Anne Lericque skrifaði:
Bonjour, je suis occupée à tricoter ce modèle "Wellness" j'ai une question concernant le nombre de mailles à monter pour les manches, 24 pour la taille choisie..n'y a-t-il pas une erreur Cela me semble très peu Merci d'avance de bien vouloir me répondre
17.03.2021 - 14:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lericque, il faut bien monter 24 mailles (avec les aiguilles 7) dans les 3 premières tailles - pensez à bien vérifier votre échantillon, vous devez avoir 12 m = 10 cm avec les aiguilles 8. Après les côtes, vous diminuerez à 22-24 ou 26 m selon la taille et continuerez en jersey avec les aiguilles 8. Bon tricot!
17.03.2021 - 15:57
Siri Fjeldberg skrifaði:
Hei! Hva betyr det når det står at jeg skal strikke 4-0-4-0-4-0 vrang i mønsteret?
30.06.2019 - 16:49DROPS Design svaraði:
Hej. Det är antal maskor i de olika storlekarna (S - M - L - XL - XXL - XXXL). Dvs att om du stickar t.ex. storlek M så stickar du 0 maskor vrang. Lycka till!
01.07.2019 - 10:37
Maralyn skrifaði:
Can this be knitted with the cowl neck attached please? If so please can you advise the best way to do this please? Thanks
31.03.2019 - 00:09DROPS Design svaraði:
Dear Maralyn, the detachable collar is worked over a larger number of stitches than the neck edge is worked, so that it is wider. We are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you can find find inspiration from our patterns with high collar and similar tension. Happy knitting!
01.04.2019 - 12:56
Maralyn skrifaði:
Can you advise of the best yarn to knit this in other than the Drops Alpaca boucle please? I know you suggest yarns but wonder if you have seen any yarns made up in this pattern. Thanks
20.03.2019 - 11:57DROPS Design svaraði:
Dear Maralyn, you can check the alternatives yarn with our yarn converter, but noone will give the same texture as Alpaca Bouclé here - read more about alternatives here and do not hesitate to contact your DROPS store for any assistance choosing a yarn - even per mail or telephone. Happy knitting!
20.03.2019 - 13:33
Carolina Barbé skrifaði:
Hola!, Adoro esta página, son de real gran ayuda para todo amante del tejido. Casi nunca tengo dudas con sus patrones pues generalmente están muy bien explicados, pero esta vez, en el patrón “Wellness”, faltó la explicación de los bolsillos... Les agradeceré una pequeña guía al respecto, Gracias
10.03.2019 - 03:00DROPS Design svaraði:
Hola Carolina. Ha sido un fallo al publicar el patrón. Ya está solucionado. Gracias por avisar.
16.03.2019 - 16:02
Wellness#wellnesssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stroffi, vösum og lausum kraga úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Kraginn er prjónaður í hring á stuttan hringprjón sem sér eining og er ekki festur á peysuna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-160-176-192-208-224 lykkjur á hringprjón 8 með Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 72-80-88-96-104-112 lykkjur (= hliðar). Prjónið mynstur þannig: 4-0-4-0-4-0 lykkjur brugðið, prjónið * 8 lykkjur slétt, 8 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 12-0-12-0-12-0 lykkjur, prjónið 8-0-8-0-8-0 lykkjur slétt, 4-0-4-0-4-0 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með mynstur og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm skiptist stykkið við prjónamerkin og fram- og bakstykki eru nú prjónuð til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72-80-88-96-104-112 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður (þ.e.a.s. prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur) og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða, kantlykkjur eru nú prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 74-82-90-98-106-114 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Fellið nú af miðju 18-18-18-20-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 27-31-35-38-42-46 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af – lesið AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 72-80-88-96-104-112 lykkjur. Haldið áfram alveg eins og á bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-53-55-56-57 cm. Setjið nú miðju 12-12-12-14-14-14 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 27-31-35-38-42-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Fitjið upp 24-24-24-32-32-32 lykkjur á sokkaprjón 8 með Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið stroff (= 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 22-24-26-26-28-28 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3½-2½-2-1½ cm millibili alls 7-7-7-9-9-10 sinnum = 36-38-40-44-46-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-38-36-33-31-29 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 58-63 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-28-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 7. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm og fellið af. Prjónið hinn vasann alveg eins. Saumið vasana á framstykki – saumið þá ca 2 cm frá kanti og skiljið eftir ca 24-26-28-30-32-34 cm bil á milli vasa að framan. LAUS KRAGI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón. Fitjið upp 96-96-96-104-104-104 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með Alpaca Bouclé. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 og prjónið stroff (= 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 18-18-20-20-22-22 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wellnesssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.