DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-24
DROPS Design: Mynstur w-631
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-300 g litur 17, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 stuðlar og 8,5 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli í umferð skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.
Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í sömu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í 3 stykkjum. Bakstykkið er fyrst heklað sér sem einn ferningur. Framstykkin eru hekluð sem hálfur ferningur og síðan er haldið áfram upp að öxl. Þegar framstykkin og bakstykkið hafa verið saumuð saman er hekluð 1 umferð með picotkanti meðfram öllum ytri kantinum.

BAKSTYKKI:
Byrjið með heklunál 5 og Paris og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 alls 4 sinnum í umferð (A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2 er lokið eru 35 stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 horn sem samanstanda af 2 stuðlum, 3 loftlykkjum og 2 stuðlum. Nú er ferningurinn fyrir bakstykki lokið fyrir stærð S/M, klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 28 x 28 cm. Heklið síðan hringinn í stærð L/XL og XXL/XXXL þannig:

L/XL:
Endurtakið 2 síðustu umferðirnar. Aukið út um 1 stuðul á undan og á eftir hverju horni. Nú eru 2 stuðlar fleiri í hverri og einni af 4 hliðunum = 39 stuðlar meðfram hvorri hlið. Klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 37 x 37 cm.

XXL/XXXL:
Endurtakið 2 síðustu umferðirnar. Aukið út um 1 stuðul á undan og á eftir hverju horni. Nú eru 2 stuðlar fleiri í hverri og einni af 4 hliðunum = 43 stuðlar meðfram hverri hlið. Heklið keðjulykkjurloftlykkjuboga með 3 loftlykkjum í fyrsta horni. Heklið síðan frá 2. umferð í mynsturteikningu A.3A til A.3C fram og til baka meðfram annarri hliðinni þannig: Heklið A.3A um þennan loftlykkjuboga (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.3B þar til 1 stuðull er eftir á undan loftlykkjuboga í næsta horni, heklið A.3C (= 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul og heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga í horni). Snúið og heklið til baka síðustu umferðina í mynsturteikningu.
Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins meðfram hlið í gagnstæðri hlið á ferningi. Klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 47 x 37 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 5 með Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan hálfan hring þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur, * 1 stuðull um loftlykkjuhring, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar, endið með 1 stuðli um hringinn. Snúið við og heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.4A, A.4B, A.4C. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir þannig – LESIÐ ÚTAUKNING: Aukið út um 0-6-6 stuðla yfir A.4A (= 27-33-33 stuðlar) og 0-9-9 tvíbrugðnir stuðlar yfir A.4B (= 30-39-39 tvíbrugðnir stuðlar). Aukið út um 0-3-3 stuðlar á undan horni í A.4C (= 6-9-9 stuðlar) og aukið út um 0-3-3 stuðla á eftir horni (= 13-16-16 stuðlar). Aukið út alls 76-97-97 lykkjur + horn (= 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) í síðustu umferð. Nú er stærð S/M lokið, klippið frá og festið enda. Heklið síðan fram og til baka í 2 næstu stærðum þannig:

L/XL- XXL/XXXL:
Snúið við og heklið áfram frá röngu. Heklið síðan umferð merktri með ör í mynsturteikningu þannig: Heklið A.5B yfir fyrstu 15 stuðlana, A.5A, 3 loftlykkjur, (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) um loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur, A.5B yfir næstu 9 stuðla, A.5C yfir næstu 39 tvíbrugðnu stuðla, A.5B yfir næstu 32 stuðla, endið með A.5A í síðasta stuðul í umferð.
Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu A.5 alveg eins. Nú eru 97 stuðlar/tvíbrugðnir stuðlar + 1 horni (= 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.

