DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Love Story

Prjónaður kjóll með gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.

DROPS 188-3
DROPS Design: Mynstur w-688
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
850-950-1050-1150-1250-1400 g litur 17, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir gataumferð í mitti og kant með garðaprjóni í kringum hálsmál.

FYLGIHLUTIR: 4 litlar perlur í skúfa.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÆLING:
Þegar byrjað er á gatamynstri kemur stykkið til með að bylgjast í neðri kanti. Öll mál á lengdina er gerð þar sem boginn er minnstur.

ÚRTAKA-1 (á við um pilsið á kjólnum):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 22,5.
Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 21. og 22. hver lykkja og 22. og 23. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á kjól og mitt undir ermum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út hvoru megin við prjónamerki í hliðum á kjól og hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að opi við miðju að framan, síðan er stykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Eftir úrtöku fyrir handveg er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. Ermar er prjónaðar í hring á stuttan hringprjón neðan frá og upp, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KJÓLL:
Fitjið aðeins laust upp 247-266-285-323-342-380 lykkjur á hringprjón 5 með Paris.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 (= 13-14-15-17-18-20 mynstureiningar með 19 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Í umferð merktir með ör-1 í A.1 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri til að mynstrið gangi jafnt upp. Í umferð merktri með ör-2 í A.1 færist byrjun á umferð um 1 lykkju til vinstri.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 156-168-180-204-216-240 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 28 cm – lesið MÆLING, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 18-21-24-30-32-38 lykkjur, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 42-42-42-42-44-44 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 36-42-48-60-64-76 lykkjur og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 42-42-42-42-44-44 lykkjur. Nú eru 18-21-24-30-32-38 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu.
Í næstu umferð er lykkjum fækkað á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-5½-5½-6-6 cm millibili alls 7-7-6-6-6-6 sinnum við hvert prjónamerki = 128-140-156-180-192-216 lykkjur. Fjarlægið öll prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 59-60-61-62-63-64 cm (nú hefur öll úrtaka verið gerð til loka) prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-8-0-4 lykkjur jafnt yfir = 128-140-156-172-192-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið), setjið 1 prjónamerki á eftir 32-35-39-43-48-53 lykkjur (= miðja að framan) og 1 prjónamerki á eftir 32-35-39-43-48-53 lykkjur (= í hlið), nú eru 64-70-78-86-96-106 lykkjur á milli prjónamerkja og bakstykki. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Klippið frá.
Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjón frá prjónamerki við miðju að framan.
Byrjið fyrstu umferð frá réttu við prjónamerki við miðju að framan og prjónið þannig: A.3B (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), 40-46-50-58-64-74 lykkjur sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 40-46-50-58-64-74 lykkja), prjónið A.3A (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), A.3B (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), 40-46-50-58-64-74 lykkjur sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 40-46-50-58-64-74 lykkja) og endið með A.3A (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá skiptingu = 136-148-164-180-200-220 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 6-6-7-9-11-13 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Í fyrstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni eru felldar af 6-6-8-12-16-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3-3-4-6-8-10 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Framstykkin og bakstykki er nú prjónað hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
= 31-34-37-39-42-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með A.3A við miðju að framan, sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Nú þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 29-31-32-33-34-34 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.3A við miðju að framan þar til stykkið mælist ca 84-87-90-93-96-99 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og stillið af þannig að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina ef það er mögulegt).
Setjið fyrstu 7-8-8-9-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, en til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 31-34-37-39-42-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.3B við miðju að framan (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu).
Nú þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 29-31-32-33-34-34 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3B við miðju að framan, sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist ca 84-87-90-93-96-99 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og endið í sömu umferð í A.3 eins og vinstra framstykki).
Setjið fyrstu 7-8-8-9-10-10 lykkjur af þræði fyrir hálsmáli, en til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

