Pat skrifaði:
Bonjour, je vroudrais savoir si je pourrais tricoter ce modele avec aiguilles droites? et comment faire la conversion. Merci.
04.07.2018 - 16:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Pat, vous trouverez ici toutes les infos à ce sujet, il peut être plus simple de tricoter ici en rond (principalement l'empiècement), n'hésitez pas à vous faire aider par nos vidéos et par votre magasin DROPS si besoin. Bon tricot!
04.07.2018 - 16:35
Mia skrifaði:
Please ignore my previous question. I had missed the part that explained the circular needles. Thank you.
06.06.2018 - 07:08
Mia skrifaði:
Hello, can i start knitting in the round? (With circulatpr needles and joining in the round?) Thank you
06.06.2018 - 05:23DROPS Design svaraði:
Dear Mia, in fact this beautiful jumper is worked in the round on circular needle, bottom up. Happy knitting!
06.06.2018 - 08:43
Alicja skrifaði:
Pięknie dziękuję za tak ekspresową odpowiedź. Jesteście super. Z wielką chęcią korzystając z Waszych filmików video stawiam pierwsze kroki. Trochę mozolnie ale próbuję bo wiem, że w razie wątpliwości mogę liczyć na pomoc.
12.03.2018 - 19:24
Alicja skrifaði:
To moje początki w dzierganiu". Wybrałam sobie chyba trudny wzór DROPS / 176 / 22 Apricot Cream wiele rzeczy nie rozumię ale chcę spróbować. Proszę o wyjaśnienie czy przód i tył oraz rękawy wykonuje się na okrągło. Przy rękawach jest informacja że nabiera się oczka na druty pończosznicze natomiast wykonując przód i tył nabiera się oczka na druty okrągłe, czym to jest spowodowane
11.03.2018 - 18:08DROPS Design svaraði:
Witaj Alicjo! Gratuluję wyboru. Jeśli to są twoje początki to koniecznie skorzystaj z instrukcji video (po lewej stronie od opisu). Drutów pończoszniczych i drutów z żyłką generalnie używa się do dziergania na okrągło (przy czym na drutach z żyłką można również pracować w tę i z powrotem). Na drutach z żyłką można zmieścić więcej oczek niż na pończoszniczych, dlatego rękawy w naszym swetrze są wykonywane na drutach pończoszniczych (na okrągło), a tył i przód na drutach z żyłką (również na okrągło). Powodzenia!
12.03.2018 - 15:04
Gitte Winge skrifaði:
Jeg strikker model 176/22 og er nået til det sidste mønster A3 på blusen. Jeg kan ikke få mønstret tll at passe efter diagrammet, hvor det ser ud til, at der er en forskydning. Skal jeg begynde pinden med 1 maske løs af, strik 2 ret sammen, træk den løse over, eller hvordan skal det forståes. MVH Gitte
02.10.2017 - 11:35DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, jo du skal sørge for at de 2 omslag ligger over hinanden og både før og efter de to omslag skal du have 2 retmasker, derimellem strikker du: tag 1 maske løs af pinden ... osv. God fornøjelse!
03.10.2017 - 12:06
Anna skrifaði:
Non ho i ferri a doppia punta,posso fare le maniche con i ferri dritti e continuare con il modello?grazie per la risposta!
07.09.2017 - 20:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna. Può sostituire i ferri a doppia punta con ferri circolari, meglio se con il cavo corto. Per lavorare con i ferri dritti, aggiunga una maglia da ciascun lato per la cucitura della manica. Inoltre nel diagramma A.1, il simbolo con la X corrisponde ad una maglia a diritto. Buon lavoro!
07.09.2017 - 21:07
Anna skrifaði:
Se ho un giro seno di 47 e un giro vita di 50 seguo il modello taglia M o L? Vorrei farlo con la manica lunga un gomitolo in più basterà? Grazie per la risposta!
20.07.2017 - 16:05DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna, ha fatto il campione? Corrisponde a quello indicato? Tenga conto che il modello indicato nella foto è taglia M. Per il gomitolo in più, forse è meglio se ne prende 2. Buon lavoro!
20.07.2017 - 21:31
Dopfer Angelika skrifaði:
Habe diesen Pulli gestrickt. Hat alles wunderbar gepasst und ist sehr schön geworden. Die Anleitung war perfekt und hat hunterprozentig gestimmt.
15.05.2017 - 08:15
Gun-Britt Fredriksson skrifaði:
Finns mönstret som kofta?
14.05.2017 - 16:05DROPS Design svaraði:
Hei Gun-Britt. Nei dessverre, denne modellen har vi kun som genser.
15.05.2017 - 07:52
Apricot Cream#apricotcreamsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri, öldumynstri og hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-22 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Sjá byrjun fyrir þína stærð í A.2. ÚRTAKA: Fækkið á undan prjónamerki þannig: Prjónið fram að 3 lykkju á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. ÚRTAKA: Fækkið á undan prjónamerki þannig: Prjónið fram að 3 lykkju á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA JAFNT YFIR: Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 272 l) og deilið með fjölda úrtöku/útaukningar sem á að gera (t.d. 85) = 3,2. Þ.e.a.s. í þessu dæmi á auka út eftir ca 3. hverja lykkju. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Fyrst er fram- og bakstykki prjónað og síðan ermar. Stykkin eru síðan sett saman og berustykkið er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-208-224-248-272-296 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umferðar og 1 eftir 96-104-112-124-136-148 lykkjur = í hvorri hlið. Haldið síðan áfram með sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið með 4-4-5-5-5-5 cm millibili alls 6 sinnum = 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-34-36-36-37-36 cm fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) = 76-84-90-102-112-122 lykkjur á framstykki/bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMAR: Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Muskat. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út í 5.-4.-3.-3.-3.-2. hverri umferð alls 10-13-16-17-18-19 sinnum = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 23-23-24-22-23-19 cm prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur og haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 25-25-26-24-25-21 cm fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur mitt undir ermi (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) = 60-68-74-78-80-82 lykkjur. Prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 272-304-328-360-384-408 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 85-95-113-123-122-144 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA JAFNT YFIR = 357-399-441-483-506-552 lykkjur. Prjónið síðan eftir A.2 (= 17-19-21-21-22-24 mynstureiningar á breidd). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 289-323-357-357-374-408 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 97-115-133-133-134-160 lykkjur jafnt yfir = 192-208-224-224-240-248 lykkjur. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur (= 24-26-28-28-30-31 mynstureiningar á breidd). Prjónið A.3 2-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 50-58-66-66-72-74 lykkjur jafnt yfir = 142-150-158-158-168-174 lykkjur. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Í næst síðustu umferð í A.1 er fækkað um 50-56-62-62-70-74 lykkjur jafnt yfir = 92-94-96-96-98-100 lykkjur. Prjónið til loka A.1, síðan eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur - sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #apricotcreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.