DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Between the Lines

Prjónuð stór peysa / oversized í klukkuprjóni með v-hálsmáli og röndum. Stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 180-34
DROPS Design: Mynstur ks-127
Garnflokkur A + A + A eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Vegna áferðar kemur peysan til með að teygjast við notkun miðað við mál á teikningu – LESIÐ MÆLING!

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200-200-250 g litur 5575, sæblár
50-100-100-100-100-100 g litur 4305, fjólublár/grár/blár
50-100-100-100-100-100 g litur 6309, turkos/grár
50-50-50-100-100-100 g litur 7233, gulgrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tileyrir garnflokki A)
175-200-225-250-250-275 g litur 16, dökk fjólublár
50-50-50-50-75-75 g litur 08, gráblár
25-50-50-50-50-50 g litur 21, kóbaltblár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 30 umferðir með klukkuprjóni (15 sýnilegar klukkuprjóns lykkjur á hæðina) með 3 þráðum verða 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MÆLING:
Vegna áferðar kemur peysan til með að teygjast við notkun um ca 6-8 cm á lengdina miðað við mál í mynsturteikningu.
Ermalengdin kemur til með að teygjast ca 3-5 cm. Mál í mynsturteikningu virðast því vera aðeins styttri miðað við peysu á mynd, en peysan kemur til með að teygjast í rétt mál við notkun.
Öll lengdarmál eru gerð þegar flíkin liggur flöt, en athugið gjarna mál á flíkinni jafnóðum með því að halda uppi flíkinni þegar hún er mæld og prjónið að óskaðri lengd.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI:
2 umferðir í klukkuprjóni gerir 1 sýnilega lykkju á hæðina.
UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið (stingið inn hægri prjóni inn í lykkju á vinstra prjóni frá hægri að vinstri, þ.e.a.s. prjóninum er stungið inn aftan í lykkjuna)* , endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið.
UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju (lykkjum), prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman.
Endurtakið umferð 2 og 3.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
6 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid Silk (1 þráður).
8-8-10-10-10-10 cm í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
3 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
4 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður).
6 cm í öllum stærðum í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir).
8 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
4-4-4-4-6-6 cm í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
3 cm í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður).
Á eftir síðustu rönd mælist stykkið ca 60-60-62-64-66-66 cm. Prjónið síðan til loka í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir).

RENDUR Á ERMI:
3 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður).
4 cm í öllum stærðum í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
1 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
2 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður).
3 cm í öllum stærðum í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir).
4 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
2 cm í öllum stærðum í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður).
1 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður).
Á eftir síðustu rönd mælist stykkið ca 36-36-36-34-34-32 cm. Prjónið síðan til loka í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir).

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja og er prjónaður snúinn saman með 2 lykkjunum = 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjur á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja og er prjónaður saman með 2 lykkjum = 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstri í klukkuprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir).

FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum sæblár Alpaca + 2 þráðum í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan, þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið áfram í klukkuprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjón í hvorri hlið. Lesið MÆLING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum. Þegar stykkið mælist 17 cm er prjónað í klukkuprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 18-18-18-20-20-20 cm prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni, röndum og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-48-50-50-52 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 7 lykkjur í umferð (uppslættir eru ekki taldir með sem lykkjur og eru prjónaðir slétt saman með hverri lykkju sem tekin hefur verið óprjónuð í fyrstu umferð, aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferð garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón, prjónið 5 lykkjur slétt, steypið 4. lykkjunni sem var prjónuð yfir 5. lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 2 lykkjur slétt, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Setjið 29-31-33-36-39-43 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóninum.
Haldið áfram fram og til baka yfir þær 29-31-33-36-39-43 lykkjur sem eftir eru í klukkuprjóni, röndum, 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.
Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með sléttum lykkjum þegar fellt er af).
Prjónið síðan yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og á vinstri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Setjið lykkjuna sem felld var af við miðju að framan yfir á vinstri prjón og prjónið þá lykkju slétt saman við næstu lykkju á vinstri prjón (þetta er gert til að sleppa við gat neðst á v-hálsmálinu), prjónið 2 lykkjur slétt, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir 29-31-33-36-39-43 lykkjur í klukkuprjóni, röndum og 1 kantlykkju með garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir á eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman við óprjónuðu lykkjurnar þegar fellt er af).

