Zaza skrifaði:
Bonjour, pour le diagramme représentant le grand triangle les explications sont bien : Glisser 1 m à l'endroit, 2 m ensemble à l'endroit, passer la maille glissée par dessus les 2 mailles tricotées Merci pour votre réponse Cordialement zaza
04.12.2017 - 12:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Zaza, nous n'avons pas encore eu confirmation de la Design Team, mais c'est effectivement ainsi que je procèderai également. Bon tricot!
04.12.2017 - 13:56
Zaza skrifaði:
Bonjour, Dans la légende des diagrammes, il n'y a pas celle représentant le grand triangle noir au centre sur le diagramme A 6-7 Merci pour votre réponse Cordialement zaza
30.11.2017 - 20:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Zaza et merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier et faire ajouter ce symbole manquant. Bon tricot!
01.12.2017 - 09:54
RAVASSAT Frédérique skrifaði:
Sur le diagramme de A 1à A5, en fin de A3, il y a un jeté et il faut refaire un jeté en début de A4 (donc deux jetés qui se suivent) et cela sur différents rangs. Comment procéder, car je n'arrive pas à tomber sur le même nombre de mailles indiqué ?
23.11.2017 - 17:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ravassat, on tricote A.1 à A.5 avec 1 m lis de chaque côté et 1 m jersey au milieu ainsi: 1 m lis, A.1, A.2, A.3, 1 m jersey, A.4, A.2, A.5, 1 m lis. Ainsi, on a bien 1 m end entre le dernier jeté de A.3 et le 1er jeté de A.4. Bon tricot!
24.11.2017 - 08:26
Caroline C skrifaði:
Hvad betyder den sorte trekant i mønsteret?
11.11.2017 - 19:27DROPS Design svaraði:
Hej Caroline, tak for info, det skal vi få lagt ud så hurtigt som muligt. God dag!
13.11.2017 - 14:35
Sonja Demerlier skrifaði:
Ik wil beginnen aan A6, maar de beschrijving van de driehoek staat niet beschreven wat is. Ongeveer te midden van A6
30.10.2017 - 06:05DROPS Design svaraði:
Hallo Sonja, Bedankt voor het doorgeven, ik zal het even doorgeven aan de designafdeling, zodat het symbool geplaatst wordt. Het is: 1 steek recht afhalen, 2 steken recht samenbreien, de afgehaalde steek over de samengebreide steken halen.
30.10.2017 - 22:50
Fuego de Dragon#fuegodedragonshawl |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað sjal með kanti með gatamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk.
DROPS 183-17 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. SJAL: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 5 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 2 og allar umferðir frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (slétt frá röngu) og prjónið allar lykkjur og uppslátt brugðið. UMFERÐ 3: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 7 lykkjur. UMFERÐ 5: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 11 lykkjur. UMFERÐ 7: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 15 lykkjur. UMFERÐ 9: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt og setjið eitt prjónamerki í miðju á þessum lykkjum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt (í miðju á þessum lykkjum er nú þegar eitt prjónamerki = miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt og setjið eitt prjónamerki mitt í miðju á þessum lykkjum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 23 lykkjur. UMFERÐ 11: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur fram að 1 kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 27 lykkjur. Prjónið eftir MYNSTUR sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir 3 lykkjur, A.2 yfir 5 lykkjur (fyrsta prjónamerki er staðsett í miðju á A.2), A.3 yfir 4 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón (annað prjónamerki er í þessari lykkju = miðjulykkja), A.4 yfir 4 lykkjur, A.2 yfir 5 lykkjur (þriðja prjónamerki er staðsett í miðju á A.2), A.5 yfir 3 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 31 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 51 lykkjur í umferð. Endurtakið síðan útaukningu eins og útskýrt er í A.x. Aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur í hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. 12 lykkjur í hverri endurtekningu á hæðina), útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni hvoru megin við hvert A.2. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu til að merkja miðju lykkju og miðju á A.2. Endurtakið eins og útskýrt er í A.x alls 24 sinnum á hæðina, það eru alls 339 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 36 cm. KANTUR: Prjónið nú kant í gatamynstri þannig: 1 kantlykkja með garðaprjóni, A.6 (= 48 mynstureiningar með 7 lykkjum í fyrstu umferð) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka þar til öll mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Nú eru 675 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af. Til þess koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fuegodedragonshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.