Zippe skrifaði:
Jeg tror der er en fejl i opskriften. Der står, at man skal lave 4 udtagninger, men når man følger opskriften, ender det med at blive 6. Det ser ikke rigtigt ud, at skuldrene er placeret så tæt på midt for og midt bag og ligner ikke billedet. På et andet af jeres poncho mønstre, med samme halsudskæring, er der kun 4 udtagninger. Midt for og midt bag, og en på hver skulder, som er placeret midt mellem for og bag. Se mønsteret Light's Embrace
26.03.2018 - 13:16
Lucia Gregoli skrifaði:
Non riesco a capire dove fare le 7 diminuzioni nella taglia l\\xl nel primo giro a maglie alte e poi nei suggerimenti per le diminuzioni c\'e\' scritto di saltare una m. bassa ma non ci sono maglie basse. ci sto provando da un pomeriggio intero ma non riesco propio a capire come andare avanti nel lavoro. grazie.
22.03.2018 - 17:52
Tineke skrifaði:
Ik kom niet uit. Heb A1a/ A1f nu 1x gehaakt. Tot en met toer 6. Kom ik op 112 st per zijde A1 is 2 steken, 1B is 11 st, 1C is 6 st, 1D is 13st, 1E is 25 st, 1D is 13 st, 1E is 6 st, 1F 11 st. Is 112 st. \r\n\r\n\r\nHoe start ik met A3a?? Toer moet beginnen met 3 lossen volgens tekening. Dan A3b over 3 stokjes terwijl er 4 steken getekent zijn en A3c over 2 steken terwijl er 3 steken getekent zijn
09.03.2018 - 16:26DROPS Design svaraði:
Hallo Tineke, Het laaste stokje van A.3c en het eerste stokje van A.3b haak je in de 3 lossen van de vorige toer van A.3a.
19.03.2018 - 09:04Jette skrifaði:
I can not get the first A1 pattern to look or feel right. It says to place 4 markers, but if you follow the instructions it will be 6 markers. 1 mid front, 1 mid back and 2 on each shoulder. To me it seems like the shoulder markers are placed way too close to the mid front and back.
09.03.2018 - 02:41DROPS Design svaraði:
Dear Jette, thanks for your feedback, pattern has been edited (see correction ). Happy crocheting!
09.04.2018 - 11:23
Line skrifaði:
Der står at man skal sætte 4 markører - men i forklaringen er der 6; 1 for, 1 bag - og 4 skulderudtagninger. Er dette korrekt? Har hæklet de første 4 omgange - og synes ikke det ser rigtigt ud. Mvh. Line
09.03.2018 - 00:13DROPS Design svaraði:
Hej Line, jeg tror det stemmer at der skal være 6 mærker, 1 midt foran og bagpå og så 1 på hver side af de 12 midterste masker midt foran og bagpå. Men jeg tjekker lige med design :)
20.03.2018 - 11:39
Annette Brender skrifaði:
Rigtig flot mønster, man har lyst til at arbejde med den, kan ikke vente at prøve den af.
01.02.2018 - 10:37Elizabeth Trudeau skrifaði:
I would love to make this pattern. When will it be available
19.01.2018 - 20:45
Christina Perdue skrifaði:
I love this, it really is eye-catching and stands out, which is no easy feat with so many beautiful patterns in the group.
16.01.2018 - 11:40
Cissi skrifaði:
Både Country-girl och hippie på en gång! Snygg och cool modell.
16.01.2018 - 11:20
Tip Bong Da Free skrifaði:
It's wonderful that you are getting ideas from this article as well as from our discussion made at this place.
31.12.2017 - 22:53
Cressida#cressidaponcho |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho með gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.