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum sæblár Alpaca + 2 þráðum í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum (bakstykki er 4 cm lengra en framstykki). Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónað klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-22-24-24-24 cm prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan – ATH: Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umferðir í hverri rönd og á framstykki.
Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni, röndum og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur í umferð (uppslættirnir eru ekki taldir með sem lykkjur og eru prjónaðir slétt saman með hverri lykkju sem tekin hefur verið óprjónuð í fyrstu umferð, aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar eins og áður).
Í fyrstu umferð frá réttu á eftir 4 umferðum í garðaprjóni eru felldar af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 25-27-28-31-33-37 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 25-27-28-31-33-37 lykkjur sem eftir eru í klukkuprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við háls að aftan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslættirnir eru prjónaðir saman við óprjónuðu lykkjurnar þegar fellt er af). Prjónið hina öxlina alveg eins.

ERMI:
Fitjið laust upp 23-25-25-27-27-29 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum sæblár Alpaca + 2 þráðum í litnum fjólublár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-9-7 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur færri). Aukið svona út með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 41-43-47-49-51-53 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-16-16-14-14-12 cm prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 43-42-42-40-38-36 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja hvar ermin á að saumast í við handveg.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 1 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 44-43-43-41-39-37 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslættirnir eru prjónaðir saman við óprjónuðu lykkjurnar þegar fellt er af).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið botn á handveg (prjónamerki á ermi á að passa við hliðarsaum á fram- og bakstykki). Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 16 cm neðst niðri á framstykki og 20 cm neðst niðri á bakstykki fyrir klauf.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Dolfin wrote:

Bonjour, Pour l'échantillon, le maille endroit tricotée avec le jetée compte-t-elle pour une maille ou pour deux mailles ? Merci Beau week-end

13.01.2024 - 14:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dolfin, elle compte pour une maille en largeur, pour la hauteur, si vous la comptez pour 1 maille, vous devez avoir 30 rangs, si vous la comptez pour 2 mailles, vous devez alors avoir 15 rangs. Bon tricot!

15.01.2024 - 08:19

country flag Petra Ragnerstam wrote:

Hej! Jag vill sticka den här tröjan, men vill ändra färgerna, vilket visade sig bli ett pussel. När jag kollar färgerna i raderna (antalet centimeter) i relation till garnåtgång som står i början av mönstret, blir jag förvirrad. När det gäller Alpacka-garnet står det om åtgång sårhär i strl S: 150g-marinblå. Men när man tittar på själva randbeskrivningen stickas mycket färre cm med den färgen än med färgen lila/grå/blå (50g- lila/grå/blå).

17.06.2021 - 14:40

DROPS Design answered:

Hej Petra. Om du ser i beskrivningen så står det att du först stickar med 1 tråd marinblå Alpaca + 2 trådar mörk lila Kid-Silk på de olika delarna innan du börjar med "RÄNDER". Mvh DROPS Design

18.06.2021 - 07:55

country flag Christiane wrote:

Hallo, ich würde dieses Modell gerne unifarben stricken, wieviel Material brauche ich dann für die Grösse M ? beste Grüsse, Christiane

21.07.2020 - 14:03

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, Sie sollten 350 g Alpaca und 275 g Kid-Silk einplanen. Noch ein Hinweis: Achten Sie beim Stricken stets darauf, dass Sie die Maschenprobe und die angegebenen Maße einhalten, damit der Garnverbrauch passt. Viel Spaß beim Stricken!

