Susanne Bylund skrifaði:
Löste detta själv efter ett tag men då nästa fråga: följde både A1 o A2 3 ggr men det blev för många bågar med 8 stolpar. Ska man börja med bara 1 maska på A1 o sen enbart upprepa A2 3 ggr? Mvh/Susanne Bylund
05.02.2019 - 00:25
Susanne Bylund skrifaði:
Jag är på varv 3 på solfjädersmönstret och förstår inte där det står att det ska virkas 2 fm om luftmaskbågen i minsta storleken totalt 3 ggr på varvet. Vad innebär 3 ggr på varvet? Hjälp mig för nu har jag tyvärr kört fast! Mvh/Susanne Bylund
04.02.2019 - 20:50
Nicole Vural skrifaði:
Ok, ich habe jetzt gemerkt, das hin und her gehäkelt wird. Aber ich denke die 3 cm Länge haben mich irritiert. Es ist vermutlich die Höhe gemeint.
28.05.2017 - 07:47
Nicole Vural skrifaði:
In der Anleitung steht für die Sohle, man soll so lange weiterhäkeln, bis die Arbeit 3 cm misst. Nach der 1. Runde habe ich diese schon überschritten. Und man soll hin und her häkeln. Wird nicht in Runden gehäkelt?
28.05.2017 - 07:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Vural, die Sohle ist in Reihen gehäkelt, dh nicht in der Runde. Viel Spaß beim häkeln!
29.05.2017 - 09:39
Kirsten skrifaði:
Hvilken alder svarer fodlængderne til? Det er selvfølgelig afhængig af barnet - men ca? Er det til nyfødte eller? De er virkelig fine :-)
09.05.2017 - 12:05DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, ja de mindste er til nyfødte: Størrelse: 1/3 - 6/9 - 12/18 måneder (2) år
09.05.2017 - 15:04
So Charming Socks#socharmingsocks |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með sólfjaðrakanti fyrir skírn eða nafnagjöf úr DROPS Safran. Stærð 15 - 23.
DROPS Baby 29-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring endar umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar frá fyrri umferð með stuðlum. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkjum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul. HEKLLEIÐBEININGAR: Í umferð eftir að stuðlar framan á tátilju hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla aðeins fastar framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða þarf aðeins á þræðinum á milli hverra stuðla sem eru heklaðir. Þetta er gert til þess að miðjustykkið framan á tátilju verði ekki allt of laust. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sóla – ATH: Heklað er í hverja lykkju (ekki á milli lykkja). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 19-21-23-25 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með Safran. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja af næstu 17-19-21-23 loftlykkjum = 18-20-22-24 fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð JAFNFRAMT er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og lok fyrstu umferðar með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 22-24-26-28 fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 3-4-4-5 cm. Fækkið nú um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 18-20-22-24 fastalykkjur í umferð – ATH: Í lok umferðar byrjar úrtaka þegar eftir eru 4 fastalykkjur, síðan eru heklaðar 4 síðustu fastalykkjur saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-4-4 (5) cm. Klippið frá og festið enda, sólinn er nú tilbúinn. Heklið síðan stuðla í kringum sóla þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= miðja í annarri skammhlið) – Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1-2-2-3 stuðla fram að horni, 2 stuðlar í horni, 1 stuðull í hverja af 18-20-22-24 fastalykkjum meðfram hlið, 2 stuðlar í horn, 4-6-6-8 stuðlar meðfram skammhlið (= tá), 2 stuðlar í hornið, 18-20-22-24 stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3-4 stuðlar meðfram skammhlið að miðju að aftan, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 52-60-64-72 stuðlar. NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul = 72 stuðlar. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, en fækkið um 1 stuðul í hvoru af 2 hornum framan á tá – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 50-58-62-70 stuðlar. HEKLIÐ SÍÐAN FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN ÞANNIG (Heklið 1 lykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð): UMFERÐ 1: 19-22-24-27 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 19-22-24-27 fastalykkjur = 48-56-60-68 lykkjur. UMFERÐ 2:18-21-23-26 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 18-21-23-26 fastalykkjur = 46-54-58-66 lykkjur. UMFERÐ 3:17-20-22-25 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 17-20-22-25 fastalykkjur = 44-52-56-64 lykkjur. UMFERÐ 4 í stærð 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): 24 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 24 fastalykkjur = 62 lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: 16-19-21-23 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 10-12-12-14 næstu stuðla saman 2 og 2, 1 hálfur stuðull og 16-19-21-23 fastalykkjur = 39-46-50-55 lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 14-17-19-21 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 5-6-6-7 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 14-17-19-21 fastalykkjur = 37-44-48-53 lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í STÆRÐ 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum) ÞANNIG: 20 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 7 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 20 fastalykkjur = 51 lykkja. ALLAR STÆRÐIR: = 37-44-48-51 lykkjur. Heklið 1-1-2-2 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 30-36-36-36 stuðlar í 1. umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – ATH: Ef óskað er eftir að gera tátiljuna stærri eða minni í opi þá er hægt að jafna lykkjufjöldann að óskuðu máli, en vegna mynsturs þá verður lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 6. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 30-36-36-36 fastalykkjur. UMFERÐ 2 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 10-12-12-12 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en í stærð 15/17 er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga alls 3 sinnum í umferð og í stærð 18/19 + 20/21 + 22/23 eru heklaðar 4 fastalykkjur um loftlykkjuboga alls 1 sinni í umferð) = 37-49-49-49 fastalykkjur (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 12 + 1). Heklið nú sólfjaðramynstur hringinn þannig: Heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið síðan 3-4-4-4 mynstureiningar með A.1B. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. SILKIBORÐI: Klippið silkiborðann í tvennt. Byrjið við miðju framan á annarri tátiljunni og þræðið silkiborðann upp og niður í gegnum gataumferð. Hnýtið slaufu við miðju að framan. Gerið alveg eins á hinni tátiljunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #socharmingsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.