DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 176-1
DROPS Design: Mynstur w-638
Garnflokkur C – eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 16, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir kanta með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á kjól):
Fækkið lykkju á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innanverðu við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 4,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á kjól og fyrir miðju undir ermum):
Aukið út hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki á kjól og hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

KJÓLL:
Fitjið laust upp 230-230-276-276-322-322 lykkjur á hringprjóna 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 23 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 210-210-252-252-294-294 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 21 lykkja). ATH: Í 7. umferð í A.2 færist mynstrið til um 1 lykkju fram. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 180-180-216-216-252-252 lykkjur í umferð. Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í byrjun umferðar (= í hlið), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 10 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 70-70-88-88-106-106 lykkjur, 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 10 lykkjur (= í hlið), 5. prjónamerki er sett á eftir næstu 10 lykkjur, 6. prjónamerki er sett á eftir næstu 70-70-88-88-106-106 lykkjur = 10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið A.3 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 18 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 1. prjónamerki, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur (1. prjónamerki er nú staðsett mitt í A.4 og A.4 á að falla vel yfir götin í A.3), prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4. prjónamerki, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með sléttprjón og A.4 í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-14-16-16-15 cm fækkið lykkjum á eftir 2. og 5. prjónamerki og á undan 3. og 6. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona 2½-3½-2½-3½-2½-4½ cm millibili alls 13-10-15-11-15-10 sinnum = 128-140-156-172-192-212 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 48-49-51-53-55-57 cm (úrtöku er nú lokið), skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er skipt til baka yfir á hringprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í umferðina – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Næsta umferð er prjónuð þannig: 10-13-17-17-22-27 lykkjur sléttprjón, A.6A (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), A.6B (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 20-26-34-34-44-54 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki í hlið er staðsett mitt í þessum lykkjum), A.6A (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), A.6B (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur) og 10-13-17-17-22-27 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið (6-6-7-9-11-13 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Í fyrstu umferð á eftir garðaprjóni eru felldar af miðju 6-6-8-12-16-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (3-3-4-6-8-10 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki). Fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.6 eins og áður og prjónið 3 ystu lykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fellið svona af í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-7-8-11 sinnum í hvorri hlið = 58-62-64-64-68-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm. Fellið af miðju 26-26-26-32-32-32 lykkjur fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 15-17-18-15-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
= 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Prjónið áfram alveg eins og bakstykki og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 66-69-71-74-76-79 cm (passið uppá að næsta umferð sé frá réttu), skiptið stykkinu upp fyrir miðju fyrir op á hálsmáli og hvort framstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Haldið áfram fram og til baka yfir helming af lykkjum með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjóni og A.6A við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 72-75-78-81-84-87 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu), setjið fyrstu 9-9-9-12-12-12 lykkjur frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá miðju að framan þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 15-17-18-15-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið alveg eins og vinstra framstykki, en með affellingu í gagnstæðri hlið (þegar lykkjur eru settar á þráð fyrir hálsmáli er það gert frá réttu, ekki frá röngu).

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna.
Fitjið upp 54-58-62-64-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-3 = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið A.5. Eftir A.5 er skipt til baka yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-2½-2-1½ cm millibili alls 7-9-9-10-12-14 sinnum = 56-62-64-68-74-80 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21 cm er skipt aftur yfir í sokkaprjóna 4. Prjónið A.5, skiptið aftur til baka yfir í sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón til baka. Þegar stykkið mælist 38-38-37-36-35-34 cm fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-5-6-8 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þar til stykkið mælist 45-45-45-46-46-47 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 46-46-46-47-47-48 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana. Saumið ermarnar í – kantur með garðaprjóni meðfram handvegi á að liggja utan á ermi þ.e.a.s. látið kant með garðaprjóni liggja yfir kant meðfram ermakúpu.

HÁLSMÁL:
Byrjið við miðju að framan og prjónið upp frá réttu ca 74 til 94 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = færið umferðina til um 1 lykkju fram, þ.e.a.s. prjónið fyrstu lykkju í umferð slétt, færið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, héðan byrjar nú umferðin
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag A B wrote:

Made the body for the S. I am 5'1 and 10. It was far too short and a tad clingy. Am redoing as an M, I have added 3 inches onto the skirt and I have taken out the side pattern as I found it ugly. With these adjustments it is going to look great. Thanks

23.04.2024 - 23:28

country flag Renate wrote:

Hallo liebes Drops Team. Werden beim Vorderteil für das Teilen in der Mitte keine Maschen abgenommen?Sondern einfach nur geteilt und dann grade hochgestrickt?Vielen Dank für eure Hilfe

02.02.2023 - 20:17

DROPS Design answered:

Liebe Renate, beim Rückenteil wird es für die Armlöcher beidseitig abgekettet dann weiter gestrickt bis die Arbeit 77-92 cm (siehe Größe) misst, dann wird Halsauschnitt gearbeitet und jede Schulter separat fertig gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

03.02.2023 - 08:25

country flag Marianela wrote:

¿como es posible que disminuyan puntos al inicio del vestido? monté 276 y despues dice que debo tener 252 al hacer el diagrama A1

06.09.2019 - 23:45

DROPS Design answered:

Hola Marianela. Las disminuciones están incluidas en el diagrama A.1. Mira atentamente la fila 7 de A.1

10.09.2019 - 22:05

country flag Marianela wrote:

Como disminuyen los puntos de 276 a 252 al tejer el grafico A1??

05.09.2019 - 21:25

DROPS Design answered:

Ver la respuesta arriba

17.10.2019 - 20:10

Katy Board wrote:

Do i just knit A4 once or repeat until decreases are done?

24.10.2018 - 17:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Board, work A.4 on each side ie repeat A.4 in height until piece measures 48-49-51-53-55-57 cm, Happy knitting!

25.10.2018 - 08:12

country flag Tina wrote:

Are the finished sizes on the chart in cm or inches?

08.03.2018 - 13:50

DROPS Design answered:

Dear Tina, the finished measurements in size are taken flat from side to side and are in cm - convert into inches here. Happy knitting!

08.03.2018 - 15:26

country flag Stephanie wrote:

Bonjour, je souhaite réaliser ce modèle pour ma fille mais elle fait une taille XS, aussi je me demande quel coton du groupe B ou A dois je utiliser pour obtenir cette taille? merci pour votre réponse.

31.01.2017 - 18:13

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, cette robe est prévue pour un fil du groupe C, vérifiez les mesures d'après le schéma pour ajuster à la taille souhaitée, ou inspirez-vous d'un modèle similaire dans la taille et le fil souhaités pour ajuster en fonction de votre échantillon. Bon tricot!

01.02.2017 - 08:50

country flag Enrica Colombo wrote:

Bellissimo, in perfetto stile anni 70

19.01.2017 - 20:42

country flag DOMINIK wrote:

Snow white looks amazing and comfortable

19.01.2017 - 05:42

country flag Monica wrote:

Bellissimo!

17.01.2017 - 18:08