Fie skrifaði:
Tak for opskriften ☺️ Er der en speciel grund til at ærmerne strikkes frem og tilbage i stedet for bare rundt?
28.11.2023 - 19:55DROPS Design svaraði:
Hej Fie, du må gerne strikke rundt :)
29.11.2023 - 11:39
CATHERINE PAILHE skrifaði:
Bonjour, mon fils a 12 ans. a quelle taille correspond le S. Merci
06.01.2020 - 13:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pailhe, vous trouverez en bas des explications un schéma avec toutes les mesures pour chaque taille, comparez ces mesures à celle d'un vêtement similaire dont il aime la forme pour vérifier si la taille lui convient. plus d'infos sur les tailles ici. Bon tricot!
06.01.2020 - 14:17
Bart skrifaði:
Hoi. Het is mij niet helemaal duidelijk of die 1ste naar recht in het lijf de goede kant of de verkeerde kan is. Mijn eerste gedachte was de goede kant, omdat het een rechte naald is, maar dan komen de boordsteken niet goed uit met patroon A1. Dus nu denk ik dat de 1ste naald recht aan de verkeerde kant is. Klopt dat?
18.10.2019 - 08:23DROPS Design svaraði:
Dag Bart,
De eerste naald voor de boordsteek is 1 naald recht aan de goede kant. Je breit namelijk in de rondte en je keert het werk niet. Na de naald recht brei je boordsteek met 2 recht, 2 averecht, en A.1 over het midden van het voorpand.
05.11.2019 - 14:42
Hawa skrifaði:
Bonjour. Je suis en train de réaliser ce modèle. Je ne suis pas sûre de ce que vous entendez par "ajuster pour que ce soit un tour 1-3-5-7-9-11 ou 13 de A.2". Est-ce un tour impair peu importe la taille ou est-ce un tour 1 pour une taille S, un tour 3 pour une taille M, etc.? Merci d'avance!
28.11.2018 - 08:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hawa, le tour suivant doit être un tour impair (rang 1, 3, 5, 7, 9, 11 ou 13 de A.2) quelle que soit la taille tricotée. Bon tricot!
28.11.2018 - 08:50
Cozy Weekend#cozyweekendsweater |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með köðlum og háum kraga úr DROPS Snow. Stærð S - XXXL.
DROPS 185-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem á að fækka (t.d. 19) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 2,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 1. og 2. hverja lykkju og 2. og 3. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki þannig: Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur í hvorri hlið á stykki slétt saman. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur í hvorri hlið á stykki brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Stykkið skiptist upp þegar fellt er af fyrir handveg og bakstykki og framstykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram handveg fyrir ermi og síðan er prjónað fram og til baka á hringprjón. Kraginn er prjónaður á stuttan hringprjón í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-107-115-123-131-143 lykkjur á hringprjón 9 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S-L-XXL-XXXL: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 12-16-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 25 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, yfir þær 60-72-84-92 lykkjur sem eftir eru. STÆRÐ M-XL: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 16-20 lykkjur, prjónið A.1 (= 25 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 64-76 lykkjur og endið með 2 lykkjur slétt. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með stroff svona þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 10. Prjónið 0-0-0-0-0-1 lykkju sléttprjón, umferðin byrjar nú hér, setjið 1 prjónamerki (umferðin hefur nú færst til um 0-0-0-0-0-1 lykkju). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 14-16-18-20-22-25 lykkjur, A.2 (= 25 lykkjur) yfir A.1, sléttprjón yfir næstu 14-16-18-20-22-25 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið sléttprjón yfir síðustu 46-50-54-58-62-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur upp úr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð þannig (stillið af að umferðin sé 1.-3.-5.-7.-9.-11. eða 13. umferð í A.2): Fellið af 2-2-2-2-2-3 fyrstu lykkjur í umferð, prjónið næstu 49-53-57-61-65-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 4-4-4-4-4-6 næstu lykkjur, prjónið þar til 2-2-2-2-2-3 lykkjur eru eftir, fellið af þessar lykkjur. Klippið frá. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 42-46-50-54-58-62 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist alls 60-62-64-66-68-70 cm) fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 13-15-16-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 12-14-15-17-18-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem fellt var af fyrir handveg (stykkið mælist alls 62-64-66-68-70-72 cm). Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 49-53-57-61-65-69 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-58-60-60-62 cm (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Setjið nú lykkjur á þráð fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 16-18-19-21-22-24 lykkjur eins og áður, prjónið næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur eins og áður og fækkið um 7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1, yfir þessar lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur á þræði), prjónið yfir 16-18-19-21-22-24 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur eins og áður yfir þær lykkjur í A.2 sem eftir eru og fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 12-14-15-17-18-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, stillið af með bakstykki. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður. Prjónið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur meðfram handveg í ystu lykkju á hringprjón 10 með Snow. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin á stykki – lesið ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8.-7.-6.-6.-5.-5. hverri umferð alls 8-9-10-9-10-11 sinnum = 24-24-24-28-28-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-52-50-49-48-47 cm, skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar ermin mælist 58-57-55-54-53-52 cm, skiptið yfir á hringprjón 10. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. KRAGI: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á prjón 9 með Snow. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum, saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cozyweekendsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.