Marie Stette skrifaði:
Hvilken størrelse er det på genseren som blir brukt av modellen på bildet?
29.04.2022 - 21:12DROPS Design svaraði:
Hei Marie. Det er str. S eller M. For å finne riktig str til deg, ta en titt på målskissen og ut fra de mål velger du riktig str. mvh DROPS Design
02.05.2022 - 11:51
Susanne skrifaði:
Er der en grund til at blusen ikke er strikket på rundpind?
19.01.2019 - 06:45DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Akkurat denne modellen er designet for å strikkes frem og tilbake. Men det er ikke noe i veien for at du tilpasser den slik at den kan strikkes rundt om du heller ønsker det. God fornøyesle.
21.01.2019 - 07:35
Chantal LAGOUTTE skrifaði:
Bonsoir,le fil est -il tricoté seul ou en double ? est ce que le fait de le tricoter seul ne va pas faire un pull trop lâche, et large ?merci pour votre réponse.Bien cordialement Mme LAGOUTTE
16.11.2018 - 20:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lagoutte, on tricote ici avec 1 seul fil Brushed Alpaca Silk sur la base de 15 m x 28 rangs point mousse = 10 x 10 cm pour obtenir l'effet en photo et les mesures du schéma. N'hésitez pas à réaliser votre échantillon pour vérifier les mesures et la texture qui doit être souple. Bon tricot!
19.11.2018 - 07:59
Melody skrifaði:
In de streep telpatronen, staat 1 blokje dan voor 1 naald? Of staat een blokje voor een ribbel (2 naalden)? Alvast bedankt!
07.06.2018 - 19:22DROPS Design svaraði:
Dag Melody, 1 blokje staat voor 1 ribbel (dus voor 2 naalden)
08.06.2018 - 10:55
Jola skrifaði:
Witam właśnie jestem w trakcie robienia tego sweterka, czy liczba oczek na przód i tył w rozmiarze L została podana właściwie czy nie powinno być 108?. I kolejne pytanie, zbliżając się do dekoltu dodajemy oczka dla rozm. M 8 oczek, co nam daje 100 oczek a co z tymi dwoma na szwy, czy nie powinno się dodać jeszcze 2 oczek? Z góry dziękuję za pomoc, pozdrawiam Jola
24.03.2018 - 13:58
Josée Poirier skrifaði:
Superbe pour les journées et soirées fraîches. J'adore les couleurs et le style.
16.01.2018 - 17:48
Kathleen St-Onge skrifaði:
Très beau modèle, j'espère qu'il sera choisi
22.12.2017 - 23:38
Sunset at Sea#sunsetatseasweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 187-31 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11,5. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 11. og 12. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. 1 umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir með garðaprjóni, þ.e.a.s. 2 sléttar umferðir. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2, þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.1 til loka. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum og er saumuð saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 92-100-104-112-124-136 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-8-8-8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-10-8-8-12-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-90-96-104-112-122 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan RENDUR í garðaprjóni – sjá útskýringu að ofan. ATH: Rendur byrja með sléttum lykkjum frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkja fyrir saum) = 86-92-98-106-114-124 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 59-61-63-63-65-67 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu), setjið miðju 38-38-40-42-44-44 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir fyrstu 24-27-29-32-35-40 lykkjur, þ.e.a.s. fram að lykkjum á þræði, snúið stykkinu, fellið af 1 lykkju og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu, prjónið 23-26-28-31-34-39 sléttar lykkjur, snúið stykkinu, fellið af 1 lykkju og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 22-25-27-30-33-38 lykkjur eftir á öxl. Setjið axlasaumana á þráð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir þær 24-27-29-32-35-40 lykkjur sem eftir eru í hinni hlið á hálsmáli, snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, snúið stykkinu, prjónið 23-26-28-31-34-39 lykkjur slétt, snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og snúið stykkinu = 22-25-27-30-33-38 lykkjur eftir á öxl. Setjið nú allar lykkjur til baka á hringprjón 6 (meðtaldar lykkjur af þræði) = 82-88-94-102-110-120 lykkjur. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT í þessari umferð eru prjónaðar upp 2 lykkjur í hvorri hlið á hálsi þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli = 86-92-98-106-114-124 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6-8-6-6-10-12 lykkjur jafnt yfir = 92-100-104-112-124-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-8-8-8 cm, stykkið mælist nú ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Fitjið aðeins laust upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-8-8-8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan RENDUR í garðaprjóni alveg eins og á fram- og bakstykki (rendur byrja með sléttum lykkjum frá röngu). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-11-13-13-14 sinnum = 56-60-62-66-68-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-45-43-41-39 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkanti, en skiljið eftir ca 27-27-28-29-30-31 cm fyrir hálsmáli við miðju að framan og við miðju að aftan. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjuboga þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru 6-6-6-8-8-8 cm neðst niðri í hvorri hlið á fram- og bakstykki (= klauf). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsetatseasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.