DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Big Merino yarn
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 188-32

#billowingroseshrug

DROPS Design: Mynstur mb-043
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL/XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-600 g litur 19, beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 24 umferðir með ölduprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki, síðan er stykkið brotið saman í miðju og saumað saman undir ermum/í hliðum (sjá strikaða línu í mynsturteikningu). Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er prjónað með hringprjónum.

BOLERO:
Fitjið laust upp 140-163-163-186 lykkjur á hringprjón 5,5 með Big Merino.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 138-161-161-184 lykkjur (= 6-7-7-8 mynstureiningar með 23 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 128-149-149-170 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 3-3-4-4 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 12-12-14-14 cm mælt frá miðju á öldu) fitjið upp 12 nýjar lykkjur fyrir ermar í lok 2 næstu umferða = 152-173-173-194 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 10 lykkjur – byrjið á 3. umferð í mynsturteikningu þar sem 2 fyrstu umferðirnar voru prjónaðar þegar fitjaðar voru upp nýjar lykkjur fyrir ermar), haldið áfram með A.2 yfir næstu 126-147-147-168 lykkjur (byrjið í 3. umferð í A.2), prjónið A.4 (= 10 lykkjur – byrjið á 3. umferð í A.4) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 46-50-52-56 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Fellið af 12 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum = 128-149-149-170 lykkjur.
Prjónið síðan A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta skipti sem A.2 er prjónað er byrjað í 3. umferð í A.2 þar sem tvær fyrstu umferðirnar voru prjónaðar þegar lykkjur voru felldar af í hvorri hlið). Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 3-3-4-4 sinnum á hæðina er prjónað A.5 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (= 6-7-7-8 mynstureiningar með 21 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 140-163-163-186 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af frá réttu með teygjanlegum affellingarkanti eins og útskýrt er að neðan. Stykkið mælist ca 58-62-66-70 cm á hæðina.

TEYGJANLEGUR AFFELLINGARKANTUR:
Prjónið 2 lykkjur slétt, stingið vinstri prjóni í gegnum 2 lykkjur á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman, * 1 lykkja slétt, stingið vinstri prjón í gegnum 2 lykkjur á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið þessar tvær lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna, herðið á þræði og festið vel.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – sjá strikaða línu í mynsturteikningu. ATH: Saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
slétt frá réttu = slétt frá réttu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
svona er flíkin notuð = svona er flíkin notuð
Diagram for DROPS 188-32
Diagram for DROPS 188-32
Diagram for DROPS 188-32
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Patricia skrifaði:

J'ai donc tricoté ce modèle. La laine est belle et douce et les coloris sont beaux mais ce modèle est assez lourd sur les épaules et ma fille en voulait un aussi et l'a aussi trouvé lourd Dommage....

13.06.2025 - 10:21

country flag Patricia skrifaði:

Bonjour Je ne comprends pas trop pourquoi les tailles L et XL XXL ont le même nombre de mailles 163 car celui que j ai tricote pour moi taille 40 me va et j en tricote un pour ma fille qui taille 44 A part la longueur ce ne devrait pas être la même largeur Pourquoi n y a t il pas une taille intermédiaire ? Merci

07.04.2025 - 16:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Patricia, si les largeurs sont les mêmes dans ces deux tailles, notez que les longueurs sont différentes, elles viendront ainsi faire la différence. Bon tricot!

08.04.2025 - 09:19

country flag Romy skrifaði:

Sind die Löcher immer genau oberhalb? Bei mir geht sich das nicht aus. Vom Anfang an nicht. Könnten sie mir vielleicht einen Tipp geben. Vielen Dank im voraus

27.12.2024 - 15:04

DROPS Design svaraði:

Liebe Romy, benutzen Sie Markierer zwischen jedem Diagram, so wird es einfacher zu folgen; in diesem Video zeigen wir, wie man ein ähnliches Muster strickt. Das kann Ihnen vielleicht helfen. Viel Spaß beim Stricken!

