Maria skrifaði:
När A3 och de avslutande varven på oket är klara skall jag ha 64 maskor för ärmar - jag börjar med 43, ökar 2+2 vid båda sidorna av ärmen vid markeringarna totalt 52 maskor. Skall övriga 12 maskor komma från de ökningar som anges som jämnt fördelade 18 maskor ? Tacksam för lite in-put! // Maria
17.05.2017 - 19:44DROPS Design svaraði:
Då du gör ökningarna enligt beskrivningen (dvs. ökn på varje sida om markeringarna + de m som ökas jämnt fördelat) blir det till slut 64 m på varje ärm.
22.05.2017 - 14:02
Maria skrifaði:
Hej! Är igenom mönstret, storlek M till och med A2 rad 2 i diagrammet, det ni kallar rad 1 i beskrivningen. Jag skall börja öka. Jag förstår ökning-arna vid markeringarna, jag startar med 8 maskor emellan efter A3 kommer jag att ha 12 maskor mellan alla dessa markeringar. Hör alla dessa 4*12 maskor till fram och bak stycke? När det står öka 18 maskor jämt fördelat hur många skall vara på fram och bakstycket och hur många skall ökas på ärmarna?
17.05.2017 - 19:43
Lisbeth Haug skrifaði:
Hvordan hekler man rad 3 i A1?
07.05.2017 - 18:10DROPS Design svaraði:
Hei Lisbeth, Du hækler allerede boblerne på 2.række, direkte efter diagramtegnet med den lille krog som danner en løkke, du hækler altså 3 bobler i løkken, inden du hækler videre med 2 lm og 1 fm i næste m. Når du gør det så giver 3.omgang sig selv :) God fornøjelse!
08.05.2017 - 08:50
Marian skrifaði:
Hay tutorial en vídeo del vestido?
05.05.2017 - 00:02DROPS Design svaraði:
Querida Marian! Videos para el modele estan AQUI. HAPPY KNITTING!
05.05.2017 - 11:13
Suzannah Nørgård skrifaði:
Det afsnit med * hvor du igen tager 24 masker ud på hver anden række er det udtagning 1 eller2 ? Og de masker som sidder mellem makørene hvor kommer de til at være? Lækker kjole jeg glæder mig til den bliver færdig ♡
10.04.2017 - 19:43DROPS Design svaraði:
Hej Suzannah, jeg er ikke helt sikker på hvor du er, men jeg kan se at der et sted i opskriften står tag 24 m ud jævnt fordelt og så er det Udtagningstips 1. God fornøjelse!
26.04.2017 - 14:54
Elin skrifaði:
Hej! Jag har kommit till den delen i mönstret där jag ska virka 222 stolpar totalt i de 52 luftmaskbågarna. Enligt mönstret ska det vara 4 stolpar i varje luftmaskbåge men eftersom jag ska öka behöver jag virka fler stolpar i några luftmaskbågar. I vilka luftmaskbågar blir det extra stolpar och hur många stolpar blir det? Jag har provat på flera olika vis men det blir inte rätt. Tacksam för svar! Hälsningar Elin
20.03.2017 - 10:34DROPS Design svaraði:
Hej Elin. Du har 7 st i starten af A.1 og i sidste omg faar du 12 st per gentagelse af A.1. Men i sidste omg tages ogsaa ud: 29 st (incl. de förste 3 lm) og tag 0 st ud, set 1. maerke, hekl 4 st i naeste bue og tag 2 st ud (dvs, der kommer 6 st i denne bue), saet merke, hekl 42 st (der tages 0 st ud) saet naeste maerke, saet maerke, hekl 4 st og tag 2 ud igen (dvs, igen 6 st i en bue), saet maerke, hekl 58 st og ingen st tages ud, saet maerke, hekle 4 st og tag 1 st ud (der kommer 5 st her), hekl 42 st og ingen st tages ud, saet maerke, hekl 4 st og tag 1 st ud her, saet maerke, hekl 29 st og ingen st tages ud. Du skulle da vaere tilbage ved start og have 222 st i alt.
22.03.2017 - 11:52
Ana Cobo Romero skrifaði:
No puedo descargar los diagramas del patron 175-30 me los podriais pasar?
