Lieve Ryckaert skrifaði:
Geachte, ik heb het deken gehaakt maar kom tot de vaststelling dat ik 4 bollen donkergrijs van de staartvin over heb. Nochtans kloppen de afmetingen van mijn werk. Hoe kan dit? 4 bollen lijkt me wel erg veel. De levering klopte ook met het opgegeven aantal nodige bollen. Zou ik toch ergens een fout gemaakt hebben? Met dank voor uw reactie.
02.01.2018 - 17:07DROPS Design svaraði:
Hallo Lieve, Bedankt voor het doorgeven. 4 vier bollen over houden is wel veel. Als blijkt dat er te veel bollen zijn aangegeven in het patroon, dan passen we dat aan, maar tot nu toe is dat niet bekend. Meestal kun je de overgebleven bollen weer inleveren bij je verkooppunt.
03.01.2018 - 17:15
Kirsten Nowak skrifaði:
Hej 😊 Jeg hækler hajtæppet i str. 7/8. Problemet opstår ved begyndelsen af halefinnen, hvor tæppet lægges dobbelt. De 34 lm bliver til 17 m, så skal man finde de 4 midterste masker. Jeg har prøvet med 6 m på den ene side og 7 på den anden, men det blev hurtigt skævt. Vil man lave 3 fm i stedet for 4 så er slidsen ikke midt for? Hvad foreslår I? Mvh. Kirsten.
22.12.2017 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, Du kan evt tage 1 maske ud så du har 18 m, så har du 7 masker på hver side. God fornøjelse!
02.01.2018 - 11:03
Désirée skrifaði:
Godmorgon! Jag är mycket förtjust i Shark Attack Blanket och vill gärna virka den. Problemet är att mönstret slutar vid 14 år. Kan ni hjälpa att räkna ut mönstret för 16 och t.o.m 18 år? Jag försökte räkna ut själv men föll direkt. Det visade sig vara lite för komplicerat. Tack på förhand! //Désirée
06.12.2017 - 08:10DROPS Design svaraði:
Hej Desiree, vi kan inte räkna om mönstret, men kan du inte bara fortsätta till önskad längd? Bredd överst kanske räcker med 112 cm... Lycka till :)
07.12.2017 - 14:06
Shark Attack Blanket#sharkattackblanket |
|
![]() |
![]() |
Heklað hákarla teppi. Stærð 3-14 ára. Stykkið er heklað úr DROPS Snow.
DROPS Children 28-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI: Búkurinn á hákarlinum er heklaður neðan frá og upp, hann byrjar á milli búks og sporðs. Síðan er sproðurinn heklaður frá botni á búk og niður. Allt stykkið er heklað fram og til baka. BÚKUR: Heklið 32-34-34-36-38-40 loftlykkjur með heklunál 8 með litnum milligrár. Tengið saman loftlykkjuumferðirnar í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan fram og til baka. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja lykkju umferðina út = 32-34-34-36-38-40 stuðlar. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Heklið stuðla og aukið út um 8-6-6-9-7-10 stuðla í umferð = 40-40-40-45-45-50 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú eru umferðirnar heklaðar áfram svona, það á að auka út jafnóðum – LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM! Aukið út um 5 stuðla jafnt yfir með 4-5-6-8-7-10 cm millibili alls 6-6-8-7-9-10 sinnum = 70-70-80-80-90-100 stuðlar. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er hekluð 1 umferð með stuðlum án útaukninga, í næstu umferð eru heklaðir stuðlar og aukið út um 3-7-1-9-3-1 stuðla jafnt yfir = 73-77-81-89-93-101 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 66-80-94-108-124-138 cm. Skiptið yfir í svartan og heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Skiptið yfir í litinn jólarauður og heklið 1 umferð með 1 stuðli í hverja fastalykkju og hekliið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Skiptið yfir í litinn natur og heklið næstu umferð þannig: 1 loftlykkju, * hoppið yfir 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju er heklað: 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkja, heklið 1 keðjulykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina út. Klippið frá og festið enda. Búkurinn er nú klár. SPORÐUR: Leggið búkinn tvöfaldan með op í miðju á stykki. Notið litinn dökk grár og heklunál 8, heklið 1 umferð með fastalykkjum í gegnum bæði lögin neðst meðfram uppfitjunarkantinum = 16-17-17-18-19-20 fastalykkjur. Heklið síðan hverja umferð þannig: 3 stuðlar í fyrstu lykkju, heklið 1 stuðul í hverja lykkju fram að 4 miðjulykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 lykkjunum, 1 stuðull í hverja lykkju fram að síðustu lykkju og heklið 3 stuðla í síðustu lykkju. Endurtakið þessa umferð alls 13-15-16-17-18-19 sinnum = stykkið mælist ca 26-30-32-34-36-38 cm. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum svartur, heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. AUGU: Heklið 2 augu, saumið þau niður með litnum milligrár ca 10 cm frá kanti efst. Heklið þannig: Heklið 3 loftlykkjur með litnum svartur og heklunál 8, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað 1. stuðuls), heklið 11 stuðla um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju (= 12 stuðlar). Klippið frá og skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju (kemur í stað 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju (= 12 fastalykkjur). UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju (kemur í stað 1. fastalykkju), 1 fastalykkja í sömu lykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju (= 24 fastalykkjur). Klippið frá og skiptið yfir í milligrár. UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju (kemur í stað 1. fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju (= 24 fastalykkjur). Klippið frá og festið enda. OP: Saumið saman opið eins langt og óskað er eftir – 20-30 cm upp ef bara á að fela fæturna eða hálfa leiðina upp opið ef teppið á að þekja meira. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sharkattackblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.