02.01.2025 - 12:23

country flag Gisella Werner skrifaði:

Hej, kan man sticka denna i slätstickning eller rätstickning, dvs utan vågmönstret? Eller pårverkas måtten av det? Mvh Gisella

18.12.2024 - 13:51

DROPS Design svaraði:

Hej, ja det vil påvirke strikkefastheden, men hvis du kan få 20 masker på 10 cm, så vil du få samme størrelse som i måleskitsen :)

18.12.2024 - 14:31

country flag LEEN VANDE VELDE skrifaði:

Op het laatste van m'n werk moet ik A5 breien (6x volledig ???) dat wordt dan wel hoog vanaf dat ik afgekant heb voor de mouwen. Na het afkanten van de mouwen heb ik A2 3x gebreid in de hoogte en dus nu nog 6x A5 kan je mij helpen aub

24.11.2024 - 16:52

DROPS Design svaraði:

Dag Leen,

Ja dit klopt, je kunt de maten aanhouden zoals onderaan aangegeven in de tekenening. Het werk wordt op de stippellijnen aan elkaar genaaid. Vandaar dat dat nu een grote afstand lijkt.

27.11.2024 - 11:45

country flag LEEN VANDE VELDE skrifaði:

HELP : telpatroon A1 : zijn dat in totaal 6naalden voor het hele telpatroon of 12 nld ? dus : 1 nld r, 1 nld av, nogmaals 1nld r en 1 nld av. en dan 2st samenbreien en overhalingen maken, en dan....1 nld av. ? en dan opnieuw (op 21 st.) ?

14.11.2024 - 11:03

DROPS Design svaraði:

Dag Leen,

Alle naalden in de telpatronen zijn weergegeven, dus het zijn in totaal 6 naalden en niet 12 naalden.

12.12.2024 - 15:28

country flag LEEN VANDE VELDE skrifaði:

Kan ik dit modelletje met gewone naalden breien (geen rondbrei), hebben jullie hier dan een beschrijving over ? mvg

13.11.2024 - 17:00

DROPS Design svaraði:

Dag Leen,

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

Het is helaas niet voor ieder patroon geschikt. Bij dit patroon is het zo dat je heel veel steken tegelijkertijd op de naald hebt en dat gaat dan niet passen. (Dit hangt natuurlijk ook een beetje af van de maat die je maakt.)

13.11.2024 - 19:33

country flag Amanda L skrifaði:

I am having trouble figuring out which size to make since you fold and sew it into a different shape. Are there any measurements available of the finished size - or suggestions based on bust / back measurements? I knit size M or L sweaters from you usually but cant tell which works here. Any help would be appreciated.

25.09.2024 - 23:47

DROPS Design svaraði:

Dear Amanda, you can take help from a garment from the same catalogue (see 188 here) - read even more here. Happy knitting!

26.09.2024 - 08:14

country flag Barbara skrifaði:

Hello - how do I work A1? R1 knit all 161 stitches (plus 2 edge) R2 same as R1 R3 - k 2tog 4x, yo 6x, k2tog 4x and repeat over 161 stitches? etc Sorry for the long comment - is A1 6 rows of 163 st or a continuous pattern over only one row. I am confused because the instructions say "next row". But if it is just one row how would you get 7 repetitions of 23 stitches - what is being repeated. Thank you for all your help.

20.09.2024 - 22:05

DROPS Design svaraði:

Dear Barbara, you can see more information on our knitting charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. On the first row of A.1, for the middle sizes, you work 1 edge stitch, then work the 23 stitches of the first row of A.1 (= knit all 23 stitches) 7 times in the row and finish with 1 edge stitch. Turn and purl over all stitches, except the edge stitches (remember that white square = purl from wrong side). On row 3, you work [4 k2tog, then (knit 1, 1 yarn over) 6 times, knit 1, 4 k2tog] and repeat from [ to ] 7 times in the row, over the 161 stitches (don't forget the edge stitches). Happy knitting!

23.09.2024 - 00:27

country flag Ruth skrifaði:

Where has the diagram gone ? I was following this pattern online [because you can’t print it - the photos go on top of the text] when I noticed that the diagram had disappeared. Please put it back otherwise I won’t be able to finish my bolero.

25.06.2022 - 10:23

DROPS Design svaraði:

Dear Ruth, we don't have a problem from our end for printing this pattern and the diagrams are found under the pattern as usual. Sometimes, there are problems both when printing and visualizing charts due to unusually high traffic on our website; in that case, we recommend trying again later to see if the problem is solved. If the problem persists, you can try using another browser as well. Happy knitting!

26.06.2022 - 13:06