10.03.2017 - 10:45DROPS Design svaraði:
Hola Ana, lo sentimos, ha sido un fallo informático. Ya está disponible para su descarga.
13.03.2017 - 13:44
Nienke Leusink skrifaði:
Hallo, Kan het kloppen dat er een fout in het patroon staat? Ik ben bezig met de pas in maat m. Dan heb je 282 stokje en Je moet dan 18 steken meerderen en dit 1 keer herhalen. Dan staat er dan je 300 stokjes hebt. Maar dit moet toch 318 stokjes zijn? Kom ikdan wel uit met de rest? Groetjes Nienke
03.03.2017 - 10:46
Iréne skrifaði:
Hur ställer man en fråga via mail?
28.02.2017 - 13:32DROPS Design svaraði:
Hej Iréne. Du kan stille dit spörgsmaal her, du kan ikke faa hjaelp via mail.
28.02.2017 - 15:44
Iréne skrifaði:
Hur i himmelens namn ska man göra första ökningsvarvet där man sätter markörer på oket?
28.02.2017 - 13:02DROPS Design svaraði:
Hej Irene, börja med att markera det antal stolpar du skall öka i din storlek, sedan ökar du samtidigt som du virkar stolparna enligt beskrivningen för din storlek. Lycka till!
28.02.2017 - 15:45
Grace in Lace#graceinlacedress |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Kjóll heklaður ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuttum ermum úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-30 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GATAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. A.2 sýnir hvar umferðin byrjar og endar þegar A.1 er heklað (A.2 kemur í viðbót við A.1, þ.e.a.s. A.2 kemur ekki í stað fyrstu lykkju). HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. Umferð 2 og 5 í A.3 byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR-1 (á við um fram- og bakstykki): Heklið A.3. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru heklaðar 5-6-8-9-10-11 umferðir með 1 stuðli í hvern stuðul, heklið síðan A.3 einu sinni til viðbótar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 258 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 17,2. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 17. hverja lykkju. Ef á að fækka lykkjum þá eru heklaðar 16. og 17. hver lykkja saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Heklið þar til 2 stuðlar/loftlykkjur eru eftir á undan merki, heklið 2 stuðla í/um næsta stuðul/loftlykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið 1 stuðul í/um hvorn af næstu 2 stuðlum/loftlykkjum, merkið er staðsett mitt á milli þessa stuðla/loftlykkja, heklið 2 stuðla í/um næsta stuðul/loftlykkju (= 1 stuðull fleiri). Endurtakið útaukningu við hvert merki. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin þá er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan og heklað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Heklið 146-146-155-155-163-163 loftlykkjur með heklunál 3,5 með DROPS Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur –lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 5-5-0-0-1-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 126-126-133-133-140-140 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun umferðar). Heklið síðan A.1 hringinn (= 18-18-19-19-20-20 mynstureiningar 7 lykkjur – A.2 sýnir hvernig hver umferð í A.1 byrjar og endar og kemur sem viðbót til A.1). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 eru sett 8 merki í stykkið og heklað þannig: Heklið eins og útskýrt er í mynsturteikningu og aukið út eins og útskýrt er frá að neðan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Heklið 29-29-31-31-33-33 stuðla og aukið út 0-0-0-1-0-0 stuðla jafnt yfir, setjið 1 merki í stykkið, heklið 4 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki), setjið 1 merki, heklið 42-42-44-44-46-46 stuðla og aukið út 0-1-1-2-1-1 stuðla jafnt yfir, setjið 1 merki, heklið 4 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, setjið 1 merki (= ermi), heklið 58-58-62-62-66-66 stuðla og aukið út 0-0-0-2-0-0 stuðla jafnt yfir, setjið 1 merki, heklið 4 stuðla og aukið út 1-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, setjið 1 merki (= framstykki), heklið 42-42-44-44-46-46 stuðla og aukið út 0-1-1-2-1-1 stuðla jafnt yfir, setjið 1 merki, heklið 4 stuðla og aukið út 1-4-4-4-4-4 stuðla, setjið 1 merki (= ermi), heklið 29-29-31-31-33-33 stuðla og aukið út 0-0-0-1-0-0 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 222-234-246-252-258-258 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 9 cm. Heklið 0-0-0-0-2-2 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út 0-0-0-0-12-15 stuðla jafnt yfir í hverri umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-/ÚRTAKA (= 0-0-0-0-24-30 stuðlar alls) = 222-234-246-252-282-288 stuðlar. Látið merkin fylgja með í stykkinu. Endurtakið A.3 alls 37-39-41-42-47-48 sinnum á breidd. Í 2. umferð (þ.e.a.s. umferð