DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-27
DROPS Design: Mynstur r-712
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur nr 08, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum í A.1 og A.3 eru heklaðar 5 loftlykkjur til að snúa við með. Þessar 5 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls.
Þegar heklað er í hring er skipt út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrst er framstykkið og bakstykkið heklað fram og til baka hvort fyrir sig, síðan er heklað í hring yfir bæði stykkin.

FRAMSTYKKI:
Heklið 42-44-44-47-47-49 lausar loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Snúið og heklið þannig:
Heklið 1 fastalykkju í aðra loftlykkju frá heklunálinni (= 1 fastalykkja + 1 loftlykkja til að snúa við með), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 0-2-2-0-0-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 7-7-7-8-8-8 sinnum til viðbótar = 33-35-35-37-37-39 fastalykkjur. Snúið við og heklið mynstur þannig: Byrjið frá umferð 2. Heklið A.1 yfir fyrstu 5 fastalykkjurnar, A.2 yfir næstu 24-26-26-28-28-30 fastalykkjur, A.3 yfir þær 4 fastalykkjur sem eftir eru – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar mynsturteikning A.1 til A.3 hefur verið hekluð til loka á hæðina er haldið áfram með stuðla og útaukningar alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 11-12-13-14-15-16 umferðir með útaukningu (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð). Nú eru 66-71-74-79-82-87 stuðlar í umferð. Geymið stykkið.

BAKSTYKKI:
Heklið alveg eins og framstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið nú stykkin tvö saman þannig: Snúið og heklið 1 stuðul í hvern og einn af 66-71-74-79-82-87 stuðlum frá bakstykki, heklið 6-12-12-16-24-30 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern af 66-71-74-79-82-87 stuðlum frá framstykki, heklið 6-12-12-16-24-30 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Heklið nú stykkið í hring, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju = 144-166-172-190-212-234 stuðlar. Þegar heklað er í hring er snúið við eftir hverja umferð þannig að heklað er í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin verði alveg eins á toppnum. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 6-12-12-16-24-30 loftlykkjur. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út með 3-3-3-3-4-4 cm millibili alls 4 sinnum = 160-182-188-206-228-250 stuðlar. Þegar stykkið mælist 14-15-15-16-17-18 cm er hekluð 1 umferð þar sem aukið er út um 3-5-5-5-1-3 stuðla jafnt yfir = 163-187-193-211-229-253 stuðlar, síðan er heklað þannig: Heklið A.4 yfir fyrsta stuðul í umferð, endurtakið síðan A.5 yfir þá stuðla sem eftir eru. A.4 sýnir byrjun og lok umferðar. Snúið ekki, allar umferðir eru heklaðar frá réttu! Klippið frá og festið enda þegar A.4 og A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm alls.

SNÚRA:
Heklið 2 lausar snúrur þannig: Heklið loftlykkjur með Muskat með heklunál 4 þar til snúran mælist 100 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju, en til passið uppá að keðjulykkjurnar verði ekki heklaðar fastar en loftlykkjurnar. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra snúru til viðbótar á sama hátt.

Þræðið snúruna í gegn í annarri hlið á framstykki, á milli annars og þriðja stuðuls frá kanti í fyrstu umferð með stuðlum. Þræðið snúruna í gegn í annarri hlið á bakstykki alveg eins og hnýtið hnút á öxl. Endurtakið á hinni hliðinni á toppnum.

KÖGUR:
Klippið 4 þræði ca 20 cm. Leggið þá saman tvöfalt, þræðið lykkjuna frá réttu á milli 2 stuðla neðst á fram- og bakstykki. Dragið síðan endana í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið kögur með ca 2 cm millibili neðst niðri á toppnum.

Mynstur

symbols = 1 stuðull í stuðul/fastalykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 5 loftlykkjur - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju
symbols = keðjulykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Elly De Clercq wrote:

Bij het haken van het voorpand maat medium eindig je met 71 stokjes. Volgens de afmetingen op de tekening heb je dan 14cm. Ik kom maar aan 11,5cm. Haak ik dan verder tot 14cm zonder meerderen? Ik haak met naald 2,5cm na het proeflapje.

16.07.2023 - 12:00

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Het is inderdaad de bedoeling dat je 11 cm hebt. Komt de stekenverhouding in de hoogte ook overeen met de stekenverhouding in het patroon? Als je werk korter in de hoogte wordt door een andere stekenverhouding, dan zou je de meerderingen anders moeten verdelen, want het lijkt niet mooi om nog door te haken zonder minderingen te maken. Je zou ook even kunnen kijken of je misschien toch uit de voeten kunt met deze 11,5 cm, door bijvoorbeeld de bandjes wat langer te maken. Op die manier hoef je het werk niet uit te halen.

18.07.2023 - 20:56

country flag Dea wrote:

Buongiorno, ho bisogno un aiuto. Dopo aver unito il lavoro mi trovo a dover fare gli aumenti ogni tot cm. Mi dice di farlo ogni 3 cm. Vuol dire che devo farlo sul giro dopo che ho raggiunto i 3 cm o su quello che mi fa raggiungere i 3 cm? Spiego meglio, se faccio 2 giri il lavoro è 2 cm , se faccio il terzo mi trovo a 3. Quindi? Grazie.

15.07.2023 - 16:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea, può lavorare l'aumento al raggiungimento dei 3 cm, quindi dopo il terzo giro. Buon lavoro!