DROPS 188-27 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að miðju boga. ÚRTAKA – HEKLIÐ 2 TVÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um loftlykkjuboga að neðan, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), hoppið yfir 1 fastalykkju og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um næsta loftlykkjuboga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Fyrst er aukið út við miðju að framan, miðju að aftan og hvoru megin við hvora öxl, síðan er einungis aukið út við miðju að framan og við miðju að aftan. PONCHO: Heklið 156-166-166 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 5-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 25-27-27 sinnum = 130-138-138 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun á umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið nú 6 prjónamerki frá byrjun á umferð þannig (án þess að hekla): Setjið 1 prjónamerki í 1. stuðul frá umferð (þ.e.a.s. í stuðul eftir 3 loftlykkjum = miðja að aftan), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 14 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= miðja að framan), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 14 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), nú eru 24-26-26 stuðlar á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð. HEKLIÐ A.1 ÞANNIG: Hekli 1. umferð þannig: Heklið * A.1A í fyrsta/næsta stuðul með prjónamerki í (= miðja að framan/miðja að aftan), endurtakið A.1C alls 12-13-13 sinnum, A.1D í næsta stuðul með prjónamerki í (= útaukning á öxl), endurtakið A.1E alls 7 sinnum, A.1D í næsta stuðul með prjónamerki í (= útaukning á öxl), A.1E alls 12-13-13 sinnum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Heklið 2. umferð þannig: Heklið * A.1A (= miðja að framan/miðja að aftan), A.1B, endurtakið A.1C alls 12-13-13 sinnum, A.1D (= útaukning á öxl), endurtakið A.1E alls 7 sinnum, A.1D (= útaukning á öxl), A.1E alls 12-13-13 sinnum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið svona áfram til og með umferð 6-7-8 í mynsturteikningu A.1. Nú eru 108-128-132 lykkjur á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 216-256-264 lykkjur + 2 miðju bogar í umferð). Stykkið mælist ca 8-9-10 cm í heklstefnu (mælt beint niður frá öxl frá uppfitjunarkanti). UMFERÐ MEÐ STUÐLUM: Heklið 1 umferð með stuðlum, heklið (2 stuðla, 2 loftlykkjur, 2 stuðlar) um miðju boga og jafnið JAFNFRAMT úr stuðla fjölda þannig að fækkað/aukið sé þannig: S/M – XXL/XXXL: Aukið út um 1-1 stuðul meðfram hvorri hlið á milli miðju að framan/miðju að aftan (= alls 2-2 stuðlar) – lesið ÚTAUKNING. L/XL: Fækkið um 7 stuðla meðfram hvorri hlið á milli miðju að framan/miðju að aftan (= alls 14 stuðlar) – lesið ÚRTAKA. Nú eru 113-125-137 lykkjur á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 226-250-274 lykkjur + miðju bogar í umferð). ATHG: Aukið ekki núna út hvoru megin við öxl, heldur einungis við miðju að framan og miðju að aftan á stykkinu! HEKLIÐ A.2/A.3 ÞANNIG: Heklið * A.3A (= miðju bogi), A.3B yfir 3 stuðla, A.2 (= 12 lykkjur) alls 9-10-11 sinnum á breidd, A.3C yfir næstu 2 stuðla *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Í 9. umferð er aukið út um 12-24-36 stuðla jafnt yfir hvoru megin við A.3A (þ.e.a.s. aukið út um 24-48-72 stuðla alls í umferð) = 145-169-193 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 290-338-386 stuðlar + miðju bogar í umferð) – lesið ÚTAUKNING. Stykkið mælist ca 19-20-21 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti. HEKLIÐ A.4/A.5 ÞANNIG: Heklið * A.5A (= miðju bogi), A.5B, A.4 (= 24 lykkjur alls 6-7-8 sinnum á breidd, A.5C yfir næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.5 er lokið á hæðina hafa verið heklaðar 19 umferðir, haldið áfram með 20. umferð þannig: Heklið * A.5D, A.5E yfir 1 stuðul, A.5F alls 7 sinnum á breidd, A.4 (= 24 lykkjur) alls 6-7-8 sinnum á breidd, A.5F alls 7 sinnum á breidd, A.5B *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.4/A.5 er lokið á hæðina eru 211-235-259 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 422-470-518 stuðlar + 2 miðju bogar í umferð). Stykkið mælist ca 46-48-48 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti. HEKLIÐ UMFERÐ 2 OG 3 Í A.1 ÞANNIG: Byrjið um annan miðju boga og byrjið frá umferð 3 í mynsturteikningu. Heklið * A.1A (= miðju bogi), endurtakið A.1C fram að næsta miðju boga (síðasta lykkjan er einungis hekluð yfir 1 lykkju í fyrstu umferð *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 4-8-10 umferðir. Stykkið mælist ca 51-56-59 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti. UMFERÐ MEÐ STUÐLUM: Heklið 1 umferð með stuðlum og fækkið JAFNFRAMT um 7-5-5 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri hlið á milli miðju að framan/miðju að aftan (= alls 14-10-10 stuðlar) þannig: Heklið * (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) um miðju boga, síðan er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju fram að næsta miðju boga *, heklið frá *-* alls 2 sinnum = 209-245-269 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= 418-490-538 stuðlar + 2 miðju bogar í umferð). Klippið frá. HEKLIÐ A.2/A.3 ÞANNIG: Heklið * A.3A (= miðju bogi), A.3B yfir 3 stuðla, A.2 (= 12 lykkjur) alls 17-20-22 sinnum á breidd, A.3C yfir næstu 2 stuðla *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.2/A.3 er lokið á hæðina eru 229-265-289 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= 458-530-578 stuðlar + 2 miðju bogar í umferð). Stykkið mælist ca 62-67-70 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti. KANTUR: Heklið kant í lokin í kringum allt stykkið þannig: 1 keðjulykkja í fyrstu lykkju, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í keðjulykkju frá byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cressidaponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.