með stuðlum) aukið út við hvert merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og aukið út 2-8-8-8-8-8 stuðla jafnt yfir í umferð (= 2 stuðlar fleiri við hvert merki og 2-8-8-8-8-8 stuðlar útauknir jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 stuðlar fleiri í umferð) = 240-258-270-276-306-312 stuðlar. A.3 er endurtekið nú 40-43-45-46-51-52 sinnum á breidd. Endurtakið útaukningu í síðustu umferð A.3 (þ.e.a.s. 2 stuðlar fleiri við hvert merki og 2-8-8-8-8-8 stuðlar fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 stuðlar fleiri í umferð)= 258-282-294-300-330-336 stuðlar. * Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið 1 umferð stuðla og aukið út 18-18-16-17-24-26 stuðla jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-2-3 sinnum = 276-300-326-351-378-414 stuðlar. Heklið 0-1-1-0-1-0 umferðir með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 39-43-47-51-57-64 stuðlunum (= hálft bakstykki), heklið 8 loftlykkjur, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 stuðla frá fyrri umferð (= ermi), 1 stuðull í hvern af næstu 78-86-94-103-114-128 stuðlum (= framstykki), 8 loftlykkjur, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 stuðla frá fyrri umferð (= ermi), 1 stuðull í hvern af síðustu 39-43-47-51-57-64 stuðlum (= hálft bakstykki) = 172-188-204-221-244-272 stuðlar/loftlykkjur í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 merki í umferð, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju. Heklið 1 umferð til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið JAFNFRAMT um 4-2-0-5-4-2 l jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 168-186-204-216-240-270 stuðlar. Heklið nú MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm, passið að næsta umferð sé umferð með stuðlum, fækkið um 6-12-12-6-6-6 l jafnt yfir = 162-174-192-210-234-264 stuðlar. Haldið áfram með mynstur-1. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm aukið út um 6 stuðla jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona í 3. hverri umferð alls 12-12-12-12-14-14 sinnum = 234-246-264-282-318-348 stuðlar. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki (allur kjóllinn mælist ca 71-74-77-80-83-86 cm), heklið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er hekluð 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið þræði. Kjólinn mælist ca 76-79-82-85-88-91 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju á 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 3 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af þeim 4 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 68-72-77-81-83-87 stuðlar í umferð. Setjið 1 merki mitt undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! STÆRÐ S + M: Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið JAFNFRAMT um 2-0 stuðla jafnt yfir = 66-72 stuðlar. STÆRÐ L + XL + XXL + XXXL: Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið JAFNFRAMT út 1-3-1-3 stuðla jafnt yfir = 78-84-84-90 stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: = 66-72-78-84-84-90 stuðlar. Heklið stuðla í hring með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 3 cm frá merki í öllum stærðum. Heklið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er hekluð 1 umferð með stuðlum í hvern stuðul. Heklið síðan 1 umferð fastalykkjur með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið þræði. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið fram og til baka frá miðju að aftan – ATH: Heklað er í loftlykkjur þar sem stuðlar voru heklaðir, en ekki hekla í loftlykkjur sem hoppað var yfir = 126-126-133-133-140-140 lykkjur. Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 16-16-18-18-20-20 lykkjum, * 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 tvöfaldur stuðull í hverja af næstu 19 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum *, 1 fastalykkja í hverja af næstu 32-32-35-35-38-38 lykkjum, endurtakið frá *-* 1 sinni og heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 16-16-18-18-20-20 lykkjunum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjum, ** 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, * heklið næstu 2 tvöfalda stuðlana saman *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjur, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjur **, 1 fastalykkja í hverja af næstu 38-38-41-41-44-44 lykkjur, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar og endið með 1 fastalykkju í hverja af síðustu 20-20-22-22-24-24 lykkjum = 114-114-121-121-128-128 lykkjur. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið þræði. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #graceinlacedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.