Anja skrifaði:
Beste, bij het doornemen van de uitleg lees ik bij de tip voor het minderen aan de mouwen dat er vóór de markeerdraad moet geminderd worden door 2 st samen te breien en na de markeerdraad door een steek af te nemen en over te halen over de volgende gebreide steek. Vanwaar dit verschil in manier van minderen? Mag dit niet telkens door samen te breien? Alvast bedankt!
11.02.2019 - 18:29DROPS Design svaraði:
Dag Anja,
Op deze manier liggen (/wijzen) de steken vanaf beide kanten richting de onderarm toe, vandaar dat het voor en na de markeerdraad verschillend wordt gedaan.
13.02.2019 - 11:10
Horti Vuegen skrifaði:
Omdat ik niet graag brei met rondbreinaald en al de pulls hiermede worden gebreid is mijn vraag of jullie in de beschrijving kunnen melden hoe je tewerk gaat wanneer met 2 naalden wordt gebreid ( aantal steken enz...) Veel dank en succes !
06.11.2018 - 15:59DROPS Design svaraði:
Dag Horti,
We hebben een algemeen artikel over hoe je een patroon omzet om met rechte naalden te kunnen breien, die kun je hier vinden. Let wel op dat niet alle patronen geschikt zijn om met rechte naalden te breien.
07.11.2018 - 15:06
Britta skrifaði:
Hvilket mønster er det for det bliver ikke beskrevet.
23.10.2018 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hei Britta. Det er ikke noe mønster på denne genseren. Det er riller i overgnagen mellom bol og ermer, og felles til raglan på hver side av disse maskene, er det kanskje det du sikter til? God fornøyelse.
23.10.2018 - 15:56
Birgitte skrifaði:
Jeg vil gerne strikke den ensfarvet i str. M, hvormange nøgler skal jeg så have af hver kvalitet?
09.10.2018 - 12:53DROPS Design svaraði:
Hei Birgitte. Siden du strikker med 2 tråder, og DROPS Alpaca er ensfarget hele veien (natur) kan du bruke garnkalkulatoren vår for å finne ut hvor mange gram Kid-Silk du trenger. Fyll inn den oppgitte garnmengden av Alpaca for din størrelse og du vil få vite hvor mye Kid-Silk dette tilsvarer. God fornøyelse.
16.10.2018 - 13:13
D. Slot skrifaði:
Tak for svar, men jeg vil gerne have halsudskæringen dybere, da jeg også skal bruge den med en skjorte under?
19.09.2018 - 17:28
D.Slot skrifaði:
Kan modellen strikkes nedefra og op: Så kan jeg vente med at tage stilling til halsen til sidst?
17.09.2018 - 21:08DROPS Design svaraði:
Hej, Det kan det godt, men vi kan desværre ikke hjælpe dig med at skrive den om. Men halsen er så flot på :)
19.09.2018 - 14:45
Marie skrifaði:
Bonjour, pour les couleurs alternatives, il est écrit : A) DROPS Alpaca 01, DROPS Kid-Silk 01, 04. B) DROPS Alpaca 01, DROPS Kid-Silk 01, 18. Pour le fil DROPS Alpaca, s'agit-il du 101 blanc ou du 100 naturel car il n'y a pas de couleur 01?
09.08.2018 - 20:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, tout à fait, il s'agit d'Alpaca 100, naturel. Bon tricot!
13.08.2018 - 08:52
Doris Manneck skrifaði:
Ich möchte diesen Pulli gerne in Grösse L nacharbeiten und habe noch 500 g Baby Alpaka Silk liegen. Wird das wohl reichen ? \\r\\nUnd wird er dann zweifädig gestrickt?
20.06.2018 - 20:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Manneck, dieses Modell wird 2-Fädig gestrickt (= 2 Fäden Garngruppe A: Kid-Silk und Alpaca), BabyAlpaca Silk können Sie gerne stricken, entweder auch 2-Fädig oder mit 1 Faden Kid-Silk z.B. stricken. Hier lesen Sie mehr über Garnalternativen, und damit die neue Garnangaben kalkulieren. Viel Spaß beim stricken!
21.06.2018 - 08:01
Frida skrifaði:
Under ryg og forstykke står der at arbejdet nu måler 36 cm, derefter skal man strikke 7 cm retstrik og derefter vil arbejdet måle 66 cm. Jeg synes ikke helt regnestykket går op
18.06.2018 - 22:08DROPS Design svaraði:
Hej Frida, når arbejdet måler 36 cm fra arbejdet blev delt strikker du retstrik, når du har gjort det måler det totale arbejde 66 cm (fra skulderen og ned). Du finder også alle mål i måleskitsen nederst på siden. God fornøjelse!
19.06.2018 - 08:38Pia Carr skrifaði:
Jeg ser ikke mønstret beskrevet?
21.04.2018 - 22:36
Sailor's Luck#sailorslucksweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með laskalínu og röndum prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 191-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR: 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði gráblár Kid-Silk. 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði natur Kid-Silk. 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði gráblár Kid-Silk. Prjónið síðan með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði natur Kid-Silk til loka. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 16 lykkjur í garðaprjóni í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Umferðin byrjar við miðju að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 82-85-88-91-97-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði natur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð er aukið út um 4-13-18-19-17-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING- (jafnt yfir) = 86-98-106-110-114-118 lykkjur. Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónað er mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: 5-8-10-11-12-13 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-16-20-22-24-26 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5-8-10-11-12-13 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukningin fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 21-23-25-27-30-32 sinnum = 254-282-306-326-354-374 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar fyrir laskalínu á stykkið að mælast 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið hefur náð réttu máli (án þess að auka út fleiri lykkjur). Næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-220-240 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og prjónið garðaprjón yfir 10-9-7-8-8-9 lykkjur sem eftir eru á framstykki/bakstykki (frá mynstureiningu í garðaprjóni í laskalínu), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn í ytri hlið í hverri einingu í garðaprjóni við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 1 lykkju í hverri einingu í garðaprjóni með því að prjóna 2 ystu lykkjur í hverri mynstureiningu í garðaprjóni í hliðum á peysu slétt saman (= 1 lykkja færri í hverri einingu í garðaprjóni í hvorri hlið, alls 4 lykkjur færri í umferð). ATH: Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjur í garðaprjóni koma smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni (þ.e.a.s. aukið er út um 4 lykkju og fækkað er um 4 lykkjur í annarri hverri umferð. Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 8-8-9-9-7-7 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 172-188-200-216-240-260 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 55-61-69-71-77-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 61-67-77-79-87-91 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón, jafnframt er lykkjum fækkað í garðaprjóni alveg eins og á fram- og bakstykki (lykkjufjöldinn er sá sami). Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 6.-5.-3.-3.-2.-2. hverri umferð alls 12-13-18-18-20-22 sinnum = 37-41-41-43-47-47 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 37-35-34-32-30-29 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur. Ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sailorslucksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.