er heklaður með lit á bíl. Heklið A.4 fram og til baka yfir fyrstu 8 lykkjur (= framan á bíl). Aukið er út um 1 fastalykkju hvoru megin við fyrstu umferð = 10 fastalykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka heklið A.5 hringinn yfir allar lykkjur/umferðir í A.4 og þær lykkjur sem eftir eru í A.3 (= hliðar, við miðju að framan og við miðju að aftan á bíl). Í 4. umferð í A.5 eru dekkin hekluð á bílinn þannig: Brjótið uppá síðustu umferð á dekki saman tvöfalda og heklið 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin á dekkinu og 4. umferð í A.5, heklið alls 2 fastalykkjur í gegnum öll 3 lögin (= dekkið er nú fast með 2 fastalykkjum í bíl), heklið öll 4 dekkin á bílnum alveg eins. Þegar A.5 hefur verið heklað til loka eru 54 fastalykkjur í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. LJÓS: Heklið A.6 með litnum skærgulur. Klippið frá og hnýtið endana saman. Heklið alls tvö ljós. Festið ljósin framan á bílinn. Fyllið bílinn með vatti. Heklið síðan botninn lausan hringinn, áður en hann er heklaður saman við bílinn. BOTN: Heklið 9 loftlykkjur með heklunál 4 með lit á bíl og heklið síðan A.7, heklið báðum megin við loftlykkjuumferðina. Þegar A.7 hefur verið heklað til loka eru 54 fastalykkjur í síðustu umferð. Heklið botninn við bílinn með 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin hringinn, yfir allar lykkjur. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsmyfirstcar eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.