ÖXL:
Heklið nú fram og til baka yfir fyrstu stuðlana frá réttu í A.4 (í stærð S/M) og A.5 (í stærð L/XL og XXL/XXXL) með byrjun frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.3A, A.3B alls 5-6-7 sinnum á breidd. Snúið við og heklið síðustu umferð til baka. Endurtakið 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu 3-3-4 sinnum til viðbótar. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
S/M og L/XL: Saumið niður axlirnar yst í hvorri hlið á efsta kanti á heklaða ferningnum/bakstykki. Saumið lykkjurnar saman eina og eina. Á bakstykki eru nú 17-21 stuðlar fyrir hálsmál á milli axlastykkja. Klippið frá og festið enda.
XXL/XXXL: Saumið niður axlirnar yst í hvorri hlið á efsta kanti á heklaða ferningnum/bakstykki þannig: Saumið niður ystu 6 stuðlana á öxl meðfram hlið á 2 ystu umferðunum á bakstykki og saumið hinar lykkjurnar eina og eina saman.
Á bakstykki eru nú 25 stuðlar fyrir hálsmáli á milli axlastykkja. Klippið frá og festið enda.

PICOTKANTUR:
Byrjið uppi á annarri öxlinni og heklið picotkant þannig:
Heklið * 1 stuðul í stuðul/um umferð, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu af 3 loftlykkjunum, 2 stuðlar í sama stuðul/um umferð, hoppið yfir ca 2,5 cm *, endurtakið frá *-* hringinn allt vestið, þ.e.a.s. í kringum báða handvega, meðfram kanti á framstykki, aftan í hnakka meðfram neðri kanti á bakstykki. Endið með einni keðjulykkju í fyrsta stuðul í umferð. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 1,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman.
Hnýtið einn hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum picotkant framan á öðru framstykki og hnýtið hnút. Gerið 3 snúrur alveg eins.
Önnur er fest við hitt framstykki.
Notið hina 2 þræðina til að halda saman framstykkinu og bakstykkinu á hvorri hlið: Byrjið ca 21-23-25 cm ofan frá við annað framstykkið og bakstykkið. Þræðið snúruna í gegnum göt á picotkanti fram og til baka á milli framstykkis og bakstykkis í kross (eins og að reima skó) og hnýtið saman endana neðst niðri – sjá mynd. Lagið lengdina á snúrunni til þannig að bilið á milli framstykkis og bakstykkis verði ca 6-6-8 cm. Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjubogi
symbols = 1 keðjulykkja
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = stuðlahópur með 2 stuðlum: Heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju/loftlykkjuboga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul um sömu loftlykkju/loftlykkjuboga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.
symbols = heklið um loftlykkjubogann þannig: 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar (= horn)
symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Svartur punktur í hring sýnir byrjun umferðar
symbols = umferðin er útskýrð í uppskrift og hefur nú þegar verið hekluð
symbols = umferðin sýnir síðustu umferð frá fyrri mynsturteikningu og hefur nú þegar verið hekluð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju
symbols = byrjið á þessari umferð (= frá röngu)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Trine wrote:

Bindes vesten sammen foran eller hænger den løst?

15.10.2023 - 16:18

DROPS Design answered:

Hej Trine, Vi har lavet 2 snore midt foran, så man kan binde sammen hvis man vil :)

17.10.2023 - 15:41

country flag Mesnier wrote:

Mais pourquoi ne voit on pas ce " coin" sur la photo en bas du gilet ? Merci

07.09.2023 - 13:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mesnier, ce n'est pas forcément important, le coin va se trouver côté bas du gilet, orientez-vous à l'aide des diagrammes et des indications précédentes pour bien vous repérer; n'hésitez pas à demander de l'aide à votre magasin ou via notre DROPS Workshop, ce sera peut-être ainsi plus facile à d'autres crocheteuses de pouvoir vois aider en voyant votre ouvrage. Bon crochet!

07.09.2023 - 17:00

country flag Mesnier wrote:

J'aimerais simplement savoir SI LE COIN (2 brides 3 mailles 2 brides) se trouve EN HAUT ou EN BAS du gilet ? MErci

01.09.2023 - 18:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mesnier, si vous parlez de ce groupe crocheté dans A.4C, c'est alors bien en bas du devant (côté opposé à l'épaule). Bon crochet!

