DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11220.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sailor's Luck Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu og röndum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk.

DROPS 191-27
DROPS Design: Mynstur no-010
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-75 g litur 08, gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Alpaca 100, DROPS Kid-Silk 01, 04.
B) DROPS Alpaca 100, DROPS Kid-Silk 01, 18.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11220.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5.
Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

RENDUR:
11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Nord og 1 þræði gráblár Kid-Silk.
11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Nord og 1 þræði natur Kid-Silk.
11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Nord og 1 þræði gráblár Kid-Silk.
Prjónið síðan með 1 þræði natur Nord og 1 þræði natur Kid-Silk til loka.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 16 lykkjur í garðaprjóni í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í garðaprjóni í kraga mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4 næstu með ca 11-11-11-12-12-12 cm millibili (= í skiptingu á milli hverra randar + 1 hnappagat 11-11-11-12-12-12 cm á eftir síðustu rönd).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 92-95-98-101-107-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í litnum natur Nord og 1 þræði í lintum natur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – munið eftir HNAPPAGAT! Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð er aukið út um 4-13-18-19-17-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 96-108-116-120-124-128 lykkjur.
Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 5-8-10-11-12-13 lykkjur í sléttprjóni (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-16-20-22-24-26 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur, garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkju garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5-8-10-11-12-13 lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokin (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 21-23-25-27-30-32 sinnum = 264-292-316-336-364-384 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð á stykkið að mælast 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður (án þess að auka út fleiri lykkjur) þar til stykkið hefur náð réttu máli.

Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 41-45-47-51-55-59 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið þær 41-45-47-51-55-59 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 166-182-194-210-230-250 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan og yfir þær 10-9-7-8-8-9 lykkjur sem eftir eru á framstykki/bakstykki (frá þar sem mynstureining í garðaprjóni í laskalínu), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn í ytri hlið í hverri einingu með garðaprjóni við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 1 lykkju í hverri einingu með garðaprjóni með því að prjóna 2 ystu lykkjur í hverri mynstureiningu með garðaprjóni í hliðum á peysu slétt saman (= 1 lykkja færri í hverri einingu með garðaprjóni í hvorri hlið, alls 4 lykkjur færri í umferð).
ATH: Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjurnar í garðaprjóni koma smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni (þ.e.a.s. aukið er út um 4 lykkju og fækkað er um 4 lykkjur í annarri hverri umferð). Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 8-8-9-9-7-7 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 182-198-210-226-250-270 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 55-61-69-71-77-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 61-67-77-79-87-91 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón, jafnframt er lykkjum fækkað í garðaprjóni alveg eins og á fram- og bakstykki (lykkjufjöldinn er sá sami). Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í ca 6.-5.-3.-3.-2.-2. hverri umferð alls 12-13-18-18-20-22 sinnum = 37-41-41-43-47-47 lykkjur.
Haldið síðan áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 37-35-34-32-30-29 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur. Ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.03.2018
ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2018
Leiðrétting á litanúmeri í DROPS Alpaca natur, litur nr 100

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Sigrid Grohmann-Kraus wrote:

Guten Tag, werden die unter den Ärmeln neu angeschlagenen Maschen ebenfalls kraus rechts gestrickt?

08.04.2024 - 16:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grohman-Kraus, die neu angeschlagenen Maschen werden glatt rechts gestrickt, die kraus rechte Maschen werden nach und nach abgenommen bis alle Maschen glatt rechts gestrickt sind. Viel Spaß beim Stricken!

09.04.2024 - 08:31

country flag Ritva wrote:

Lisäysvikki 2. Norjalaisessa ohjeessa kerrotaan että neulo kunnes jäljellä 2 silmukkaa merkkilankaan. Suomenkielisessä 4 silmukkaa joka mielestäni on väärin.

06.09.2022 - 14:18

country flag Gunilla Wiese wrote:

Hej! Undrar om de 6 nya maskorna under ärmarna ska stickas i rät- eller slätstickning? Blir snyggare om de stickas i rätstickning då det blir en slätstickning kil på både body och ärm om jag tänker rätt. Hälsningar Gunilla Wiese

23.09.2021 - 15:07

DROPS Design answered:

Hej Gunilla. Ja, de stickas i slätstickning. Mvh DROPS Design

24.09.2021 - 09:04

country flag Anja wrote:

Hallo, habe die Jacke genau nach Anleitung gestrickt. Doch es irriertiert mich ich das ich am Anfang, wenn ich die Raglanzunahmen 8x gearbeitet habe und in der nächsten Hinreihe beim rechten Vorderteil wieder einen Umschlag machen muss, so ergibt die Arbeit zwei verschiedene Vorderteile. Das eine linke Vorderteil hat 12 Maschen und das rechte inzwischen schon 30 Maschen. Ist das so korrekt ? Liebe Grüße Anja

