Aurélie wrote:
Bonjour, comment savoir combien il faut prendre de pelotes de laine? Je ne trouve pas s'il vous plait
31.10.2018 - 11:28DROPS Design answered:
Bonjour Aurélie, vous trouvez le poids total pour chaque taille sous l'en-tête, soit par ex en taille S: 500 g DROPS Air / 50 g la pelote = 10 pelotes DROPS Air. Bon tricot!
31.10.2018 - 11:44TANGUY wrote:
Bonjour, Que signifie groupe de fils A + A : qu'il faut tricoter en double de la laine du groupe A ? Merci pour votre réponse, Corinne TANGUY POULLILIAN
19.03.2018 - 20:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tanguy Poullilian, tout à fait, vous pouvez par exemple pour ce modèle tricoter une laine du groupe C (= Air) ou bien la remplacer par 2 fils du groupe A (2 laines différentes du groupe A ou bien la même en double). Retrouvez tous nos groupes ici et plus d'infos sur les alternatives là. Bon tricot!
20.03.2018 - 08:49Perla E Reyes wrote:
Hay un error en las instrucciones de la trenza en español. Son trenzas de 3 puntos. En lugar de decir 3 puntos siempre en algunas partes dice 2 puntos lo cual es incorrecto.
11.01.2018 - 17:09Kirsten Asmussen wrote:
Denne jakke ville jeg gerne have til vinterkulden!
19.06.2017 - 20:17Света wrote:
Очень красивый жакет! как раз для осени!
09.06.2017 - 15:49
Elegant Comfort Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa í perluprjóni, köðlum, sjalkraga og vösum úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-33 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Lykkjum er fækkað til skiptis á undan og á eftir prjónamerki, þ.e.a.s. það fækkar einungis um 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki (= 4 lykkjur alls), 1. úrtaka er á undan prjónamerki, 2. úrtaka er á eftir prjónamerki o.s.frv. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). Þegar fyrsta lykkjan á að vera brugðin: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Þegar síðasta lykkjan á að vera slétt: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Þegar síðasta lykkjan á að vera brugðin: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 36, 44, 52, 60 og 68 cm M: 37, 45, 53, 61 og 69 cm L: 38, 46, 54, 62 og 70 cm XL: 39, 47, 55, 63 og 71 cm XXL: 38, 45, 52, 59, 66 og 73 cm XXXL: 39, 46, 53, 60, 67 og 74 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og upp að ermum, eftir það er hvort stykki prjónað til loka hvort fyrir sig og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 214-226-242-258-274-294 lykkjur (meðtaldar 5 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í næstu umferð í garðaprjóni er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 222-234-250-266-282-302 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu – þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), A.1 (= 13 lykkjur), prjónið 186-198-214-230-246-266 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 13 lykkjur og endið með 5 lykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 60-63-67-71-75-80 lykkjur (= framstykki) inn frá miðju að framan (bakstykki = 102-108-116-124-132-142 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 2 lykkjur við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 14-14-15-15-14-14 sinnum = 166-178-190-206-226-246 lykkjur. Þegar stykkið mælist 61-62-63-64-65-66 cm setjið fyrstu og síðustu 46-49-52-56-61-66 lykkjur á þráð = 74-80-86-94-104-114 lykkjur eftir á prjóni. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 74-80-86-94-104-114 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, nú eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermum þannig: Fitjið upp 8 lykkjur 4-4-4-3-3-3 sinnum og 18-16-14-20-18-14 lykkjur 1 sinni, útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni = 174-176-178-182-188-190 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, nema ystu 5 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem fyrstu lykkjurnar voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm), fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er nú prjónuð til loka fyrir sig = 79-80-80-82-84-85 lykkjur eftir á öxl/ermi. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 78-79-79-81-83-84 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem fyrstu lykkjurnar voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 80-82-84-86-88-90 cm). Prjónið hina öxlina/ermina alveg eins. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 46-49-52-56-61-66 lykkjur á prjóninn. Haldið áfram með mynstur eins og áður, í lok hverrar umferðar frá réttu eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi eins og á bakstykki = 96-97-98-100-103-104 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, nema ystu 5 lykkjurnar lengst út á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm fellið af fyrstu 78-79-79-81-83-84 lykkjur frá röngu fyrir öxl/ermi, prjónið út umferðina = 18-18-19-19-20-20 lykkjur eftir á prjóni fyrir sjalkraga. Prjónið stuttar umferðir yfir þessar lykkjur með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 umferð yfir fyrstu 12-12-13-13-14-14 lykkjur, snúið og prjónið til baka, prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, snúið og prjónið til baka. ATH! Það koma kaðlar í A.1, en vegna styttri umferða verða fleiri umferðir á milli kaðla í ysta hluta á ysta kaðli við miðju að framan. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsi mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem stykkið er styst. Fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.1 = 14-14-15-15-16-16 lykkjur. Fellið síðan af í næstu umferð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og hægra, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu. Fellið af fyrstu 78-79-79-81-83-84 lykkjur frá réttu fyrir öxl/ermi og prjónið stuttar umferðir yfir kant í hálsi með byrjun frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið axla/ermasauma. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftana (saumurinn á að snúa inn þegar kraginn er brotinn niður að aftan). Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. VASAR: Fitjið upp 32-32-32-36-36-36 lykkjur á prjón 5,5 með Air. Prjónið perluprjón þar til stykkið mælist 20 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Prjónið 1 vasa til viðbótar alveg eins. Saumið vasana niður á framstykki, ca 16-18 cm frá neðsta kanti og 12-14 cm inn frá miðju að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Зинаида wrote:
Спасибо за подробное описание. Жакет очень понравился.
13.09.2018 - 08:38