Lavinia Campbell skrifaði:
Hi. Just starting the hat pattern. Can you please explain what is meant by “twisted” when purling the yarn over? Thanks
06.11.2021 - 08:23DROPS Design svaraði:
Dear Lavinia, it means that you knit into the back of the stitch, so it gets twisted. Happy Knitting!
06.11.2021 - 19:51
Robi skrifaði:
Buongiorno,nelle spiegazioni dello scaldacollo scrivete : un giro diritto ,2 giri a rovescio per le coste.Non è sbagliato?Dall' immagine sembrano 1 maglia a diritto e 2 maglie a rovescio?!Grazie.
21.05.2020 - 08:02DROPS Design svaraði:
Buongiorno Robi. Abbiamo corretto il testo, sono maglie. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
21.05.2020 - 08:25
Dominika skrifaði:
Dobrý den, nerozumím tomu, jak se plete toto: ( jehlici vpíchneme mezi 4. a 5. oko, nabereme a protáhneme přízi (= 1 nové oko), 1 oko upleteme hladce, 2 oka obrace, 1 hladce). Plete se to nad čtyřmi oky vzoru, je páté oko jednoduše to další? Přízi nabírám pravou jehlicí a nabrané nové oko v této řadě již nepletu? Děkuji za odpověď.
05.01.2019 - 22:28DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Dominiko, ano, je to tak, jak píšete - 5. oko je to následující, tzn. vpíchnete pravou jehlici za 4. oko a vytáhnete dlouhou smyčku, která bude na pravé jehlici před všemi těmi 4 oky a potáhne se před nimi/přes ně po lícové straně = vytvoří ten efekt smokování. Koukněte na video, kde je to krásně vidět: Hodně zdaru! Hana
06.01.2019 - 20:11
Francoise skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas la consigne du snood "tricoter un tour envers sur l'envers, tourner l'ouvrage et tricoter en rond sur l'endroit". Comment peut-on tourner l'ouvrage quand on tricote en rond? Est-ce que cela signifie qu'il ne faut pas fermer le rond avant d'avoir d'abord tricoté un rang envers sur l'envers? Ou autre chose? Merci!
12.09.2018 - 13:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, on tricote d'abord un tour en mailles envers puis on tourne l'ouvrage pour le continuer en rond sur l'endroit (= les mailles que l'on a tricoté à l'envers au 1er tour vont apparaître comme des mailles endroit sur l'endroit). Bon tricot!
12.09.2018 - 15:32
Raspberry Truffle#raspberrytruffleset |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Húfu og hálsskjóli með köðlum og áferðamynstri, prjónað ofan frá og niður úr DROPS Puna eða DROPS Sky. Stærð S – L.
DROPS 182-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 1,1. Í þessu dæmi þá er aukið út á eftir ca hverri lykkju með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 6,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. HÚFA: Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 4 með Puna eða Sky. ATH: Skiljið eftir ca 30 cm enda til að draga húfuna saman í lokin! UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn = 24 lykkjur. UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn = 36 lykkjur. UMFERÐ 4: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* = 48 lykkjur. UMFERÐ 5: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið uppsláttinn snúinn brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 6: * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 7- 8: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 42 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 90 lykkjur (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.1 (= 15 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 120 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem fækkað er um 18-14 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð í garðaprjóni – lesið ÚRTAKA (jafnt yfir) = 102-106 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið nú A.2a (= 51-53 mynstureiningar með 2 lykkjum) 3-4 sinnum á hæðina. Prjónið nú A.2b yfir hverja mynstureiningu A.2a 1-1 sinnum á hæðina. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26 lykkjur jafnt yfir = 126-132 lykkjur. Prjónið A.3 (= 21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum) í kringum umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 4 umferðir garðaprjón þar sem fækkað er um 12-12 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð í garðaprjóni = 114-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 12 umferðir stroff er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 27-28 cm. Dragið toppinn saman á húfunni með því að þræða endann upp og niður í lykkjurnar eina og eina, herðið að, festið enda. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 153-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með Puna eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið síðan í hring frá réttu þannig: Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir í stroffprjóni er skipt yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 33-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA (jafnt yfir) = 120-128 lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 3 sléttar umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.2a (= 60-64 mynstureiningar með 2 lykkjum) alls 9-11 sinnum á hæðina. Prjónið A.2b yfir hverja mynstureiningu A.2a. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í 3. umferð er aukið út um 24-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 144-156 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 (= 24-26 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar öll mynstureining A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 192-208 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 0-1 lykkju jafnt yfir = 192-207 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í stroffprjóni eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 256-276 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir í stroffprjóni er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Hálsskjólið mælist ca 24-26 cm á hæðina. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raspberrytruffleset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.