04.09.2023 - 09:23

country flag Mesnier wrote:

Toujours moi, est-ce que le coin (2 brides 3 mailles en l'air 2 brides) se trouve en bas ou en haut du gilet ? J'ai fait les devants et le dos il y a un certain temps et je ne me souviens pas où j'ai terminé mon dernier rang ? Donc coin vers emmenchures ou en bas du gilet ? Cordialement

01.09.2023 - 12:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mesnier, parlez-vous de cette partie du diagramme de A.4C? Alors A.4c se trouve à gauche, vu sur l'endroit (pour le devant droit), autrement dit du côté opposé à celui où on va crocheter l'épaule. Bon crochet!

01.09.2023 - 15:34

country flag Mesnier wrote:

Merci pour votre réponse mais j'aimerais savoir où se trouve le coin (2 brides 3 mailles en l'air 2 brides) par rapport à l'épaule ? Merci pour votre réponse Cordialement

31.08.2023 - 10:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mesnier, je ne suis pas bien sûre de comprendre votre question, vous avez d'abord crocheté un demi-cercle, en terminant soit par A.4 soit par A.5. Pour crocheter l'épaule, vous aller travailler uniquement les premières mailles de droite, vus sur l'endroit autrement dit, vous crochetez au-dessus du diagramme A.4A (en S/M) ou A.5A/B (en L/XL et XXLXXXL). Ai-je bien compris cette fois?

01.09.2023 - 08:28

country flag Mesnier wrote:

Je suis perdue. Où faire les épaules ? Où placer le coin par rapport aux épaules ? Cordialement

29.08.2023 - 10:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mesnier, l'épaule se fait sur les premières brides de A.4/A.5, vu sur l'endroit, autrement dit, sur le côté droit du demi-cercle pour le devant droit. Bon crochet!

30.08.2023 - 07:38

country flag Mesnier wrote:

Je suis complètement perdue... où et comment faire les épaules ? Où placer le \"coin\" par rapport aux épaules ?\r\nMerci pour votre réponse.\r\nCordialement

29.08.2023 - 10:23

country flag Michelle Williamson wrote:

Why does the stitches on the vest look different to the pattern and i think the pattern is slightly off i am counting the stitches on the pictures and they don't line up and i feel the beginning of A.1 and A.2 is off.

30.09.2022 - 11:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williamson, A.1 is just showing how to start/end each round, then you will work A.2 a total of 4 times in the round - make sure you are reading the appropriate English pattern since UK and US crochet terms are different - maby it can help? Read more about crochet diagrams here. Happy crocheting!

30.09.2022 - 13:19

country flag Ekaterina wrote:

Dear Drops! Thank you for your prompt reply, but I still have problems with the shoulder. I understand that I have to replace the first tr with 3 chains but I don't understand where exactly the row begins. Should I count from the corner= 2tr+3ch +2tr or start the shoulder over 13 trebles and work A. 3A in the tr in stich from previous row?

27.05.2020 - 00:43

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, in the 2nd size you have to work a total of 13 sts in A.3A and A.3B, count the last 13 sts from the end of the previous row (from the left towards the right, seen from RS) and join yarn here, You will then have enough room to work: A.3A and repeat A.3B a total of 6 times in width. Hope this helps. Happy crocheting!

27.05.2020 - 08:55

country flag Ekaterina wrote:

Dear Drops! I need to specify the start of the shoulder- should I start A. 3A = 1 tr at the corner or at the 3 ch stitches after the corner? Should I work A. 3B over the last 13 tr?

25.05.2020 - 22:24

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, you have to replace the first tr with 3 chains (see info crochet), so that A.3A will be worked with 3 chains at the beg of the row and as 1 treble at the end of row from WS - A.3B will end with 1 tr from RS and start with 3 ch (instead of 1 tr) from WS. Happy crocheting!

26.05.2020 - 08:41