BAKSTYKKI:
= 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, sléttprjón og A.3A/A.3B við miðju að aftan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 58-62-64-66-68-68 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3A/A.3B við miðju að aftan, sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg þar til stykkið mælist 88-91-94-97-100-103 cm.
Fellið nú af miðju 26-28-28-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður yfir axlalykkjur og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsi = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið aðeins laust upp 76-76-76-95-95-95 lykkjur á stuttan hringprjón 5.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Prjónið síðan A.4 (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 19 lykkjum). ATH: Í umferð merktri með ör-3 í A.4 færist byrjun á umferð til um 2 lykkjur til vinstri til að mynstrið gangi jafnt upp.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 48-48-48-60-60-60 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20 cm – munið eftir MÆLING. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-2-12-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.2. Eftir A.2 er skipt til baka yfir á sokkaprjón 5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 25-25-25-26-26-26 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið út alls 7-9-9-11-12-14 sinnum í S: Í 4. hverri umferð, í M og L: Í 3. hverri umferð, í XL: Í annarri hverri umferð, í XXL: Til skiptis í hverri og annarri hverri umferð í XXXL: Í hverri umferð = 56-62-64-70-74-80 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-38-37-37-35-34 cm fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið nú ermakúpu fram og til baka á hringprjón, þ.e.a.s. haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-5-6-8 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð á hvorri hlið þar til stykkið mælist 45-45-45-46-46-47 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 46-46-46-47-47-48 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í – kantur í garðaprjóni meðfram handveg á að liggja utan á ermi (þ.e.a.s. látið kant í garðaprjóni liggja aðeins yfir kant meðfram ermakúpu). Saumið saman op við miðju að framan, neðan frá og upp þar til eftir eru ca 10 cm fyrir hálsmál (eða að óskaðri lengd) - saumið í ysta lykkjuboga á ystu lykkju svo að saumurinn verði flatur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við miðju að framan og prjónið upp frá réttu ca 72 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði Paris ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Festið litla tréperlu í hvorn enda á snúrunni. Gerið 2 skúfa og saumið niður einn skúf á hvorn enda á snúrunni, undir tréperlunni í hvorri hlið.
1 skúfur = Klippið 12 þræði Paris ca 11 cm. Klippið 1 þráð ca 25 cm til að sauma skúfinn með og leggið þennan þráð mitt í 12 þræðina. Leggið þræðina saman tvöfalda og hnýtið með nýjum þræði í kringum skúfinn (ca 1 cm frá toppi), festið vel og saumið skúfinn við snúruna eins og útskýrt er að ofan. Gerið hinn skúfinn alveg eins. Leggið snúruna með skúfunum saman tvöfalda og þræðið lykkjuna í gegnum eina lykkju efst í opið framan á kjólnum, dragið snúru endana í gegnum lykkjuna. Gerið alveg eins snúru með tréperlum og skúfum og festið efst í op í hinni hliðinni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.04.2018
FRÁGANGUR:..Saumið saman op við miðju að framan, neðan frá og upp þar til eftir eru ca 10 cm fyrir hálsmál (eða að óskaðri lengd) - saumið í ysta lykkjuboga á ystu lykkju svo að saumurinn verði flatur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður í sléttprjóni svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður slétt, hinum er sleppt niður og það myndast aðeins stærra gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 3 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Christine Bonifay wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment glisser les 8 premières mailles sur un arrêt de mailles MAIS de les tricoter avant pour ne pas couper le fil ( modèle drops 188-3, devant droit et gauche). Je ne sais pas comment laisser des mailles en attente tout en les tricotant..Pourriez-vous m 'éclairer svp? Merci d avance. Belle journée à vous.

19.01.2024 - 09:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bonifay, tricotez les 8 premières mailles sur l'endroit pour le devant droit/sur l'envers pour le devant gauche et glissez-les en attente, tricotez le rang jusqu'à la fin comme avant, tournez et tricotez le rang suivant. Au début du rang suivant à partir de l'encolure (sur l'endroit/devant droit et sur l'envers/devant gauche) rabattez les mailles (après les mailles en attente) pour l'encolure. Lorsque vous tricoterez le col à la fin, vous reprendrez sur l'endroit les 8 m du devant droit, vous relèverez les mailles autour de l'encolure et tricoterez les 8 m en attente du devant gauche. Bon tricot!

19.01.2024 - 15:54

country flag Martina wrote:

Ich habe zum Modell DROPS 188-3 eine Frage. Im Muster A.1 werden vor dem Stricken des V Musters zwei Maschen verschoben, nach links. Was passiert mit diesen nachdem dieser erste V Rapport gestrickt wurde. Also was passiert mit diesen 2 Maschen in der letzten Reihe des V Musters, bitte ? Vielen Dank im Vorraus.

09.01.2024 - 13:05

country flag Thirza wrote:

Hallo! Ik ben bezig met de jurk patroon 188-3. Hiervoor moet ik bij A1.1 het patroon 2 steken naar links verplaatsen. Op jullie website vind ik alleen een filmpje hoe ik het patroon naar rechts moet verplaatsen. Kunnen jullie mij uitleggen hoe ik het patroon naar links verplaats? Moet ik dan gewoon 2 steken breien zoals ze zich voordoen en dan pas het patroon inzetten? Of moet ik iets anders doen? Met vriendelijke groet, Thirza

29.09.2023 - 13:19

country flag Monjoie wrote:

Bonjour et merci pour ce joli modèle Dans A1 à la flèche 1 est ce qu il faut glisser 1 maille et tricoter 2 mailles ensembles ou 3 mailles ensembles ?