18.02.2021 - 11:28

DROPS Design answered:

Liebe Anja und Verzeihung für die verspäte Antwort, Ihre Frage wurde leider übersehen. Ich habe gerade alle Größe geprüft und habe die selbe Mascheanahl für beide Vorderteile: 5 BlendeMaschen + 5-8-10-11-12-13 = 10-13-15-16-17-18 Maschen insgesamt. Die Raglanzunahmen werden dann beidseitig von den 16 Maschen kraus rechts gestrickt. Wenn Sie nicht weiter könnten, stellen Sie bitte gerne Ihre Frage wieder, schreiben Sie uns vielleicht auch kurz mal die Größe. Danke im voraus!

26.04.2021 - 14:38

country flag Maria Stridh wrote:

Ytterligare en fråga då jag tycker mönstret 191 27 är lite svårt o förstå. Fram- och bakstycke: Gör jag ökning av 4 maskor o minskning av 4 maskor tills rätstickningen försvunnit o när det är klart påbörjar ökning som ska ske i mitt fall 4 gånger med 9 cm mellanrum. Eller sker dessa två saker samtidigt???

21.09.2020 - 14:00

DROPS Design answered:

Hej Maria. Det ser ut som om det ska ske samtidigt enligt mönstret. Mvh DROPS Design

24.09.2020 - 11:49

country flag Maria Stridh wrote:

Hej! Vid ökning omslag o på avigt varv stickas vriden avig. Ska omslaget vridas åt olika håll? Tycker intagningarna blir större på ena sidan av de 16 m dvs varannan intagninslinje är snygg o de andra mer glesa. Går tyvärr inte o infoga foto här.

08.09.2020 - 12:21

DROPS Design answered:

Hej Maria, der vil altid være lidt forskel, vi har strikket omslaget ens på begge sider. Man kan prøve at lave omslaget lidt stramt, eller så går det selvfølgelig at vride det den anden vej. Vi synes ikke forskellen er så stor at man er nødt til det. ... Men det er jo en smagssag så man gør som man vil. God fornøjelse1

09.09.2020 - 14:45

country flag Lucia wrote:

Buongiorno, nella descrizione dello sprone si parla di gruppi di 16 maglia a maglia rasata, mentre nei suggerimenti per il raglan sono indicate 16 maglie a legaccio, come si vede anche dal particolare nella foto. Chiedo inoltre consiglio su come effettuare il cambio di colore.

14.04.2020 - 14:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia, abbiamo corretto il testo, le 16 maglie sullo sprone si lavorano a maglia legaccio. Buon lavoro!

14.04.2020 - 15:16

country flag Mette Stender wrote:

Garnforbrug er slet ikke rigtigt!!! Jeg er færdig med ryg/forstykke og har 2 ngl kid-silk tilbage i hvid, 2 ngl nord og intet kid-silk i blå. Mgl så stadig begge ærmer. Og kan ikke længere få den samme indfarvning. Garnforbrug bør rettes!!!!

03.01.2020 - 11:14

country flag Sigurveig Pétursdóttir wrote:

Förstår inte att ärmen skal vara kortare på de större storlekarna än de små. Fel?

06.10.2019 - 01:15

DROPS Design answered:

Hei Sigurveig. Man har ikke lengre ermer selv om man må ha en stor størrelse. Det er kortere mål i de større størrelsene pga bredere skuldervidde og lengre ermetopp). Mvh DROPS design

07.10.2019 - 10:41

country flag Mevel Annie wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le début, vous dites de faire un rang envers sur l'envers, et ensuite 3 côtes mousse, ce qui fait que l'on tricote 1 rg envers sur l'envers, puis ensuite 1 rg endroit sur l'endroit (mais là on obtient un jersey endroit sur l'endroit), ensuite bien sur on obtiendra un point mousse car tous les rangs seront à l'endroit. Y a t'il une erreur? Merci pour votre réponse. Cordialement. Annie Mével.

15.06.2019 - 19:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mevel, le tout premier rang se tricote en jersey envers (= à l'envers sur l'envers), le rang suivant sera donc l'endroit et se tricotera à l'endroit (= 1er rang des 3 côtes mousse), On tricote ensuite encore 1 côte mousse (= 2 rangs endroit) en répartissant des augmentations), le dernier rang est sur l'envers et on continue ensuite sur l'endroit en commençant à augmenter pour le raglan. Bon tricot!

17.06.2019 - 07:50