22.07.2020 - 11:24

country flag My29 wrote:

Bonjour, Est-ce que je peux tricoter ce modèle avec 2 fils Brushed Alpaca Silk ? Merci pour vos modeles, il y a beaucoup de choix pour tous les goûts. On trouve forcément son bonheur ! C'est super.

02.02.2019 - 17:24

DROPS Design answered:

Bonjour My29 et merci! Ce modèle se tricote avec 3 fils du groupe A (= 1 fil Alpaca + 2 fils Kid-Silk), Brushed Alpaca Silk appartient au groupe C et peut remplacer 2 fils du groupe A, avec 2 fils Brushed Alpaca Silk, la texture risque d'être un peu différente -mais vous pouvez par ex utiliser Melody (groupe D = 3 fils du groupe A). Vous trouverez plus d'infos sur les alternatives ici, n'oubliez pas de faire un échantillon au préalable pour être certaine de la texture également. Bon tricot!

04.02.2019 - 11:38

country flag Milicevic wrote:

Hallo, Ich habe Kleidergröße 54, wie kann ich ausrechnen wieviel Maschen ich für diesen Pullover benötige. Und dann natürlich, wieviel Wolle benötige ich? Vorab vielen Dank für die Antwort! Liebe Grüße Brigitte

27.02.2018 - 07:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Milicevic, Leider können wir keine individuellen Umrechnungen vornehmen, wenden Sie sich mit diesem Wunsch bitte an den Laden, in dem Sie die Wolle kaufen. Vielen Dank für Ihr Verständnis.

27.02.2018 - 09:09

country flag Siorat wrote:

Bonjour, J'ai réalisé ce modèle comme indiqué : il est absolument magnifique ! Beau, chaud, agréable à porter et très doux. Merci ! Je suis très contente. Les modèles sont très beaux et les explications parfaitement précises. Je suis très heureuse de tout ce que vous proposez : modèles et laines. Merci Drops et la boutique Kalidou.

11.11.2017 - 17:41

country flag Sue wrote:

I would love to change two of the colours in this pattern. Keeping all the Blue colours, what would be good alternatives for the Purple Kid-silk, and the Olive Alpaca? Look forward to reading your suggestions.

19.10.2017 - 15:09

DROPS Design answered:

Dear Sue, for any help choosing a colour you are welcome to contact your DROPS Store. Happy knitting!

19.10.2017 - 16:55

country flag Vorberger wrote:

Kann ich diesen Pullover auch mit Angorawolle Stricken? Kann ich jede Anleitung rein theoretisch auch in Angorawolle herstellen? Mfg

02.10.2017 - 01:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Vorberger, für weitere persönnliche Hilfe wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiter helfen. Viel Spaß beim stricken!

02.10.2017 - 10:53

country flag Berit Gaustad wrote:

Jeg ønsker å strikke modell 180-34 i enfarget garn. Hvor mye garn trenger jeg da?

13.08.2017 - 22:21

DROPS Design answered:

Hei Berit. Det har vi desverre ikke noe oversikt over. Genseren er strikket i 2 forskjellige garn der det brukes 1 tråd av Aplaca og 2 tråder av Kid-Silk, og der kvalitetene har ulik løpelengde. Ta en titt på andre lignende modeller vi har i Alpaca og Kid-Silk, se på målskissene og se om du finner en som er lik i størrelsen til 180-34, og ut ifra det kan du få en viss formening om garnmengde. Jeg vil tippe på 350 g Alpaca (1 tråd) og 350 gram Kid-Silk (2 tråder) i str M /L. God Fornøyelse!

14.08.2017 - 14:28

country flag Vanessa wrote:

Ginge statt A+A+A auch A+C (d.h. z.B. Brushed Alpaka Silk statt Kid Silk)?

11.07.2017 - 15:41

DROPS Design answered:

Liebe Vanessa, ja gerne können Sie auch so stricken - lesen Sie mehr über Ersatzgarne hier. Viel Spaß beim stricken!

11.07.2017 - 15:56