22.06.2023 - 11:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Monjoie et merci. À la flèche-1, au début du tour, glissez les 2 premières m du tour sans les tricoter (elles seront tricotées au dernier motif du tour), puis tricotez les m suiv. comme indiqué par le diag.: *5 m end, 1 jeté, 1 m end, 5 m end, il reste 2 m du 1er A.1, glissez 1 m à l'endroit, tricotez les 3 m suiv. ensemble à l'endroit (= la dernière m du motif et les 2 premières m du motif suivant) et passez la m glissée par-dessus les 3 m tricotées ens*, répétez de *-* ainsi tout le tour. à la fin du tour, vous tricoterez les 2 dernières m du tour (celles que vous aviez glissées). Bon tricot!

22.06.2023 - 14:19

country flag Anna wrote:

Hello. Can the A.3B and A.3A be worked in the round instead of back and forth, at least until the split? I am not sure what's the purpose of working back and forth before the split. Thank you, Anna

09.06.2023 - 09:53

DROPS Design answered:

Dear Anna, it might be possible - working each front piece separately allows you to decide the length of the seam on split. Happy knitting!

09.06.2023 - 13:25

country flag Anna wrote:

Hello. Does "displace beginning of round 2 stitches to the left" mean to place first two stitches onto the right needle without working them? Should the marker indicating the beginning of the row be moved too?

23.05.2023 - 23:02

DROPS Design answered:

Hi Anna, This means that you start the next round 2 stitches early, at the end of the previous round. And yes, you can move the marker to the new start of the round. Happy knitting!

24.05.2023 - 06:53

country flag Marcia Brown wrote:

Can you clarify if the 1st stitch on round 6, (purl round ) is slipped before completing the round? There are indentations on rounds 24, and 44 in A1 chart and also in A4 chart. Is it possible for me to translate comments from other knitters to English ? These comments may answer my question. Thank you.

09.05.2023 - 11:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brown, On round marked with arrow-1 in A.1 displace beginning of round 2 stitches to the left to make the pattern fit. On round marked with arrow-2 in A.1 displace beginning of round 1 stitch to the left. To displace the beginning of the round, slip the first 2 sts (arrow-1)/ the first st (arrow-2) of the round as if to K, move the marker for beg of round here and continue working diagram. Happy knitting!

09.05.2023 - 16:18

country flag Mariam wrote:

Hallo, Ab dem Teil im Rock im Diagramm A1 mit dem 1. Pfeil geht mein V Muster nicht auf. Können sie nochmal das mit dem nach links verschieben erklären, soll der Rundenbeginn nur für die Runde mit dem Pfeil verschoben werden oder gilt das auch für die darauffolgenden Runden?

25.04.2023 - 01:29

DROPS Design answered:

Liebe Mariam, am Anfang der Reihe mit dem Pfeil stricken Sie die 2 ersten Maschen von A.1 und den Markierer legen Sie hier (nach dieser 2 Maschen die früher am Anfang der Runde waren = die sind jetzt die 2 Maschen der Runden); dann stricken Sie A.1 wie im Diagram gezeigt (die 2 letzten Maschen von jedem Rapport sind zusammen mit den 2 ersten Maschen vom nächsten Rapport gestrickt). Beim Pfeil-2 stricken Sie dann die 1. Masche der Runde und legen Sie den Markierer hier = diese Masche ist jetzt die letzte Masche der Runde (und nicht mehr die erste Masche). Viel Spaß beim stricken!

25.04.2023 - 08:24

country flag Helena Šindlerová wrote:

Dobrý den, nejsem si jistá, jestli v popisku u ikonek vzoru (schématu) nemá být u černého oválku - 2x nahodíme, v následující řadě upleteme 1 nahození OBRACE, druhé spustíme z jehlice.

24.04.2023 - 19:21

country flag Marcia Brown wrote:

The dress size described in the pattern is S-M_L etc. What bust size relates to the dress size. Thanks

01.04.2023 - 21:29

DROPS Design answered:

Dear Marcia, you can see the measurements in cm corresponding to each size in the schematic after the pattern instructions and the charts. Happy knitting!

02.04.2023 - 19:44