16.07.2023 - 13:17

country flag Ana wrote:

Necesito ayuda para entender cómo hacer la 1° pasada, no entiendo la parte que pone, trabajar un punto bajo en cada uno de los siguientes 0-2-2-0-0-2 puntos de cadeneta. Gracias

28.04.2023 - 22:47

DROPS Design answered:

Hola Ana, las instrucciones están escritas para varias tallas a la vez. Dependiendo de la talla que estés trabajando, trabajarás un punto bajo en los siguientes 2 puntos de cadeneta o, si pone 0, ignora esta parte de la frase y pasa directamente a las siguientes instrucciones en la fila. Por ejemplo, en la talla más pequeña (S), no trabajas 1 punto bajo en los siguientes 2 puntos, pero en las tallas M y L sí.

30.04.2023 - 20:02

country flag Linda Houtman wrote:

Halli, ik maak maat S. Als je begint met 42 losse en ik meet na toer 2, dan kom je echt niet aan de breedte van 18 cm, zoals op tekening staat aangegeven. En zoals gezegd, bij proeflapje klopte mn steekverhouding. Kloppen die centimeters wel die op tekening staan aangegeven? Volgens mij niet! Groet, Linda

04.06.2022 - 20:15

DROPS Design answered:

Dag Linda,

Het werk wordt van boven naar beneden gehaakt en na de 1e toer heb je 33 vasten waarin het patroon gehaakt wordt. 33 delen door 1,8 (de stekenverhouding) = ruim 18 cm breed. Dit komt overeen met de breedte van de hals in de tekening onderaan.

05.06.2022 - 20:44

country flag Linda Houtman wrote:

Hallo, ik maak maat S, maar topje is veels te wijd (stekenverhouding klopt, en hen nergens fout gemaakt). Stel dat ik veel minder ga meerderen, op hoeveel steken moet ik dan eindigen voordat ik aan A4/A5 begin? Hoeveelheid van.....? Groet, Linda

04.06.2022 - 09:03

DROPS Design answered:

Dag Linda,

Voor een breedte van 40 cm (bovenwijdte) heb je ongeveer 72 stokjes nodig, dus voor het voor- en achterpand samen in totaal 144 stokjes. Als je de 66 stokjes van het voor- en achterpand bij elkaar optelt met de 2 keer 6 lossen er tussen, dan kom je precies op 144 lossen, dus dat zou moeten kloppen. Dan komen er nog 19 steken bij in totaal, dus dat zou ook overeen moeten komen met de breedte van 44 cm onderaan.

05.06.2022 - 20:57

country flag Ursula wrote:

Ik heb nog n vraag. Ik ben klaar met denkpatroon A1t/mA3 en moet verder met meerderingen. Staat op dezelfde manier 11 toeren. Meerder 3 stokjes per toer. Moet je dan ook de 2 stokjes haken bij begin van toer incl de 5 losse?? Dat heb ik nl gedaan en heb ik al bij toer 10 75 stokjes.. Ik doe dus iets verkeerd. Wat moet ik nu precies haken. Alleen de laatste 3 stokjes???

08.07.2021 - 22:06

DROPS Design answered:

Dag Ursula,

Je gaat op dezelfde manier verder met meerderen, dus je meerdert 3 steken per toer. De 5 lossen tellen niet mee in het aantal steken. Als je goed kijkt naar het telpatroon, zie je dat er 3 steken per toer gemeerderd wordt; 1 stokje aan het begin en 2 stokjes aan het eind van de toer. Na 11 toeren zijn er dan 33 stokjes bij gekomen.

20.07.2021 - 15:26

country flag Ursula wrote:

Hi ik ben een beginner en ik begrijp dit niet: " Keer en haak als volgt: haak 1 vaste in tweede losse vanaf haak (= 1 vaste en 1 losse om mee te keren), haak 1 vaste in elke van de volgende 0-2-2-0-0-2 lossen, * sla 1 losse over, haak 1 vaste in elke van de volgende 4 lossen *, herhaal van *-* nog 7-7-7-8-8-8 keer = 33-35-35-37-37-39 vasten. " Wat moet ik doen met haak 1 vaste in elke van de volgende 0 losse???? Ik haak maatje S.

01.07.2021 - 23:03

DROPS Design answered:

Dag Ursula,

Omdat dit in jouw maat 0 keer is hoef je daar dus niks mee te doen en ga je verder met het volgende stukje.

02.07.2021 - 09:22

country flag Van Eeghem Kathleen wrote:

Met welk wasmiddel kan ik dit topje wassen?

09.06.2021 - 16:59

DROPS Design answered:

Dag Kathleen,

Een kledingstuk van Muskat hoort bij de fijne was, dus ook een wasmiddel voor fijne was is het meest geschikt.

11.06.2021 - 12:26

country flag Sina Van Den Hoek wrote:

Is deze in het nederlands

25.05.2020 - 23:12

country flag Jessica Alvarez Gomez wrote:

Hola!! Tenía una duda... Si según la muestra, 18 puntos altos son 10 cm. para que la parte superior del top en talla S mida 18 cm necesitaría 32 cadenetas de inicio en vez de 42 como dice el patrón no??? Es que tengo una muestra que me mide lo que se necesita para este patrón pero al hacerlo en la parte superior del top con 42 cadenetas me sale 21,5 cm..... No sé a qué puede ser debido...

10.05.2020 - 20:35

DROPS Design answered:

Hola Jessica. El patrón es correcto. En la primera fila con puntos bajos no trabajamos en todas las cadenetas. Puedes ver que después de la primera fila hay 33 puntos bajos (para iniciar el dibujo).

21.11.2020 - 19:47